Skotið á rúður í fjölbýlishúsum í Kópavogi Lögreglan er nú með til rannsóknar tvö tilvik þar sem skotið var á þrjár rúður í tveimur íbúðum í fjölbýlishúsum í Kórahverfinu í Kópavogi að næturlagi fyrr í vikunni. Innlent 2. desember 2021 11:38
Dæmdur fyrir árás og hótanir með sveðju Héraðsdómur Austurlands dæmdi nýverið mann í þriggja mánaða fangelsi, sem er skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir minniháttar líkamsárás, hótanir og vopnalagabrot fyrir að ráðast á og ógna manni með sveðju. Innlent 1. desember 2021 21:58
Ekki vera þessi gaur Ofbeldi gegn konum og kynferðislegt ofbeldi er rótgróið. Fyrir tilstilli kvennahreyfingarinnar, þolenda og öflugra baráttukvenna hefur ljósi verið varpað á þennan alvarlega og kerfisbunda vanda. Skoðun 1. desember 2021 16:00
Telja ekki að sprengjan tengist sendiherrabústað Bandaríkjanna Ekkert hefur komið fram sem bendir til að sprengja sem fannst í ruslagámi við Mánatún í gær tengist sendiráði erlends ríkis, að sögn lögreglu. Sendiherrabústaður Bandaríkjanna er í næsta húsi við gáminn. Innlent 1. desember 2021 11:56
Fannst heil á húfi eftir heila nótt úti í kuldanum Umfangsmikil leit að konu á áttræðisaldri sem farið hafði að heiman frá sér á Akureyri í nótt bar árangur. Konan, sem er Alzheimer-sjúklingur, hafði þá verið úti í kuldanum í um sjö tíma. Innlent 1. desember 2021 10:09
Vísuðu óvelkomnum manni út af heimili í höfuðborginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi til að vísa óvelkomnum manni út af heimili í póstnúmerinu 104 og nokkru síðar var maður handtekinn í sama hverfi vegna líkamsárásar. Innlent 1. desember 2021 06:26
Heimatilbúin sprengja fannst í Mánatúni Torkennilegur hlutur sem fannst í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík var heimatilbúin sprengja samkvæmt heimildum Vísis. Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu þar í nótt. Innlent 30. nóvember 2021 23:00
Eltu smyglara á fund Íslendings og fundu verulegt magn af fíkniefnum Lögreglan á Suðurnesjum handtók þrennt í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl í síðasta mánuði, eftir að tvær konur reyndu að smygla í gegnum Keflavíkurflugvöll töluverðu magni af metamfetamíni og meira en 6.000 töflum af hörðum ópíóðum. Innlent 30. nóvember 2021 19:22
Þrír handteknir í aðgerðum sérsveitar í nótt Þrír voru handteknir í aðgerðum sérsveitar lögreglu í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. Innlent 30. nóvember 2021 15:27
Talinn hafa axlarbrotnað er lítil rúta valt Talið er einn farþegi í lítilli rútu hafi beinbrotnað er rútan rann út af veginum og valt á þjóðvegi 1 skammt frá Vík í Mýrdal. Innlent 30. nóvember 2021 15:15
Ökumaður stöðvaður með snjóþotu í eftirdragi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann um klukkan 1 í nótt sem var staðinn að því að draga snjóþotu sem ungmenni sat á. Var málið tilkynnt foreldrum og barnavernd. Innlent 30. nóvember 2021 06:31
Ók á umferðarskilti og hafði í hótunum við lögreglumenn Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning rétt fyrir miðnætti í nótt um að bifreið hefði verið ekið á umferðarskilti í Hlíðahverfi. Í tilkynningunni kom fram að ökumaðurinn hefði farið gangandi frá vettvangi. Innlent 29. nóvember 2021 06:14
Enn ekið á gangandi og fólk á rafhlaupahjóli Ekið var á gangandi vegfaranda í Hlíðarbergi í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Töluvert var um umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu í dag og fólk flutt á slysadeild. Þetta kemur fram í skeyti lögreglu til fjölmiðla í kvöld. Innlent 28. nóvember 2021 23:11
Sérsveitin aðstoðaði vegna heimilisofbeldis í Grafarvogi Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í útkalli vegna heimilisofbeldis í Grafarvogi í gærkvöldi. Meintur gerandi yfirgaf staðinn áður en lögregla kom á staðinn og er eftirlýstur. Innlent 28. nóvember 2021 10:44
Töluvert um akstur undir áhrifum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð í ströngu í gærkvöldi og í nótt við að hafa afskipti af ökumönnum sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Innlent 28. nóvember 2021 07:18
Ekkert reyndist að óttast í Leifsstöð Nokkur viðbúnaður lögreglu var við Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrr í kvöld þar sem ferðataska hafði verið skilin eftir. Innlent 27. nóvember 2021 19:13
„Það virðist sem fólk sjái ekki hvert annað“ Of mörg alvarleg umferðarslys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum, að mati yfirlögregluþjóns. Skammdegið skapi hættuástand. Innlent 27. nóvember 2021 13:44
Óku manni heim sem stóð öskrandi úti á götu Tveir voru handteknir þegar tilkynnt var um hópslagsmál í póstnúmerinu 108 í gærkvöldi. Þá var manni í annarlegu ástandi ekið heim af lögreglu eftir að tilkynning barst um að hann væri að öskra úti á götu í miðborginni. Innlent 26. nóvember 2021 06:16
Kona lést í umferðarslysi í Reykjavík í morgun Kona lést í umferðarslysi á gatnamótum Gnoðavogs og Skeiðarvogs á níunda tímanum í morgun. Málið er til rannsóknar hjá lögreglu og Rannsóknarnefnd samgönguslysa. Innlent 25. nóvember 2021 14:33
Jón Þór kærir Inga Tryggvason til lögreglu Jón Þór Ólafsson, umboðsmaður framboðslista Pírata í nýafstöðnum kosningum til Alþingis, hefur kært Inga Tryggvason, oddvita yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, til lögreglu. Þetta kemur fram í pistli sem Jón Þór birtir á Vísi sem kærir Inga fyrir mögulegt kosningasvindl. Innlent 24. nóvember 2021 13:09
Krefjast farbanns yfir lækninum: Fékk nýverið endurnýjað takmarkað starfsleyfi Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á farbann yfir fyrrverandi lækni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í starfi, sem hafi leitt til andláts að minnsta kosti eins sjúklings, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 24. nóvember 2021 11:50
Lögregla rannsakar sex andlát og mál fimm annarra sjúklinga á HSS Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú andlát sex sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sem hún telur mögulegt að hafi borið að með saknæmum hætti. Mál fimm annarra sjúklinga eru einnig í skoðun. Innlent 24. nóvember 2021 10:32
Fóru um borð í flugvélina án leyfis og fengu lögreglufylgd út Lögreglan á Suðurnesjum fór í kvöld um borð í flugvél ungverska flugfélagsins Wizz Air á Keflavíkurflugvelli og fjarlægði þrjá menn úr vélinni. Mennirnir höfðu farið í vélina þrátt fyrir að hafa verið meinaður aðgangur um borð af áhöfn hennar. Innlent 23. nóvember 2021 21:18
431 sóttvarnabrot skráð en sektað í 46 prósent tilvika 475 einstaklingar og 73 fyrirtæki koma við sögu í 431 sóttvarnabroti sem lögregla hefur skráð frá 1. mars 2020. Málin varða meðal annars brot á reglum um fjöldatakmarkanir og brot á reglum um lokun skemmtistaða. Innlent 23. nóvember 2021 06:34
Rannsaka hvort reynt hafi verið að keyra á börn í Garðabæ Nokkrar kærur hafa borist lögreglu eftir að hópur krakka safnaðist saman fyrir utan heimili í Garðabæ á laugardagskvöld og hafði í hótunum við heimilisfólkið. Heimilisfaðirinn hefur einnig verið kærður en hluti krakkanna sakar hann um að hafa reynt að keyra á sig. Innlent 22. nóvember 2021 19:32
Lögreglu borist kvartanir vegna vopnaðra veiðimanna á fjórhjólum Lögreglunni á Vestfjörðum hafa borist kvartanir vegna veiðimanna sem sótt hafi veiðisvæði innan umdæmisins á fjórhjólum. Umræddir veiðimenn hafi verið með skotvopn um hönd á hjólunum, sem brjóti í bága við lög. Innlent 22. nóvember 2021 19:21
Byssumaðurinn á Egilsstöðum ákærður Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni, sem skaut á hús í Dalseli á Egilsstöðum í ágúst. Maðurinn var skotinn af lögreglu og fluttur á Landspítala þar sem hann lá á gjörgæslu í nokkurn tíma. Hann var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 22. nóvember 2021 11:03
Einn handtekinn grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng Maður á þrítugsaldri hefur verið handtekinn í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af höfuðborg Svíþjóðar, Stokkhólmi, í dag. Hann er grunaður um að hafa skotið 14 ára dreng í gær. Erlent 21. nóvember 2021 23:31
Hópuðust saman við heimili samnemanda og ætluðu að taka lögin í sínar hendur Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að heimili í Garðabæ í gærkvöldi en stór hópur krakka hafði safnast saman fyrir utan það og haft í hótunum við heimilisfólkið. Aðstoðaryfirlögregluþjónn gerir ráð fyrir að heimilisfólkið leggi inn kærur á morgun og að málið verði í framhaldi unnið í samstarfi við barnaverndaryfirvöld, enda séu krakkarnir ósakhæfir. Innlent 21. nóvember 2021 19:07
Ráku um fimmtíu gesti út rétt fyrir eitt í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af starfsemi veitingastaðar í miðborg Reykjavíkur í nótt vegna brots á sóttvarnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar. Innlent 21. nóvember 2021 07:28