Þeir ríku verða ríkari … „Mun þessi vinningur hafa merkjanleg áhrif á líf mitt? Nei,“ sagði Keenan Altunis, 33 ára, þegar hann tók við fyrstu greiðslunni af „Ein milljón á ári“-vinningi ríkishappdrættis New York. Altunis, sem vinnur hjá fjárfestingarbanka í London og er margmilljónamæringur, mun héðan í frá þiggja eina milljón í viðbót, á ári. Viðskipti innlent 1. nóvember 2008 00:01
Bankahólfið: Hann er sökudólgurinn! Bandaríska vikuritið Newsweek fer ekki í grafgötur með það hverjum megi kenna um vandamálin í alþjóðlegu efnahagslífi. Blaðinu dettur heldur ekki í hug að bíða þar til öldurnar hefur lægt og byrja þá að leita sökudólgsins, líkt og íslenskir stjórnmálamenn hafa ítrekað hamrað á síðustu daga. Viðskipti innlent 29. október 2008 05:00
Engar skattaívilnanir vegna hlutabréfakaupa „Næstum því hver einasta fjölskylda í landinu hefur tapað fjármunum upp á síðkastið,“ segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri. Þegar svo sé verði jafnt yfir alla að ganga. Því verði ekki veittar sérstakar ívilnanir vegna taps á hlutabréfakaupum og innlausn á kaupréttarsamningum í fyrirtækjum sem séu farin í þrot. Viðskipti innlent 29. október 2008 00:01
UT gefinn of lítill gaumur „Upplýsingatækninni hefur verið gefinn allt of lítill gaumur síðan netbólan sprakk og menn einblínt á önnur tækifæri meðan fjármálageirinn óx,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi. Hann segir mikil útflutningstækifæri í upplýsingatækni. Viðskipti innlent 29. október 2008 00:01
Sameiningin átti að afstýra algjöru hruni Geir H. Haarde, forsætisráherra, var kynnt ítarleg áætlun að kvöldi 29. september, um hvernig afstýra mætti kerfisfalli íslenskra banka, með þátttöku ríkisins í sameiningu banka. Viðskipti innlent 29. október 2008 00:01
Stjórnvöld fá tillögur að gjöf „Við ætlum að afhenda stjórnvöldum pakka af tillögum með slaufu,“ segir Björk Guðmundsdóttir söngkona. Henni er full alvara Viðskipti innlent 29. október 2008 00:01
Bankahólfið: Fá peninginn án flotaaðstoðar „Hrun íslenska hagkerfisins hefur verið ófögur sjón og hið versta er að breskir sparifjáreigendur virðast hafa tapað á öllu saman," sagði nýverið í sunnudagsblaði The Times. Blaðið benti þó á að fátt væri svo með öllu illt að ekki boðaði nokkuð gott og kvað Breta geta „endurheimt eitthvað af peningum sínum og það án þess að senda flotann á vettvang". Viðskipti innlent 22. október 2008 06:00
Líkin hrannast upp í Bretlandi Lík hrannast nú upp í líkhúsum í Bretlandi, en fjármálakreppan þar í landi hefur gert að verkum að aðstandendum gengur illa að selja eignir úr dánarbúum til að greiða fyrir útför ættingja sinna. Hið opinbera veitir nærri 900 evra styrk til greftrunar, en seinagangur og skriffinnska í breska ríkisbákninu gerir að verkum að greiðslur berast seint. Viðskipti innlent 22. október 2008 00:01
Hefðbundinn matur í sókn Kaupmenn þykjast merkja breytta hegðun landsmanna í matarinnkaupum sökum efnahagslægðarinnar sem nú ríki. Á þessu vekur Bændablaðið athygli í forsíðufrétt þar sem rætt er við Pétur Allan Guðmundsson, kaupmann í Melabúðinni. Hann segir samdrátt í margvíslegri munaðarvöru, en kveðst þó ekki merkja að fólk sé almennt að færa sig frá innfluttum varningi í innlendan „þó megi sjá mjög ákveðna sókn í hefðbundinn íslenskan mat – heimilismatinn – eins og slátur, svið og súpukjötið“, hefur Bændablaðið eftir Pétri. Viðskipti innlent 22. október 2008 00:01
Vildi að við færum til sjóðsins í sumar „Ísland horfist í augu við hugsanlega og líklega óþarfa fjármála- og efnahagskreppu,“ segir í inngangsorðum skýrslu Willems Buiter, prófessors við London School of Economics, sem kynnt var í þröngum hópi manna hér á landi 11. júlí. Viðskipti innlent 17. október 2008 00:01
Ráðherra líst vel á sölu á Kaupþingi Viðskiptaráðherra ánægður með hugmyndir lífeyrissjóða um að kaupa starfsemi og rekstur Kaupþings. Stífir fundir. Viðskipti innlent 15. október 2008 18:00
Botninn dottinn úr í kauphöll New York Hlutabréfaverð hrundi í kauphöllinni í New York strax eftir opnun. Dow Jones vísitalan féll um 10 prósent fyrstu sjö mínútur viðskipta. Viðskipti erlent 10. október 2008 13:35
Bílaframleiðendur fá 25 milljarða dollara ríkisábyrgð Bandaríkjaþing hefur samþykkt að gangast í ábyrgð fyrir 25 milljarða dollara lántöku stóru bílaframleiðendanna í Detroit. Viðskipti erlent 29. september 2008 16:37
Seðlabanki Bandaríkjanna tvöfaldar gjaldeyrisskiptasamninga Seðlabanki Bandaríkjanna mun bæta 330 milljörðum dollara við þá gjaldeyrisskiptasamninga sem þegar eru fyrir hendi. Viðskipti erlent 29. september 2008 16:02
Athugasemd vegna túlkunar á orðum Tryggva Þórs Herbertssonar Tryggvi Þór Herbertsson, efnahagsráðgjafi forsætisráðherra tekur fram að orð sín hafi ekki verið rétt túlkuð í inngangi fréttar sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Viðskipti innlent 26. september 2008 15:18
XL Leisure hafnaði endurfjármögnun „XL fékk tilboð í endurfjármögnun um mitt síðasta sumar, en því var ekki tekið af því að menn töldu að betri kjör gætu fengist annars staðar. Skömmu síðar lokuðust allir lánsfjármagnsmarkaðir,“ segir Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður XL Leisure Group og fyrrverandi stjórnarformaður Eimskips. Viðskipti innlent 17. september 2008 00:01
Aðgerðir ráðast af skynsemi og nauðsyn Við lifum á athyglisverðum tímum, segir einhvers staðar, og víst er að það á vel við um síðustu daga, vikur og mánuði á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Nýir kaflar í heimssögu viðskiptanna eru ritaðir á hverjum degi, stórar og öflugar stofnanir riða til falls, aðrar hefur þegar þrotið örendi. Skoðun 17. september 2008 00:01
„Persónulegar ástæður“ „Björgólfur Guðmundsson hefur aldrei komið nálægt flugrekstri,“ segir Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, í samtali við Markaðinn. Ásgeir bendir á að Björgólfur Guðmundsson hafi verið stór hluthafi í Eimskip frá árinu 2003 og til þess dags að félagið var selt Avion Group. Viðskipti innlent 17. september 2008 00:01
Nýsislán tekin að falla í gjalddaga Skuldbindingar Nýsis eru byrjaðar að falla í gjalddaga en fjárhagslegri endurskipulagningu er enn ólokið. Viðskipti innlent 17. september 2008 00:01
Sagan á bakvið Lehman Brothers Með gjaldþroti Lehman Brothers hverfur eitt sögufrægasta fyrirtæki Wall Street af sjónarsviðinu. Það var stofnað 1850 í Montgomery í Alabama og fékkst í fyrstu aðallega við bómullarviðskipti. Viðskipti erlent 17. september 2008 00:01
Fjöldi olíuborpalla ónýtir eftir yfirreið Ike Útlit er fyrir að fellibylurinn Ike hafi eyðilagt að minnsta kosti tíu olíuborpalla og fjölda olíu- og gasleiðslur í Mexíkóflóa. Viðskipti erlent 15. september 2008 10:59
Paulson þvertekur fyrir að til standi að bjarga Lehman Henry Paulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir ekki koma til greina að skattgreiðendur komi Lehman til bjargar. Viðskipti erlent 12. september 2008 14:08
Kaupviðræður truflandi fyrir rekstur Woolworths „Það eru tækifæri í rekstrinum,“ segir Steve Johnson, nýr forstjóri bresku verslanakeðjunnar Woolworths, sem tók við um mánaðamótin. Hann segir mögulegt að taka verslunina í gegn. Það verði ekki létt verk. Viðskipti innlent 4. september 2008 00:01
Dollar sjaldan sterkari „Efnahagslífið í Bandaríkjunum gaf fyrr eftir en á evrusvæðinu. Það skýrir að hluta styrkingu Bandaríkjadals nú,“ segir Tómas Brynjólfsson, sérfræðingur hjá greiningardeild Landsbankans. Viðskipti erlent 4. september 2008 00:01
Búinn að fá nóg „Ég er búinn að fá nóg. Það hafa verið miklir erfiðleikar í sumar,“ segir Gísli Kjartansson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Mýrasýslu. Aðspurður hvað taki við segist Gísli ætla á eftirlaun, enda verði hann brátt 65 ára gamall. Viðskipti innlent 4. september 2008 00:01
Opnar vörumerkjasafnið logosafn.is á netinu „Að því sem ég best kemst að er þessi þjónusta ekki í boði á Íslandi. Einkaleyfastofa heldur utan um skráð vörumerki, en þeir bjóða ekki upp á notendavænan eða aðgengilegan gagnagrunn,“ segir Bryndís Óskarsdóttir, stofnandi og eigandi Logosafnsins sem hóf starfsemi sína fyrir helgi. Viðskipti innlent 4. september 2008 00:01
Útilokar ekki að Versacold verði selt í heilu lagi í haust Stjórnarformaður Eimskips segir unnið að sölu eigna til að rétta við eiginfjárhlutfall félagsins. Hann útilokar ekki að Versacold Atlas verði selt í heilu lagi, fáist gott tilboð. Viðskipti innlent 4. september 2008 00:01
Tveir bítast um Lehman Brothers Reikna má með baráttu um bandaríska fjárfestingarbankann Lehman Brothers. Orðrómur hefur verið á lofti um að hann kunni að feta í fótspor fjárfestingarbankans Bear Stearns, sem JP Morgan og bandaríski seðlabankinn björguðu í sameiningu frá gjaldþroti í vor. Bréf bankans hafa fallið um 75 prósent frá áramótum. Viðskipti erlent 4. september 2008 00:01
Ekki múkk um kjörin „Við höfum ekki gefið það upp. Bæði af tillitssemi við þá sem eru að lána okkur og eins teljum við skynsamlegt að hafa það fyrir okkur,“ sagði Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, í samtali við Markaðinn, aðspurður um kjör á nýju erlendu láni íslenska ríkisins. Viðskipti innlent 4. september 2008 00:01
Capacent kaupir sænskt ráðgjafarfyrirtæki Capacent hefur gengið frá samningi um kaup á meirihluta í sænska félaginu Capto Financial Consulting. Höfuðstöðvar Capto eru í Stokkhólmi, en félagið, sem hefur 60 starfsmenn, er einnig með skrifstofu í Helsinki og útstöðvar í Kaupmannahöfn og Ósló. Viðskipti innlent 4. september 2008 00:01