Alonso telur að fjögur keppnislið verði sterkust í Formúlu 1 Fernando Alonso hjá Ferrari telur að fjögur keppnislið verði í baráttunni um meistaratitilinn í Formúlu 1 í ár. Hann afhjúpaði nýja Ferrari keppnisbílinn með Felipe Massa í Maranello á Ítalíu í dag. Formúla 1 28. janúar 2011 17:44
Ferrari frumsýndi 2011 keppnisbílinn Ferrari frumsýndi í dag nýjan Formúlu 1 bíl sem kallast Ferrari F 150 og verður ekið af Fernando Alonso og Felipe Massa á keppnistímabilinu, en 20 mót verða á dagskrá í ár. Fyrsta mótið er í Barein í mars. Frumsýningin var í Maranello á Ítalíu, í höfuðstöðvum Ferrari. Formúla 1 28. janúar 2011 10:34
Adrian Sutil, Paul di Resta og Nico Hülkenberg ráðnir ökumenn hjá Force India Force India liðið tilkynnti í dag að Þjjóðverjinn Adrian Sutil varður áfram hjá liðinu, fimmta árið í röð og Skotinn Paul di Resta hefur verið ráðinn við hlið hans sem ökumaður og Þjóðverjinn Nico Hülkenberg verður þróunar og varaökumaður liðsins. Formúla 1 26. janúar 2011 16:00
Vettel íþróttamaður ársins í Þýskalandi Þýski Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel varð hlutskarpastur í kjöri íþróttamanns Þýskalands á dögunum, en kjörið fór fram 19. desember og fékk Vettel því væna jólagjöf frá löndum sínum. Formúla 1 25. desember 2010 20:11
Petrov fékk 2 ára samning við Lotus Renault Rússin Vitaly Petrov verður ökumaður Lotus Renault liðsins á á næsta ári, en liðið hét Renault síðustu keppnistímabil. Hann ekur því að nýju við hlið Robert Kubica. Petrov skrifaði undir 2 ára samning við Lotus Renault. Formúla 1 22. desember 2010 14:43
Belgískur nýliði ökumaður Virgin 2011 Virgin liðið tilkynnti í dag að Belginn Jerome D'Ambrosio verði með Timo Glock hjá liðinu á næsta ári í stað Lucas di Grassi. Formúla 1 21. desember 2010 10:22
Mansell hefur trú á getu Schumachers 2011 Breska Formúlu 1 kempan fyrrverandi, Nigel Mansell spáir því að Lewis Hamilton og Jenson Button hjá McLaren láti að sér kveðja á næsta ári. Þeir stóðust þó ekki Sebastian Vettel, Fernando Alonso og Mark Webber snúning á þessu tímabili. Þá hefur hann trú á að Michael Schumacher eigi eftir að standa sig betur á næsta ári. Formúla 1 21. desember 2010 08:20
150.000 manns fylgdust með Webber heiðra konung Tælands Um 150.000 áhorfendur eru taldir hafa fylgst með Formúlu 1 kappanum Mark Webber þegar hann þeysti um götur Bangkok Í Tælandi í gær. Hann ók Red Bull bílnum til heiðurs konungi landsins, en hann á 84 ára afmæli í vikunni. Formúla 1 19. desember 2010 17:14
Webber fullur eldmóðs fyrir 2011 Mark Webber hjá Red Bull ætlar að takast á við Formúlu 1 meistarakeppnina 2011 af fullu kappi, en hann átti eins og fjórir aðrir ökumenn möguleika á meistaratitlinum í ár. Formúla 1 15. desember 2010 13:34
Schumacher sáttur við endurkomuna í Formúlu 1 þrátt fyrir að sigra ekki Michael Schumacher ákvað að mæta aftur í eldlínuna í Formúlu 1 á þessu ári, eftir þriggja ára hlé frá íþróttinni. Hann náði ekki að landa sigri á árinu með Mercedes liðinu, en segist engu að síður vera ánægður með ákvörðun sína í frétt á autosport.com. Schumacher varð í níunda sæti í stigamótinu, 70 stigum á eftir liðsfélaga sínum Nico Rosberg. Formúla 1 13. desember 2010 15:26
Vettel mun reyna að verja titilinn af hörku á næsta ári Sebastian Vettel tók á móti meistaratitli Formúlu 1 ökumanna á föstudaginn í Mónakó og autosport.com birti við hann viðtal eftir afhendinguna og spurði hvernig tilfinning það væri að vera meistari. Viku áður hafði hann verið útnefndur sem kappakstursmaður ársins af Autsport og lesendum tímaritsins, sem er tileinkað akstursíþróttum. Formúla 1 13. desember 2010 13:59
Horner: Ótrúlegt ár hjá Red Bull Christian Horner framkvæmdarstjóri Red Bull tók á móti heimsmeistaratitli bílasmiða á verðlaunaafhendingu FIA í Mónakó í gærkvöldi, en Sebastian Vettel hjá Red Bull tók á móti titli ökumanna á sömu athöfn Formúla 1 11. desember 2010 14:29
Vettel tók á móti meistaratitlinum Yngsti heimsmeistari sögunnar, Sebastian Vettel frá Þýskalandi tók á móti heimsmeistaratitli Formúlu 1 ökumanna í gærkvöldi á sérstakri verðlaunaafhendingu FIA fyrir akstursíþróttamenn. Athöfnin var í Mónakó. Formúla 1 11. desember 2010 12:44
Bann við liðsskipunum fellt niður Akstursíþróttaráð FIA ákvað í dag á fundi í Mónakó að fella niður reglu sem segir að liðsskipanir í Formúlu 1 séu bannaðar, en nokkrar reglubreytingar voru gerðar á fundinum í dag. Formúla 1 10. desember 2010 16:27
Petrov fyrsti kostur hjá Lotus Renault við hlið Kubica 2011 Rússinn Vitaly Petrov gæti orðið ökumaður við hlið Robert Kubica hjá Lotus Renault, sem var formlega tilkynnt sem lið í gær með nýju nafni. En Lotus bílaframleiðandinn breski hefur keypt sig inn í lið sem áður var nefnt Renault. Liðið byggir í raun á gömlum belgjum með nýju nafni og skipulagi hvað fjármagn varðar. Formúla 1 9. desember 2010 15:16
Piquet feðgar fá uppreisn æru eftir meiðyrðarmál Formúlu 1 lið Renault hefur samþykkt að greiða fyrrum liðsmanni þess, Nelson Piquet og föður hans skaðabætur vegna ummæla vegna liðsins í kringum hneykslismál, sem kom upp eftir að yfirmenn liðsins voru sakaðir og dæmdir fyrir að hafa áhrif á úrslit í móti í Singapúr árið 2008. Autosport.com greindi frá þessu máli. Formúla 1 8. desember 2010 16:49
Vettel valinn kappakstursökumaður ársins Tímaritið Autosport valdi Sebastian Vettel sem kappakstursökumann ársins á árlegu hófi í London á sunnudagskvöld. Tímaritið velur menn ársins í ýmsum greinum akstursþrótta í samvinnu við lesendur sína, en tímaritið rekur einnig autosport.com, sem er einn vinsælasti fréttavefurinn um íþróttina Formúla 1 6. desember 2010 20:25
Timo Glock 100% áfram hjá Virgin Timo Glock frá Þýskalandi telur að hann verði áfram hjá Virgin liðinu á næsta ári, sem er nú að hluta til í eigu rússneska bílaframleiðandans Marussia. Glock var ekki tilkynntur sem ökumaður Virgin á ökumannslista FIA í vikunni. Formúla 1 3. desember 2010 14:18
Alonso kjörinn sá besti af framkvæmdarstjórum keppnisliða Tímaritið Autosport stóð fyrir kosningu á besta Formúlu 1 ökumanni ársins á meðal tólf framkvæmdarstjóra keppnisliða. Kosningin var leynileg, en var birt í nýjasta eintaki tímaritsins í vikunni. Spánverjinn Fernando Alonso varð fyrir valinu. Formúla 1 2. desember 2010 17:00
Maldonado frá Venúsúela ráðinn sem ökumaður Williams Pastor Maldonado frá Venúsúela var í dag staðfestur sem ökumaður Williams Cosworth á næsta ári við hliðina á Rubens Barrichello frá Brasilíu. Maldonado sem er 25 ára varð meistari í GP2 mótaröðinni á þessu ári og prófaði Williams bíl á æfingu í Abu Dhabi á dögunum, eftir lokamótið í Formúlu 1. Formúla 1 1. desember 2010 15:33
FIA staðfesti 14 ökumenn af 24 í Formúlu 1 2011 FIA, alþjóðabílasambandið sendi frá sér í dag lista yfir þá ökumenn sem hafa verið staðfestir hjá keppnisliðum fyrir næsta Formúlu 1 keppnistímabil. Formúla 1 30. nóvember 2010 16:18
Kovalainen og kærasta þurfa að hvílast eftir óhapp Finninn Heikki Kovalainen og kærasta hans Catherine Hyde lentu í óhappi í kappakstursmóti meistaranna í Dusseldorf á sunnudaginn, þegar afturfjöðrun brotnaði á keppnisbíl sem hann ók og hún var farþegi í endaði á varnargirðingu. Kovalainen fékk þungt höfuðhögg og Hyde meiddist á mjöðm í atvikinu. Formúla 1 30. nóvember 2010 15:46
Horner: Vonbrigði fyrir Webber að ná ekki takmarkinu Christian Horner hjá Red Bull telur að Mark Webber, liðsmaður Red Bull endurhlaði batteríin í vetur og mæti klár í titilslaginn 2011, eftir að hafa misst af titlinum í ár. Liðsfélagi hans, Sebastian Vettel varð meistari í ár og tryggði titilinn í lokamótinu. Formúla 1 29. nóvember 2010 14:53
Kubica fjórði í frönsku rallmóti Pólski Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica, sem ekur með Renault náði fjórða sæti í rallmóti í Frakklandi á sunnudaginn. Hann keppti á Renault Clio S16. Aðstoðarökumaður Kubica var Jakub Gerber. Formúla 1 29. nóvember 2010 14:10
Nýbakaður DTM-meistari vonast eftir Formúlu 1 sæti Bretinn Paul di Resta vann meistaratitilinn í DTM mótaröðinni með Mercedes, en lokamót ársins fór fram í Sjanghæ í Kína á sunnudaginn. Flest mót í þessari mótaröð fara fram í Þýskalandi. Paul di Resta varð í öðru sæti á eftir landa sínum Gary Paffett í mótinu í Sjanghæ og það dugði til að hann hreppti titilinn. Di Resta hefur verið varaökumaður Force India liðsins á þessu ári og í frétt á autosport.com í dag segist hann áhugasamur um að komast að sem keppnisökumaður í Formúlu 1. "Force India hefur gefið mér gott tækifæri á þessu ári. Það hefur alltaf verið draumur minn að vera hluti af Formúlu 1 liði og ég hef getað gert frábæra hluti með þeim á þessu ári", sagði di Resta um í frétt autosport. "Augljóslega er ég að vonast eftir sæti hjá liðinu og að byggja upp langvarandi samvinnu. F1 er draumur minn og ég mun vinna að því að láta hann rætast." "Mercedes hefur reynst mér vel og ég vil ekki gleyma því. Ég er bara ánægður að vinna titilinn í DTM með þeim", sagði di Resta. Adrian Sutil og Viantonio Liuzzi voru ökumenn Force India í ár. Formúla 1 29. nóvember 2010 13:58
Albuquerque kátur að sjá við tveimur heimsmeisturum Portúgalinn Filipe Albuquerque var kampakátur með að vinna kappakstursmót meistaranna í Düsseldorf í dag. Hann lagði í Formúlu 1 heimsmeistarann Þjóðverjann Sebastian Vettel í undanúrslitum og Frakkann Sebastian Loeb, heimsmeistara í rallakstri í úrslitum. Albuquerque er ekki heimsþekktur ökumaður á borð við þá tvo sem hann sá við í mótinu á lokasprettinum. Formúla 1 28. nóvember 2010 18:21
Óvæntur sigurvegari í kappakstursmóti meistaranna Portúgalskur ökumaður, Filipe Albuquerque vann óvæntan sigur í kappakstursmóti meistaranna í Düsseldorf í Þýskalandi í dag. Hann lagði tvo ríkjandi heimsmeistara að velli á lokasprettinum. Alburquerque vann Sebastian Loeb frá Frakklandi í lokaviðureign mótsins, en Loeb er sjöfaldur rallmeistari. Formúla 1 28. nóvember 2010 15:40
Skipan ökumanna í riðla í kappakstursmóti meistaranna Michael Schumacher og Sebastian Vettel geta bætt við öðrum gullverðlaunum í kappakstursmóti meistaranna, þegar þeir keppa í einstaklingskeppni milli sextán ökumanna á malbikaðri braut í Dusseldorf í Þýskalandi í dag. Þeir tryggðu Þýskalandi bikar þjóða í gær. Formúla 1 28. nóvember 2010 10:18
Schumacher: Frábært að vinna í fjórða sinn Michael Schumacher og Sebastian Vettel aka fyrir framan landa sína í Dusseldorf í Þýskalandi í dag að nýju í kappakstursmóti ökumanna, en keppa sem einstaklingar, ekki þjóð eins og í gær. Schumacher og Vettel tryggðu Þýsklandi fjórða þjóðarbikarinn á fjórum árum. Formúla 1 28. nóvember 2010 10:08
Schumacher og Vettel unnu fjórða meistarabikar Þýskalands Michael Schumacher og Sebastian Vettel tryggðu Þýskalandi meistarabikar þjóða í kappakstursmóti meistaranna í kvöld. Þeir lögðu lið Breta, skipað þeim Andy Pirlaux og Jason Plato að velli í úrslitum. Formúla 1 27. nóvember 2010 21:33