Telur að Selenskí geti samþykkt að gefa eftir Krímskaga Donald Trump Bandaríkjaforseti segist telja að Volodómír Selenskí Úkraínuforseti geti fallist á að Rússar haldi Krímskaga eftir að friður kemst á í Úkraínu. Erlent 28. apríl 2025 06:48
Framtíðin sé járntjald frá Finnlandi niður að Svartahafi Prófessor og sérfræðingur í málefnum Rússlands segir framtíð öryggismála í Evrópu vera járntjald sem liggi meðfram landamærum Finnlands, Eystrasaltslandanna, Póllandi, Úkraínu og niður að Svartahafi. Hervæðingin í Evrópu muni halda áfram þrátt fyrir að Úkraínustríðinu ljúki. Erlent 27. apríl 2025 15:22
Úkraínskir hermenn séu farnir úr Kúrsk með hjálp Norður-Kóreu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, tilkynnti að rússneski herinn hefði náð að hrekja hermenn Úkraínu úr Kúrskhéraðinu en talsmenn Úkraínu neita staðhæfingu forsetans. Yfirhershöfðingi Rússa staðfesti að norðurkóreskir hermenn taka þátt í stríðinu. Erlent 26. apríl 2025 20:04
Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir Vladimír Pútín, forseta Rússland, ekki vilja ljúka stríðinu sem hófst með innrás Rússa inn í Úkraínu. Trump sakar Pútín um að draga sig á asnaeyrunum Erlent 26. apríl 2025 18:02
Sprengdu upp hús foreldra rússneskrar íþróttastjörnu Hús foreldra rússneska skíðagöngukappans Aleksandr Bolshunov gereyðilagðist í árás Úkraínumanna í nótt. Sport 26. apríl 2025 11:40
Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Donald Trump Bandaríkjaforseti og Volodímír Selenskí Úkraínuforseti áttu korterslangan fund inni í Péturskirkjunni í Páfagarði rétt fyrir útför Frans páfa í morgun. Erlent 26. apríl 2025 10:56
Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa Umtalsverður munur er á tillögum Bandaríkjastjórnar annars vegar og Evrópuríkja og Úkraínu hins vegar að friðarsamkomulagi við Rússland. Tillögur Bandaríkjastjórnar virðast láta meira undan Rússum og vera óljósari um tryggingar fyrir vörnum Úkraínu og hver skuli bæta tjón landsins af innrásinni. Erlent 25. apríl 2025 15:42
Þrír látnir og tugir særðir Úkraínumenn segja að þrír séu látnir hið minnsta í árásum Rússa á landið í nótt sem hafa haldið áfram þrátt fyrir gagnrýni Trumps Bandaríkjaforseta á athæfin í gær. Eitt barn liggur í valnum og tugir eru særðir. Hundrað og þrír drónar voru notaðir við árásir í nótt sem beindust aðallega að borgunum Kharkiv og Pavlohrad þar sem dauðsföllin urðu. Erlent 25. apríl 2025 08:45
„Vladímír, HÆTTU!“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segist mjög óánægður með loftárásir Rússa á Kænugarð í nótt og biður Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að hætta árásunum. Erlent 24. apríl 2025 13:56
Níu látnir eftir eldflaugaárás á Kænugarð Níu eru látnir og rúmlega sjötíu særðir eftir stórfellda eldflaugaárás á Kænugarð sem Rússar gerðu í nótt. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti hefur aflýst fundum sem voru á dagskrá hjá honum í Suður-Afríku og ætlar að halda heim á leið. Erlent 24. apríl 2025 09:11
Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Úkraínumenn segjast ekki ætla að ræða það að gefa landsvæði eftir fyrir frið fyrr en eftir að búið verði að koma á almennu vopnahléi. Þetta gerðu úkraínskir erindrekar Bandaríkjamönnum ljóst í gær og leiddi það til þess að Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Steve Witkoff, sérstakur erindreki Donalds Trump, hættu við að mæta á viðræðufund í Lundúnum í dag. Erlent 23. apríl 2025 15:01
Stuðningur við Úkraínu og Palestínu fer dvínandi Þrátt fyrir að meirihluti þjóðarinnar sé hlynntur því að Ísland styðji Úkraínu í stríðinu við Rússland fer stuðningurinn minnkandi á milli ára. Stuðningur við Palestínu minnkar töluvert milli ára. Innlent 23. apríl 2025 14:41
Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Valdimír Pútín, forseti Rússlands, segir að auka þurfi hergagnaframleiðslu ríkisins enn frekar og undirbúa Rússlandi fyrir frekari stríð í framtíðinni. Hergagnaframleiðsla í Rússlandi rúmlega tvöfaldaðist á síðasta ári en Pútín segir það ekki duga til, því framtíðin nálgist óðfluga. Erlent 23. apríl 2025 13:51
Úkraínufundinum í London frestað Friðarviðræðum sem halda átti í London vegna Úkraínustríðsins í dag var aflýst nú í morgunsárið. Erlent 23. apríl 2025 07:55
Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur stungið upp á því að hann muni stöðva innrás sína í Úkraínu og láta af kröfum sínum til afganga fjögurra héraða í Úkraínu, sem Rússar stjórna ekki að fullu. Þetta segist hann tilbúinn til að gera í skiptum fyrir viðurkenningu Bandaríkjanna á eignarrétti Rússa á Krímskaga, sem var innlimaður ólöglega árið 2014. Erlent 22. apríl 2025 19:55
Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Loftvarnarsírenur ómuðu um Kænugarð og víða í austurhluta Úkraínu snemma í morgun eftir að „páskavopnahlé“ Pútíns Rússlandsforseta lauk formlega. Erlent 21. apríl 2025 08:40
Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra segir vopnahlé sem boðað var milli Rússlands og Úkraínu yfir páskana litlu máli skipta. Ásakanir hafa gengið milli aðila um brot á vopnahléinu. Innlent 20. apríl 2025 14:37
Á fjórða hundrað stórskotaliðsárása á fyrstu nótt vopnahlés Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir að frá því að páskavopnahlé Pútíns Rússlandsforseta tók gildi klukkan sex í gærkvöld og til miðnættis hafi Rússar gert 387 stórskotaliðsárásir, 19 áhlaup og 290 flygildaárásir. Erlent 20. apríl 2025 09:27
Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir enn barist í héruðum Kúrsk og Belgorod og „páskavopnahlé“ Pútín því ekki náð til þeirra. Vladímír Saldo, ríkisstjóri Rússa yfir Kherson-héraði, segir Úkraínumenn ekki heldur hafa virt vopnahléð. Erlent 19. apríl 2025 22:06
Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Utanríkisráðherra segir páskavopnahlé í átökum Rússa við Úkraínu óvænt og jákvætt skref en öllum ákvörðunum Pútín beri að taka með fyrirvara. Eitthvað meira liggi að baki ákvörðuninni en þrá eftir friði. Tortryggnin sé mikil þegar kemur að einræðisherra á borð við Pútín. Innlent 19. apríl 2025 18:59
„Önnur tilraun Pútín til að leika sér að mannslífum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Vladímír Pútín Rússlandsforseta leika sér að mannslífum. Úrkaínuforseti virðist ekki trúa yfirlýsingu Rússaforsetans um „páskavopnahlé.“ Erlent 19. apríl 2025 15:52
Pútín tilkynnir um „páskavopnahlé“ Vladímír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti í dag „páskavopnahlé“ í stríðsátökum þeirra við Úkraínu. Umrætt vopnahlé á að hefjast í kvöld og standa yfir til miðnættis á sunnudag. Erlent 19. apríl 2025 14:23
Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands Með kaupum sínum á rússnesku gasi og olíu um langt árabil fjármögnuðu ríki Evrópusambandsins hernaðaruppbyggingu og síðan hernað Rússlands í Úkraínu. Þetta sagði Josep Borrell, þáverandi utanríkisráðherra sambandsins, í ræðu sem hann flutti 9. marz 2022 á þingi þess. Ríki Evrópusambandsins voru þannig áratugum saman langstærsti kaupandi rússneskrar orku og enn er flutt verulegt magn þarlends gass til sambandsins, bæði beint og óbeint. Skoðun 18. apríl 2025 16:01
Hugleiðingar á páskum Stríðið í Úkraínu er tapað eins og önnur stríð sem háð hafa verið með vopnum, sama hvernig það fer. Hvorki lönd né þjóðir verða unnin með hernaði, ekki fremur að friðsamlegu og varanlega öruggu þjóðskipulagi verði komið á með vopnavaldi. Skoðun 18. apríl 2025 13:03
Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir koma til greina að Bandaríkin hætti aðkomu sinni að friðarviðræðum milli Rússlands og Úkraínu ef vinnunni miðar ekki áfram á næstu dögum. Viðræður hafa staðið yfir í fleiri mánuði en ekki hefur tekist að binda enda á átökin. Erlent 18. apríl 2025 10:54
Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Stjórnvöld í Úkraínu og Bandaríkjunum hafa undirritað viljayfirlýsingu um frágang á samningi um efnahagslega samvinnu og stofnun fjárfestingasjóðs til að fjármagna enduruppbyggingu í Úkraínu. Erlent 18. apríl 2025 09:23
Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Utanríkisráðherra segir vonbrigði að kraftlyftingakappinn Hafþór Júlíus Björnsson hafi ákveðið að taka þátt á kraftlyftingamóti í Síberíu í Rússlandi um páskana. Hafþór Júlíus er einn af sjö erlendum keppendum á mótinu sem kallast Siberian Pro og fer fram 19. og 20. apríl. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, segir íþróttafólki frjálst að taka þátt í þeim keppnum sem það kýs, en þykir þátttakan umhugsunarverð í ljósi stríðsreksturs Rússa í Úkraínu. Innlent 17. apríl 2025 16:24
Umsóknum um alþjóðlega vernd fækkar verulega Umsóknum um alþjóðlega vernd hefur fækkað verulega frá því í fyrra. Tilkynningum vegna gruns um mansal hefur farið fjölgandi síðustu þrjú ár. Þetta, og fleira, kemur fram í nýju fréttabréfi ríkislögreglustjóra um stöðuna á landamærunum. Einnig er fjallað um komur skemmtiferðaskipa og fiskiskipa til landsins í fréttabréfinu. Innlent 15. apríl 2025 10:51
Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Volódómír Selenskí Úkraínuforseti sé ábyrgur fyrir stríðsástandinu í landinu. Erlent 15. apríl 2025 06:59
Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Evrópskir leiðtogar hafa fordæmt mannskæða árás Rússa á Súmí í Úkraínu í gær en Bandaríkjaforseti segir Rússa hafa gert mistök. Á fjórða tug almennra borgara fórst í árásinni. Erlent 14. apríl 2025 22:02