Kvikusöfnunin áfram stöðug Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur áfram haldist stöðug og eru taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á næstu dögum. Líklegast er að gjósi á Sundhnúksgígaröðinni og er fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur Innlent 16. maí 2024 11:23
Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Dregið hefur úr skjálftahrinunni við Sýlingarfell sem hófst í gærkvöldi. Innlent 16. maí 2024 07:18
Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Starfsmenn fasteignafélagsins Þórkötlu hafa yfirfarið og samþykkt kaup á 660 húseignum í Grindavík og undirritað 471 kaupsamning. Félaginu hefur borist samtals 781 umsókn um kaup á íbúðarhúsnæði í bænum. Innlent 16. maí 2024 06:44
Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Veðurstofa Íslands hefur mælt sjö smáskjálfta við austanvert Sýlingarfell, þar sem kvikuhlaup hafa orðið, í kvöld. Náttúruvársérfræðingur segir vel fylgst með stöðunni en viðbragð hafi ekki verið aukið, enn sem komið er. Innlent 15. maí 2024 20:28
Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Alþingi samþykkti í dag lagafrumvarp innviðaráðherra um sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar. Framkvæmdanefndin tekur formlega til starfa 1. júní næstkomandi þegar lögin taka gildi. Undirbúningur að starfi nefndarinnar er þegar hafinn og skipan hennar verður kynnt innan skamms. Innlent 14. maí 2024 18:19
Landris heldur áfram á sama hraða Svipuð staða er í Svartsengi og undanfarna daga með áframhaldandi landrisi. Kvikusöfnun er sögð halda áfram á sama hraða og áður og fyrirvari á öðru gosi gæti orðið mjög stuttur. Innlent 14. maí 2024 10:21
Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Nýjar gossprungur gætu opnast með litlum sem engum fyrirvara og land heldur áfram að rísa í Svartsengi. Nokkuð hefur verið um smáskjálfta á svæðinu í dag. Innlent 13. maí 2024 21:30
Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Land rís í Svartsengi með sama hraða og áður. Frá 16. mars, þegar síðasta eldgos hófst, hefur land risið um tæplega tuttugu sentimetra. Kvikusöfnun heldur því áfram og auknar líkur eru á nýju kvikuhlaupi og einnig eldgosi. Gossprungur gætu opnast með mjög litlum fyrirvara, jafnvel engum. Innlent 13. maí 2024 11:54
Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir að einhverjar vikur geti verið í næsta eldgos á Reykjanesi. Kvika haldi áfram að safnast saman í Svartsengi en reynslan síni að sífellt meiri þrýsting þurfi til að koma af stað öðru kvikuhlaupi. Innlent 10. maí 2024 20:09
Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Auknar líkur eru taldar á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi á Reykjanesi. Áætlað er að tæpir fjórtán milljónir rúmmetra af kviku hafi bæst í kvikuhólfið undir Svartsengi frá því síðasta eldgos hófst þann 16. mars. Innlent 10. maí 2024 16:52
Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Skjálftavirkni hefur aukist síðust sólarhringa yfir kvikugangi á Reykjanesskaga eftir að gosinu við Sundhnúksgígaröðina lauk. Innlent 9. maí 2024 23:14
Stöðugt landris og hugað að rýmingu Víðir Reynisson sviðstjóri Almannavarna segir viðbragðsaðila undirbúa rýmingu í Grindavík. Stöðugt landris hefur verið á svæðinu og kvikumagnið slíkt að miklar líkur eru taldar á gosi á allra næstu dögum. Innlent 9. maí 2024 21:29
Eldvörp líkleg næst Eldfjallafræðingur telur líklegt að næsta gos á Reykjanesi verði í Eldvörpum. Það sé langbesti staðurinn til að fá nýtt eldgos því á svæðinu sé mikið flatlendi og langt í mikilvæga innviði. Nýtt eldgos geti hafist hvenær sem er Innlent 9. maí 2024 11:35
Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9. maí 2024 08:15
Margt bendi til þess að gosinu sé lokið Margt bendir nú til þess að eldgosinu við Sundhnúka sé lokið. Þetta kemur fram í pistli frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands á Facebook. Gosórói hafi fallið stöðugt frá því snemma í morgun. Innlent 8. maí 2024 20:23
Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu Niðurstöður mælinga á hraunflæði í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess hraunflæði fyrsta klukkutíma gossins hafi verið 1100 til 1200 rúmmetrar á sekúndu en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í um 100 rúmmetra eftir sex til átta klukkustundir. Áfram hafi dregið úr hraunrennsli og meðaltalið 17. til 20. mars um fimmtán rúmmetrar. Fyrri hluta apríl hafi það verið þrír til fjórir rúmmetrar og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri síðustu tvær vikurnar. Innlent 8. maí 2024 16:37
„Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Yfirvofandi eldgoss í námunda við Grindavík hefur áhrif á þá starfsemi sem hafin var í bænum að sögn formanns bæjarráðs. Ákvörðun um hópuppsagnir bæjarstarfsmanna hafi verið erfið en fyrirsjáanleg. Innlent 8. maí 2024 14:07
Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Fasteignafélagið Þórkatla hefur nú afgreitt meirihluta þeirra 766 umsóknir sem hafa borist um kaup. Allar umsóknir sem bárust í mars og þarfnast ekki nánari skoðunar hafa verið afgreiddar, eða alls 528 umsóknir. Eigendum 415 eigna í Grindavík hefur verið boðin kaupsamningur til undirritunar. Viðskipti innlent 8. maí 2024 11:41
Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir að skelfilegt sé að þurfa að grípa til hópuppsagna. Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi í morgun að fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Starfsmönnum fækkar um allt að 150. Hann vonar að „þetta ömurlega tímabil“ taki enda fyrr en síðar. Innlent 7. maí 2024 20:23
Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi sínum í morgun að laga starfsmannahald bæjarins að gjörbreyttum aðstæðum og fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Bæjarstjóra hefur verið falið að hefja undirbúning og samráð við hagaðila í samræmi við lög um hópuppsagnir. Innlent 7. maí 2024 16:34
Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Enn gýs úr einum gíg við Sundhnúksgígaröðina. Hraunið rennur stutta vegalengd frá gígnum og fer virknin í gígnum minnkandi. Hraði kvikusöfnunar er svipaður og síðustu vikur. Gosið er nú meira en mánaðargamalt og er töluverð óvissa um framhaldið. Innlent 7. maí 2024 16:15
Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Gosið virðist vera að lognast út af en búast má við öðru þar sem kvikuhólfið undir Svartsengi er komið að þolmörkum. Prófessor í jarðeðlisfræði bendir á að það nýja gæti orðið um þúsund sinnum aflmeira en það sem nú kraumar. Enginn ætti að vera nærri sprungunni Innlent 7. maí 2024 12:58
„Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Eldgosið við Sundhnúka virðist nú vera í andarslitrunum, samkvæmt upplýsingum frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands. Innlent 5. maí 2024 00:05
Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson og Grímur Björnsson segja nýjustu gögn Veðurstofu Íslands um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni styðja við fyrri spá þeirra um lok eldvirkni í gígaröðinni; að kvikuflæði verði lokið í eldstöðinni seinni part sumars 2024, eða nánar tiltekið um 5. júlí. Jafnframt telja þeir að landris geti haldið áfram að vissu marki án þess að nýtt gos brjótist fram og vísa til reynslunnar frá Kröflueldum. Innlent 4. maí 2024 23:46
„Við reyndum eins og við gátum“ Innviðaráðherra hyggst stofna sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð þar og samfélag. Bærinn mun ráðast í einhverjar uppsagnir vegna breytinganna. Innlent 3. maí 2024 11:45
Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð og samfélag. Svandís segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga vera umfangsmesta verkefni sem stjórnvöld hafi tekist á við vegna náttúruhamfara. Innlent 3. maí 2024 10:51
„Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Veitingastaður og bakarí opnuðu á ný í Grindavík í dag. Einn eigenda veitingastaðarins vill opna bæinn fyrir öllum sem vilja koma og losna við lokunarpósta sem gagnist engum. Innlent 2. maí 2024 19:21
Áfram landris og óvissa um framhaldið Enn mælist landris við Svartsengi og heldur þrýstingur því áfram að byggjast upp í kvikuhólfinu. Hraunflæði úr gígnum sem gýs úr hefur farið minnkandi síðustu daga, en skjálftavirkni á svæðinu aukist. Innlent 2. maí 2024 12:39
Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2. maí 2024 11:11
Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1. maí 2024 22:01