Íslendingurinn enn á sjúkrahúsi í Bangkok Íslendingurinn sem slasaðist í flugvél Singapore Airlines á leiðinni frá London til Singapúr í vikunni er enn á Samitivej-sjúkrahúsinu í Bangkok. Innlent 26. maí 2024 14:13
Lestarsamgöngur milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar Í ljósi umræðna um almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar er rétt að rifja upp frábæra hugmynd um lestarsamgöngur, Lava Express, sem var kynnt með pompi og prakt árið 2016. Skoðun 26. maí 2024 11:00
Íslendingurinn sem slasaðist í háloftunum var á vegum Marels Íslendingurinn sem slasaðist í flugvél Singapore Airlines á leiðinni frá London til Singapúr í vikunni var í vinnuferð á vegum Marels. Hann er enn á sjúkrahúsi í Bangkok, höfuðborg Taílands. Innlent 24. maí 2024 14:43
Það þarf þyrlupall við þjóðarsjúkrahúsið Nýverið bárust af því fréttir að Reykjavíkurborg og Landspítali hafi gert með sér samkomulag um vilja til byggingar þyrlupalls við Nauthólsvík. Tilgangurinn mun vera að stytta flutningstíma þeirra sjúklinga sem þyrftu að koma með þyrlu til Landspítalans í Reykjavík þegar öll starfsemi spítalans væri sameinuð í nýjum byggingum við Hringbraut. Skoðun 24. maí 2024 09:00
Síðasti naglinn í líkkistu innanlandsflugs? Nýverið tilkynnti Isavia hf um nýtt bílastæðakerfi við flugvöll sinn á Egilsstöðum. Ekki er það svo sem í frásögur færandi að rekstraraðili flugvallarinns taki upp nýtt, og að sögn þeirra, betra kerfi en tilgangurinn með þessu kerfi er að „tryggja gestum Egilsstaðaflugvallar bætta þjonustu og betri ferðaupplifun“. Skoðun 23. maí 2024 12:01
Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða umtalsverða breytingu á gildandi skipulagi en meginbreytingin felst í að aðlaga núverandi deiliskipulagsáætlun í „átt að nýrri þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar eins og eðlilegt þykir“. Innlent 22. maí 2024 19:14
Íslendingurinn á meðal þeirra sem slösuðust Íslendingurinn sem var meðal farþega í þotu Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð í gær var meðal þeirra þrjátíu sem fluttir voru á sjúkrahús. Einn lést í ókyrrðinni og sjö slösuðust alvarlega. Innlent 22. maí 2024 14:44
Lýsa hrikalegum aðstæðum í flugi Singapore Airlines: „Það var svo mikið öskrað“ Farþegar í flugvél Singapore Airlines lýsa hrikalegum aðstæðum í mikilli ókyrrð í gær. Vélin var á leið frá London til Singapúr en lenti í Bangkok eftir að hafa lent í ókyrrð. Einn lést og eru tugir slasaðir. 229 voru um borð í vélinni sem er af gerð Boeing 777. Alls voru ríkisborgarar frá 56 löndum í vélinni, þar á meðal einn Íslendingur. Erlent 22. maí 2024 10:58
Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Flugáhugamönnum bauðst í kvöld að skoða eldgamlar herflugvélar úr seinni heimsstyrjöld á Reykjavíkurflugvelli. Þrjár flugvélanna fljúga áleiðis til Bretlands í fyrramálið. Innlent 21. maí 2024 23:30
Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Vanir flugfarþegar þekkja það að upplifa mikla ókyrrð um borð. Það getur valdið örum hæðabreytingum í flugi og veldur mörgum einnig miklum óþægindum. Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir ástæðu fyrir því að mælst sé til þess að farþegar sitji með sætisólar spenntar á meðan flugi stendur. Innlent 21. maí 2024 19:54
Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Íslendingur var á meðal farþega í þotu Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð í háloftunum með þeim afleiðingum að einn lést og þrjátíu slösuðust. Þetta kemur fram í frétt BBC sem hefur birt lista með þjóðernum farþega vélarinnar. Erlent 21. maí 2024 16:03
Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, verða til sýnis á Reykjavíkurflugvelli í kvöld. Þær standa á flughlaðinu norðan við gamla Loftleiðahótelið og verður svæðið opið almenningi milli klukkan 18 og 20. Innlent 21. maí 2024 14:47
Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Einn lét lífið og rúmlega þrjátíu slösuðust þegar farþegaþota frá Singpore Airlines lenti í mikilli ókyrrð á leið sinni frá London til Singapore. Erlent 21. maí 2024 11:11
Fyrsti stríðsþristurinn lentur Fyrstur fimm þrista, gamalla herflugvéla úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, er lentur á Reykjavíkurflugvelli eftir flug frá Narsarsuaq í Grænlandi. Claudia Janse van Rensburg annast Reykjavíkurdvöl vélanna og segir ótrúlegt að fá að taka þátt í flugsögunni með þessum hætti. Innlent 20. maí 2024 19:17
Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Fimm gamlar herflugvélar úr síðari heimsstyrjöld af gerðinni DC-3, eða C-47 Douglas Dakota, millilenda á Íslandi á næstu dögum á leið sinni frá Norður-Ameríku til Evrópu. Þar munu þær taka þátt í minningarathöfnum í tilefni þess að 80 ár verða liðin frá innrásinni í Normandí, D-deginum 6. júní 1944. Innlent 20. maí 2024 15:43
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. Erlent 17. maí 2024 11:03
Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum. Viðskipti 17. maí 2024 06:01
Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Kanadíska flugfélagið WestJet fór í dag í sínar fyrstu ferðir milli Calgary í Albertafylki og Keflavíkurflugvallar. Fyrsta fluginu var sérstaklega fagnað í morgun þar sem forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet klipptu á borða áður en flogið var frá Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 16. maí 2024 15:52
Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Forstjóri Play vill árétta að flugfélagið sé ekki á förum frá Íslandi. Kjarnastarfsemin sé hér á landi og verði það áfram. Í tengslum við stækkunarfasa félagsins séu hins vegar uppi hugmyndir um að tvær til þrjár flugvélar verði staðsettar í öðru landi. Viðskipti innlent 16. maí 2024 13:34
Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Vegagerðin hefur hafnað öllum tilboðum sem þeim bárust þeim í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði í vetur. Opnað var fyrir tilboð þann 30. apríl, en þrjú tilboð bárust sem öll voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Til stendur að bjóða tilboðsaðilum til samningaviðræðna, en núgildandi samningur rennur út 30. ágúst 2024. Innlent 16. maí 2024 10:46
Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Forstjóri Play hefur velt upp möguleikanum á því að koma á fót heimavelli annars staðar en á Íslandi, til dæmis á Spáni. Þannig væri hægt að fljúga frá Spáni til Íslands með spænska áhöfn. Viðskipti innlent 15. maí 2024 18:00
Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Sænska flugvélafyrirtækið Heart Aerospace tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að flytja hluta af þróunarstarfi vegna þrjátíu sæta tvinn-rafmagnsflugvélar frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur félagið hætt við verksmiðjubyggingu í Halmstad en í staðinn ákveðið að reisa rannsóknar- og þróunarmiðstöð í Los Angeles í Kaliforníu. Erlent 15. maí 2024 17:44
Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Hæstiréttur hefur viðurkennt að starfsmaður átti að fá greitt fyrir þann tíma sem hann varði í flugvélum í vinnuferð. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar. Innlent 15. maí 2024 15:17
Base parking gjaldþrota Bílastæðaþjónustan Base Parking á Keflavíkurflugvelli var úrskurðuð gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Vefsíðu hennar hefur verið lokað, rúmum tveimur vikum eftir að nafni félagsins var breytt í Siglt í strand ehf. Fyrirtækið hefur ítrekað ratað í fréttir vegna óánægju viðskiptavina með þjónustuna. Viðskipti innlent 15. maí 2024 14:29
Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Flugvél Icelandair sem lögð var af stað til Glasgow í Skotlandi þurfti að snúa við skömmu eftir brottför. Vélin tók á loft rétt fyrir hálf ellefu í morgun en upp úr ellefu barst boðun um vélarvanda og óskað var eftir því að vélinni yrði snúið við. Innlent 15. maí 2024 12:25
Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur rofið ákvæði í risasátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna og gæti því átt yfir höfði sér refsimál. Viðskipti erlent 14. maí 2024 23:36
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. Erlent 14. maí 2024 22:22
Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm 6. maí síðastliðinn var flugáhöfnum hollenska flugfélagins KLM heimilt að klæðast strigaskóm í stað hæla- og fínum leðurskóm við störf sín í háloftunum. Félagið segir breytinguna stuðla að vellíðan og afköstum starfsmanna í takt við tímann. Tíska og hönnun 14. maí 2024 14:22
„Hvar er Gordon Gekko?“ er spurt í hagstæðu verðmati fyrir Icelandair Spákaupmenn virðast hafa yfirgefið Icelandair. Gengi flugfélagsins hefur helmingast á nokkrum mánuðum, óháð undirliggjandi verðmætum, segir í hlutabréfagreiningu en Icelandair er þar verðmetið langt yfir markaðsvirði. Íslenskur hlutabréfamarkaður er óskilvirkur um þessar mundir sem endurspeglist best með fasteignafélögin þar sem markaðsverð er langt undir varlega metnu bókfærðu virði. Fjárfestar virðast verðleggja þau „norður og niður“ rétt eins og Icelandair. Innherji 14. maí 2024 14:09
Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum apríl samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða fimm þúsund færri brottfarir en mældust í apríl í fyrra (-3,5 prósent). Ríflega þriðjungur brottfara voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta. Viðskipti innlent 10. maí 2024 13:23