Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. júlí 2026 06:54 Fjöldi fólks hefur mótmælt í Tirana og víðar, undir yfirskriftinni „Albanía er ekki til sölu“. Getty/Olsi Shehu Nefnd á vegum Evrópuþingsins sem heimsótti Albaníu á dögunum hefur varað við því að áframhaldandi framkvæmdir við lúxusparadís Jared Kushner, tengdasonar Donald Trump Bandaríkjaforseta, ógni aðildarviðræðum Albaníu við Evrópusambandið.
Tineke Strike, sem fór fyrir nefndinni, segir stjórnvöld í Albaníu vera að „leika sér að eldinum“ með því að heimila framkvæmdirnar, sem hafa þegar valdið töluverðum skaða á vernduðum svæðum við strendur landsins. Strik segir í samtali við Guardian að ef forsætisráðherranum Edi Rama sé alvara með að koma landinu inn í Evrópusambandið, ætti hann að draga leyfi fyrir framkvæmdunum til baka. Verkefnið hefur valdið miklu fjaðrafoki í Albaníu og leitt til mikilla mótmæla. Ásakanir eru uppi um spillingu og yfirvöld hafa verið sökuð um að hafa farið á svig við reglur og ferla þegar heimild var veitt fyrir framkvæmdunum. Þrátt fyrir mótmælin hefur Rama neitað að gefa eftir en á sama tíma og hann virðist ákveðinn í því að stuðla að uppbyggingu í landinu á kostnað náttúruverndar, hefur hann einnig heitið því að koma landinu inn í Evrópusambandið fyrir árið 2030. Samkvæmt Guardian eru um það bil 90 prósent landsmanna fylgjandi aðild. Evrópuþingmenn segja áætlanir stjórnvalda um uppbyggingu á vernduðum svæðum ekki samræmast náttúruverndarlöggjöf Evrópusambandsins. Þá fordæmir Strik viðbrögð stjórnvalda við gagnrýninni og segir þau virðast ætla að halda áfram á sömu braut þar til þau neyðast til að uppfylla skilyrði vegna mögulegrar aðildar.
Albanía Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Sjá meira