Innlent

Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Eldgosið virðist vera í rénun.
Eldgosið virðist vera í rénun. Vísir/Vilhelm

Virkni á gosstöðvunum var mjög stöðug í nótt en er nú eingöngu bundin við nyrsta gíginn eftir að slökknaði í syðsta gígnum í gær. Þetta segir í tilkynningu náttúruvárvaktar Veðurstofu Íslands sem barst í morgun.

„Ætla má að megnið af hrauninu renni nú til austurs, þó ekki sé útilokað að eitthvað hraun geti runnið undir storknuðu yfirborðinu til vestur, þó engin hreyfing hafi sést í nótt á þeim hluta hraunbreiðunnar,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að gosórói hafi einnig haldist mjög jafn í nótt, í takt við stöðuga gosvirkni í gígnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×