Mannfyrirlitning Fyrir margt löngu var ég að spjalla við roskinn mann um aðstæður alþýðufólks á árum áður. Þessi maður óx úr grasi í afskekktu þorpi úti á landi, og sagði mér meðal annars að hann hefði eitt sinn á yngri árum tekið þátt í að bera mann í rúmi sínu milli bæja. Þetta var heilsulaus maður á fátækraframfæri, en slíkt fólk var kallað sveitarómagar eða þurfalingar og var réttindalaust. Hreppurinn greiddi með því og ástæða þessa flutnings var sú, að bóndi á öðrum bæ hafði boðist til að hafa hann á heimilinu fyrir lægri upphæð en bóndinn sem hann hafði legið hjá í góðu atlæti. Þurfalingurinn var að sjálfsögðu ekki spurður hvernig honum litist á vistaskiptin og hreppurinn kynnti sér ekkert endilega hvort lægra meðlag þýddi verra atlæti. Burðarmaðurinn sagði að sér hefði liðið undarlega í þessu hlutverki. Þótt þurfalingurinn hafi ekki borið sig illa, var hann greinilega órólegur. Vissi ekkert hvað beið hans. Fastir pennar 26. október 2010 09:11
Ofsi og misskilningur Fulltrúar Bezta flokksins, Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í mannréttindaráði Reykjavíkur eru í vandræðum vegna mikilla og neikvæðra viðbragða við tillögu flokkanna um að úthýsa kristinni trú og siðum úr skólastarfi í borginni. Talsmenn tillögunnar reyna nú að halda því fram að viðbrögðin byggist á "misskilningi" og séu "ofsafengin" eins og Margrét Sverrisdóttir, formaður ráðsins, orðaði það hér í blaðinu eftir að biskup Íslands gagnrýndi áformin harðlega. Fastir pennar 26. október 2010 09:05
Allar í bæinn „Sumir karlar eru svo frábitnir öllu kvenlegu/að þeir sjá ekki einu sinni móður sína/fyrir fjallskugga föðurins" segir í ljóðinu Furða eftir skáldið Vilborgu Dagbjartsdóttur. Hún var ein þeirra sem hrundi Kvennafrídeginum af stað fyrir 35 árum og gekk fylktu liði niður á Torg í hópi stoltra kvenna til að sýna hvað vinnuframlag þeirra vóg þungt fyrir samfélagið. Það er ekki aðeins við hæfi að vitna í hana í dag, heldur líka einmitt þetta ljóð. Það er nefnilega furðan sem einkennir gjarnan jafnréttissinna. Bakþankar 25. október 2010 09:35
Þess vegna kvennafrí Konur eru helmingur mannskyns en eiga eitt prósent eigna heimsins. Áætlað er að konur vinni 2/3 hluta vinnustunda í heiminum. Að launum hljóta þær tíu prósent þeirra tekna sem aflað er. Fastir pennar 25. október 2010 06:00
„Þú ert í flokki þeim“ „Svara svara: vertu velkominn!" kyrjuðum við strákarnir í KFUM fullum hálsi á meðan við biðum eftir því að komast í borðtennis í næsta herbergi. Við hugsuðum ekkert út í það sem við vorum að syngja og ekki heldur í næsta lagi: „Þú æskuskari á Íslandsströnd / þú ert í flokki þeim / er sækir fram í sjónarrönd/ með sigri að komast heim." Maður fór bara með þetta umhugsunarlaust eins og hverja aðra „meinvill" og „frumglæði ljóssins sem gjörvöll mannkind". Þannig var okkar kristni. Hún var umhugsunarlaus. Og nú þegar ég hugsa um þennan kveðskap loksins eftir öll þessi ár verð ég að játa að ég botna ekkert í honum. Sjónarrönd? Eða var það „sólarlönd"? „Með sigri að komast heim"? Fastir pennar 25. október 2010 06:00
Á að þagga rökræðuna niður? Þingmenn Heimssýnar hafa kynnt til sögunnar tvær þingsályktunartillögur sem ætlað er að hafa áhrif á aðildarumsóknina að ESB. Fyrri tillagan gerir ráð fyrir skoðanakönnun í formi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort afturkalla á umsóknina og þar með hætta allri umræðu. Röksemdir flutningsmanna eru þær að málið sé svo fjarstæðukennt að ástæðulaust sé að eyða í það tíma og fjármunum. Umræður séu af þeim sökum óþarfar. Fastir pennar 23. október 2010 10:53
Dýrari en forsætisráðherrann Fréttablaðið hefur í vikunni sagt tvær fréttir af því að hætta sé á því að ekki verði hægt að manna lykilstöður opinberra starfsmanna með hæfu fólki vegna þess að betri kjör bjóðist annars staðar. Fastir pennar 23. október 2010 06:00
Ísland, verst í heimi Ísland, best í heimi-áróðurinn fór alltaf í taugarnar á mér. Ég elska landið mitt og er viss um að hér býr hellingur af hæfileikaríku fólki, sem nýtir guðsgjafir sínar til góðs. Ég er jafnvel til í að taka svo djúpt í árinni að segja að hér séu alveg jafn stórkostlegir hæfileikar og annars staðar í heiminum, miðað við höfðatölu að sjálfsögðu. Ekki erum við Indland. Bakþankar 23. október 2010 06:00
Keppnin Þó að margt fari í taugarnar á þjóðinni og hafi gert í gegnum árin er líklega fátt sem kveður jafn mikið að í þeim efnum og svokallaðar pólitískar ráðningar. Er þar átt við ráðningar þar sem stjórnmálamenn meta stjórnmálaskoðanir, vin- og frændskap ofar öðru þegar opinberu starfi er ráðstafað. Fastir pennar 22. október 2010 06:00
Dagar kvenna og hagtalna Dagarnir líða og allir eru þeir helgaðir einhverju ákveðnu. Það sem af er október hafa liðið bleiki dagurinn og fjólublái dagurinn, dagur hvíta stafsins, dagur gegn einelti, dagur án ofbeldis, dagur myndlistar, dagur samkeppnishæfni og PBS-dagurinn, dagur hrunsins og alþjóðlegur dagur öndunarmælinga. Bakþankar 22. október 2010 06:00
Er skrýtið að traustið sé lítið? Í könnun MMR sem birtist í vikunni sem leið var spurt um traust á Alþingi Íslendinga. Aðeins 7,5 prósent þeirra sem afstöðu tóku sögðust bera mjög mikið eða frekar mikið traust til þjóðþingsins samkvæmt könnuninni. Tveir þriðju svarenda sögðust hins vegar bera mjög lítið eða frekar lítið traust til Alþingis. Fastir pennar 21. október 2010 06:00
Vinna af sér „fríið“ Konur eiga að ganga út af vinnustöðum sínum klukkan 14.25 á mánudaginn. Samkvæmt útreikningum eru þær þá víst búnar að vinna tímana sem þær fá greitt fyrir, miðað við karla. Bakþankar 21. október 2010 06:00
Nóg komið af dómunum Stundum þurfa sprenglærðir dómarar að kveða upp ótal dóma, studda vandaðri lögfræðilegri röksemdafærslu áður en fólki dettur í hug að gera það sem einföld, heilbrigð skynsemi býður. Þetta virðist eiga við um spurninguna hvort Alþingi megi með lögum skylda fólk til að borga félagsgjald í félagi sem það er ekki í og vill ekki vera í, telur jafnvel vinna gegn hagsmunum sínum. Fastir pennar 20. október 2010 06:00
Ég öfunda þig svo… Í fermingarfræðslunni í haust heyrði ég: "Ég öfunda þig svo af skónum þínum." "Ég öfunda þig ógeðslega af að fara í helgarferð til London!" "Ég öfunda þig svo… af þessu… af hinu…" Ég spurði öfundarfólkið hvað það meinti með svona setningum og ræddi svo við það um afstöðu og eðli öfundar. Bakþankar 19. október 2010 06:00
Persónukjör að fornu og nýju Persónukjör hefur lengi verið hjartans mál tiltekins hluta þjóðarinnar - stundum jafnvel kynnt sem hin tæknilega útfærsla á kosningum sem verði flestra meina bót. Fastir pennar 19. október 2010 06:00
Nærvera NATO Samkomulag Íslands og Kanada um samstarf í varnarmálum, sem undirritað var í Brussel í síðustu viku, er ánægjulegur áfangi á þeirri vegferð að treysta öryggi og varnir Íslands eftir brotthvarf varnarliðsins árið 2006. Fastir pennar 19. október 2010 06:00
Ekki trufla Það er alkunna að spjót auglýsingaherferða beinast að því að sýna fólki hvernig líf þess gæti hugsanlega verið. Síðustu árin hefur hamingjan gjarnan verið kynnt til sögunnar sem sjálfhverf „þín stund, þinn staður". Þær stundir eru hljóðeingraðar, stílhreinar, börnin komin í pössun og ekki einn aukasokkur á eldhúsborðinu. Engin háreysti, engin gæludýr, engir nágrannar. Þú átt einlæga stund með sjálfum þér, ávexti eða bolla af góðu kaffi. Og slakar á. Bakþankar 18. október 2010 06:00
Eva + Ísland = Sönn ást Íslandsvinur: Og maður sér fyrir sér sérvitran yfirkennara í litlum skóla í Wiesbaden sem ungur hreifst af Nonnabókunum. Eða formann Norræna félagsins í Gilleleje. Eða frægðarmenni sem millilenti hér fyrir tíu árum á leið Fastir pennar 18. október 2010 06:00
Trú og hefðir strokaðar út? Meirihlutinn í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar hefur lagt fram drög að ályktun um samskipti leik- og grunnskóla borgarinnar við trúfélög. Ekki verður annað séð en að nái ýmsar tillögur sem þar er að finna fram að ganga, verði ýmsar gamlar og góðar hefðir í skólastarfinu afnumdar. Fastir pennar 18. október 2010 06:00
Tvær kreppur Bankakreppan sem reið yfir 2008 var ekki séríslenzkt fyrirbæri, þótt hún yrði dýpri hér en víða annars staðar. Hún hefur leitt af sér eignarýrnun, skattahækkanir, niðurskurð opinberrar þjónustu og aukið atvinnuleysi. Fastir pennar 16. október 2010 11:31
Kögunarhóll: Snoturt hjartalag án ábyrgðar Forsætisráðherra kúventi stefnu sinni varðandi skuldavanda heimilanna og tók stöðu með þeim sem krefjast almennrar niðurfellingar skulda. Fyrri stefna hafði að vísu um sumt mistekist í framkvæmd. Hún byggði hins vegar á ábyrgri hugsun. Fastir pennar 16. október 2010 06:00
Hvatt til dáða Landið út við ysta sæ oft er súrt að gista, en bölvað ástand bætir æ að berja nýnasista. Bakþankar 16. október 2010 00:01
Menningararður Hingað til hefur verið nokkuð almenn sátt hér á landi um að það séu viss samfélagsleg verðmæti í því að greiða listamönnum laun úr opinberum sjóðum. Að undanförnu hefur sú skoðun gert vart við sig að listir séu fyrst og fremst samfélagslegur lúxus sem við höfum ekki efni á á krepputímum; eins konar andlegt súkkulaði sem fýkur um leið og við þurfum að herða sultarólina. Þetta er misskilningur. Bakþankar 15. október 2010 09:23
Menningararður Hingað til hefur verið nokkuð almenn sátt hér á landi um að það séu viss samfélagsleg verðmæti í því að greiða listamönnum laun úr opinberum sjóðum. Að undanförnu hefur sú skoðun gert vart við sig að listir séu fyrst og fremst samfélagslegur lúxus sem við höfum ekki efni á á krepputímum; eins konar andlegt súkkulaði sem fýkur um leið og við þurfum að herða sultarólina. Þetta er misskilningur. Bakþankar 15. október 2010 09:03
Setjum öll uppkynjagleraugu Þjónusta við konur og karla sem hafa mátt þola kynferðislegt ofbeldi sem og þjónusta við konur sem búa við ofbeldi í nánum samböndum fer að langstærstum hluta fram á vegum félagasamtaka og grasrótarhreyfinga Fastir pennar 15. október 2010 06:00
Plús eða mínus? Það er ekki óvenjulegt að í sambandi sem staðið hefur um nokkurt skeið dragi úr líkamlegri ástríðu með tímanum. Við tölum ekki mikið um það, vegna þess að það er víst mælikvarði á árangur að gera það oft. Bakþankar 14. október 2010 06:00
Byrjum með hreint borð Stjórnarskráin frá 17. júní 1944 er í meginatriðum samhljóða dönsku stjórnarskránni. Stjórnarskránni verður því ekki með góðu móti kennt um hrunið, ekki hrundi Danmörk. Reynslan virðist þó sýna, að Íslendingar geti þurft strangari stjórnarskrá en Danir. Eftir á að hyggja hefði stjórnarskráin þurft að girða fyrir langan aðdraganda hrunsins. Því þarf nú að skerpa ákvæði stjórnarskrárinnar um vald forseta Íslands, úr því að valdheimildir hans samkvæmt stjórnarskránni eins og hún er dugðu ekki til. Fastir pennar 14. október 2010 06:00
Falskar vonir Einhverra hluta vegna hafa hugmyndir um almenna skuldaniðurfellingu skotið upp kollinum á ný, meira en ári eftir að þær voru slegnar af og taldar óraunhæfar. Ríkisstjórnin leikur nú eitthvert skrýtið leikrit með stjórnarandstöðunni og hagsmunasamtökum, þar sem látið er eins og það komi til greina að færa niður skuldir fólks um 18%. Ekkert vit er í þeirri leið, eins og raunar er margbúið að færa rök fyrir, en staðfestist enn frekar með þeim upplýsingum, sem bætzt hafa við að undanförnu. Fastir pennar 14. október 2010 06:00
Samúel Íslenska þjóðin hefur eignast nýtt uppáhald. Ungmennalandsliðið okkar í karlaknattspyrnu hefur skipað sér á bekk með kvennalandsliðinu. Það leikur, ásamt sjö öðrum liðum, í lokakeppni Evrópumótsins í Danmörku á næsta ári. Fastir pennar 13. október 2010 09:35
Samfylkingin hafnar einkavæðingu í skólakerfinu Arnór Heiðar Benónýsson,Anna María Jónsdóttir Skoðun