Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar 26. október 2026 16:32 Nemendur sem nú eru í 10. bekk eiga að útskrifast úr grunnskóla vorið 2027 með tölueinkunnir í stað bókstafaeinkunna. Skólaárið er þegar hafið en enn er unnið að útfærslu breytinganna. Því skiptir máli að spyrja hvaða undirbúning þarf til að nýr einkunnakvarði skili þeim skýrleika, samræmi og jafnræði sem að er stefnt. Í nýlegu útvarpsviðtali vísaði menntamálaráðherra til þess að horft væri til Svíþjóðar og Singapúr við breytingar á námsmati hér á landi. Ég nýtti mér gervigreind til að taka saman upplýsingar úr opinberum heimildum og lista upp helstu áfanga. Mig langaði sérstaklega að sjá hvaða tíma þessi lönd gefa sér í undirbúning og innleiðingu. Svíþjóð: Fleiri aðgerðir en nýr einkunnakvarði Í Svíþjóð er verið að breyta bókstafaeinkunnum í tölueinkunnir á kvarðanum 1–10. Samhliða er námskráin endurskoðuð, ný landsbundin lokapróf innleidd og útreikningi stiga til inntöku í framhaldsskóla breytt. Samræmi á því að nást með fleiri aðgerðum en nýjum einkunnakvarða. Tímalínan í Svíþjóð: 2023: Vinna við úttekt á námskránni hefst 2025: Úttektin birtist 2026: Þingið samþykkir breytingar á einkunnakerfinu 2027: Skolverket á að skila tillögum að nýrri námskrá Haust 2028: Innleiðing nýrrar námskrár og einkunnakerfis hefst Vor 2031: Fyrsti árgangurinn lýkur grunnskóla með stig til inntöku í framhaldsskóla samkvæmt nýja kerfinu Það sem vekur sérstaklega athygli mína er að nemendur sem eiga eitt eða tvö ár eftir af grunnskólanum þegar innleiðingin hefst halda áfram samkvæmt eldra kerfi. Þessi tilhögun vekur spurningu um stöðu nemenda hér á landi sem eru þegar komnir í 10. bekk. Þeir og foreldrar þeirra þurfa frá upphafi skólaárs að vita eftir hvaða viðmiðum námið verður metið og hvernig lokaeinkunn verður ákvörðuð. Singapúr: Fimm ár frá kynningu að framkvæmd Í Singapúr var einkunnagjöf á lokaprófi barnaskólans breytt árið 2021. Tímalínan í Singapúr: 2016: Breytingin kynnt 2019: Nánari upplýsingar kynntar um námsval og útfærslu nýja kerfisins 2020: Nemendur í 5. námsári og foreldrar þeirra fá námsmat birt á nýja kvarðanum til að kynnast honum 2021: Fyrstu lokaprófin samkvæmt nýja kerfinu Þar liðu því um fimm ár frá kynningu að framkvæmd. Þetta eru ólík kerfi og breytingarnar ekki alveg sambærilegar við þær íslensku. En ef við horfum til þessara landa finnst mér eðlilegt að við horfum líka til undirbúningsins, tímans sem er gefinn og fræðslu fyrir kennara og foreldra. Hvað þarf að fylgja nýjum einkunnakvarða? Markmið ráðuneytisins um skýrari einkunnagjöf, aukið samræmi og jafnræði nemenda eru mikilvæg. Til að ná þeim þarf fleira en nýjan einkunnakvarða: Sameiginlegur skilningur: Skýra þarf hæfni- og matsviðmið aðalnámskrár og útbúa sameiginleg matsdæmi. Sami einkunnakvarði tryggir ekki einn og sér samræmi í mati. Tími til undirbúnings: Kennarar þurfa tíma til starfsþróunar og samstarfs innan skóla og milli skóla og stjórnendur svigrúm til að leiða vinnuna. Skýrar upplýsingar: Nemendur og foreldrar þurfa að skilja breytingarnar og hvað einkunnirnar segja um stöðu og hæfni nemenda. Tölvukerfi sem styðja breytingarnar: Kerfi á borð við Mentor, þar sem kennarar skrá námsmat og nemendur og foreldrar skoða niðurstöður, þurfa að vera tilbúin fyrir nýjan kvarða. Aðlaga þarf þá uppsetningu sem nú miðast við bókstafaeinkunnir áður en breytingarnar taka gildi Þessir þættir þurfa að haldast í hendur ef breytingarnar eiga að skila tilætluðum árangri. Fagleg ábyrgð að kalla eftir svigrúmi Öllu tali um að við kennarar og skólastjórnendur séum ekki tilbúin til breytinga vísa ég til föðurhúsanna. Við erum tilbúin að vinna þessa vinnu og viljum fá svigrúm til að gera hana vel. Ég fagna frumkvæði KÍ með „Blásum byr í seglin“. Sú vinna þarf að tengjast breytingum á aðalnámskrá og námsmati, svo kennarar geti byggt upp sameiginlegan skilning og þróað framkvæmdina saman. Við þurfum sameiginleg markmið, skýrar leiðbeiningar og tíma til að undirbúa og innleiða breytingarnar. Það er fagleg ábyrgð að kalla eftir því. Höfundur er grunnskólakennari og aðstoðarskólastjóri við Skarðshlíðarskóla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun