Íran

Íran

Höfuðborg: Teheran. Mannfjöldi: 89,6 milljónir (2025). Flatarmál: 1.648.195 ferkílómetrar.

Fréttamynd

„Er ekki alltaf ger­legt við þessar kring­um­stæður“

Á fjórða tug Íslendinga hefur komið sér frá hættusvæðum vegna átakanna í Miðausturlöndum eftir ýmsum leiðum. Yfirmaður borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins segir að unnið sé dag og nótt við að aðstoða þá rúmlega 180 Íslendinga sem hafi tilkynnt viðveru á svæðinu. 

Innlent
Fréttamynd

Leita til Úkraínu­manna vegna íranskra sjálfsprengidróna

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir ráðamenn í Mið-Austurlöndum, Evrópu og Bandaríkjunum hafa leitað ráða hjá Úkraínumönnum um hvernig best sé að stöðva íranska sjálfsprengidróna. Íranar hafa notað gífurlegan fjölda slíkra dróna til árása á nágranna sína síðustu daga sem hafa notað mjög dýr flugskeyti til að stöðva þá.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að vernda líf á­hafnar annars íransks skips

Yfirvöld í Srí Lanka segjast reyna að „varðveita“ líf áhafnar annars íransks skips sem talið er í efnahagslögsögu ríkisins. Bandaríkjamenn sökktu freigátu undan ströndum Srí Lanka á dögunum en ráðamenn í Íran segja að því muni Bandaríkjamenn sjá eftir. Óljóst er hvort þetta skip sé herskip eða ekki.

Erlent
Fréttamynd

Sjá sér með engu móti fært að ná björgunar­flugi

Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu.

Innlent
Fréttamynd

Sökktu skipi með tundur­skeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði

Bandaríkjaher sökkti írönsku freigátunni Iris Dena með tundurskeyti, sem skotið var úr kafbáti, á Indlandshafi í morgun. Að sögn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna er þetta í fyrsta sinn frá lokum seinni heimsstyrjaldar sem Bandaríkjamenn sökkva skipi óvinveitts ríkis með tundurskeyti.

Erlent
Fréttamynd

Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hag­kerfinu

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hag­kerfið allt í hættu

„Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vaktin: Á­tökin breiðast enn út

Átökin í Mið-Austurlöndum halda áfram að breiða úr sér. Bandaríkjamenn og Ísraelar varpa enn sprengjum á skotmörk í Íran og Íranir halda áfram að svara fyrir sig með dróna- og eldflaugaárásum á nágrannaríki sín. Hezbollah lýsti í gær yfir stríði við Ísrael og gerðu Ísraelar nýja innrás í Líbanon í morgun. 

Erlent
Fréttamynd

Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein

Guðlaug Sigfúsdóttir hefur verið búsett í Barein í Miðausturlöndum í fjórtán ár. Hún segist aldrei hafa átt von á því að búa við sprengjuárásir, landið sé svo friðsælt. Fjölskyldan hefur lítið sofið fyrir sprengjum og sírenum síðustu nætur og heldur sig bara heima.

Innlent
Fréttamynd

Skipta al­þjóða­lög máli eða ekki?

Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran um helgina voru skýlaust brot á alþjóðalögum en hvorki íslenskir né evrópskir ráðamenn hafa treyst sér til þess að fordæma þær frekar en mannrán á forseta Venesúela í vetur. Prófessor í stjórnmálafræði ræðir við Vísi um hvort alþjóðalög skipti máli eða ekki.

Innlent
Fréttamynd

Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengju­á­rás

Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag.

Innlent
Fréttamynd

Vaktin: Sprengjum rignir enn

Bandaríkjamenn og Ísraelar gera enn árásir á Írana, sem svara fyrir sig með eigin eldflaugum og drónum á nágrannaríki sín. Árásirnar hófust á laugardaginn og verið nánast linnulausar síðan þá. Ísraelar hafa einnig gert árásir á skotmörk í Líbanon og segja þær beinast gegn bandamönnum Íran í Hezbollah, sem skutu eldflaugum að Ísrael í nótt.

Erlent
Fréttamynd

Leggur loka­hönd á þings­á­lyktun um þjóðar­at­kvæða­greiðslu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra leggur nú lokahönd á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um samningaviðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands. Hún segir stríðið í Íran geta haft veruleg áhrif á Íslendinga og að borgaraþjónustan aðstoði nú fjölda Íslendinga erlendis vegna stríðsins. 

Innlent
Fréttamynd

Hundruð þúsunda far­þega stranda­glópar vegna stríðs í Íran

Hundruðum flugferða hefur verið aflýst í Miðausturlöndum og hundruð þúsunda farþega eru strandaglópar og helstu flugstöðvar í Mið-Austurlöndum eru lokaðar vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Íslendingar eru víða í vandræðum í Asíu og Miðausturlöndum vegna lokana.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að grípa til hernaðar­að­gerða gegn Íran

Frakkar, Bretar og Þjóðverjar hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran. Það kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga ríkjanna þar sem þeir segja handahófskenndar eldflaugaárásir Írana á nágrannalönd ógna öryggi borgara sinna og bandamanna.

Erlent