Sáu skefti sem reyndist vera af gasskammbyssu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöld eða nótt tilkynnt um einstakling sem hafði valdið eignaspjöllum á hóteli í miðbæ Reykjavíkur. Í dagbók lögreglu segir að þegar laganna verðir hafi komið á vettvang hafi hópur verið í kringum einstaklinginn, og þá hafi verið nokkur æsingur. Innlent 7. september 2024 07:33
Maður fluttur á slysadeild eftir að pítsa brann Lögreglan og slökkvilið var kallað til í dag eftir að tilkynnt var um eld í kjallaraíbúð í miðborg Reykjavíkur. Enginn eldur reyndist á svæðinu en mikill reykur kom frá ofni sem hafði gleymst að slökkva á við pítsubakstur. Innlent 6. september 2024 17:29
Reyna enn að ná í mann sem er grunaður um að sviðsetja bílslys Lögbirtingablaðið hefur í annað skipti birt fyrirkall á hendur manni sem er talinn vera á Ítalíu vegna ákæru á hendur honum. Maðurinn er ákærður, ásamt öðrum manni sem er með skráð lögheimili í Reykjavík, um að setja á svið umferðarslys á gatnamótum Breiðhellu og Gjáhellu í Hafnarfirði þann 5. apríl 2021. Innlent 6. september 2024 11:47
Í gæsluvarðhaldi þangað til í nóvember Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um áframhaldandi gæsluvarðhald mannsins sem er grunaður um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 6. september 2024 11:21
Komu til skila að hegðunin væri ekki líðandi Karlmaður sem hefur vanið komur sínar að leikvelli við Gerðasafnið í Kópavogi var færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær. Málið er til rannsóknar. Innlent 6. september 2024 11:14
Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE lokið Rannsókn lögreglu á áhöfn Hugins VE í Vestmannaeyjum er nú lokið. Karl Gauti Hjaltason lögreglustjóri í Vestmannaeyjum segir lögreglu hafa lokið rannsókn sinni nýlega, í lok sumars, og hafi þá sent málið til ákærusviðs. Hann á von á ákvörðun þeirra á næstu vikum. Innlent 6. september 2024 09:04
Átta réðust á einn og höfðu af honum gleraugun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti meðal annars fimm útköllum vegna líkamsárása á vaktinni i gærkvöldi og nótt og þremur vegna heimilisofbeldis. Innlent 6. september 2024 06:24
Reyna að ná sambandi við sendanda neyðarkallsins Búist er við því að varðskipið Þór komi að Hlöðuvík á Hornströndum á hverri stundu nú en óljóst neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum þaðan um hádegisbil. Innlent 5. september 2024 20:17
Þór á leið í Hornvík vegna óljóss neyðarkalls Neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum um hádegisbil, en ekki er ljóst hvaðan það barst. Óskað var eftir aðstoð áhafnar á varðskipinu Þór, sem verður komið á vettvang í kvöld. Innlent 5. september 2024 16:13
Kennir börnum að verjast stunguárás án leyfis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræðir nú við mann sem hefur kennt börnum í Kópavogi að verjast hnífaárás og að nota kylfur og sverð. Maðurinn birti myndbönd af sjálfum sér í gær og í dag með kylfur og hnífa á leikvelli við ærslabelg við Gerðasafn í Kópavogi. Innlent 5. september 2024 14:00
Munu fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald Lögreglan á Austurlandi mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið hjónum að bana í Neskaupstað í ágúst. Innlent 5. september 2024 13:48
Á þriðja hundrað kíló tekin á landamærunum Ríflega 230 kíló, tæpir tíu lítrar og 40 þúsund töflur af ólöglegum fíkniefnum hafa verið haldlögð á landamærum Íslands það sem af er þessu ári. Alls hefur verið lagt hald á 21 tegund fíkniefna, þar á meðal rúmlega 22,5 kíló af kókaíni, yfir 140 kíló af marijúana og tæplega nítján þúsund töflur af MDMA. Í heildina er um að ræða nokkuð meira magn fíkniefna en haldlagt var á sama tímabili í fyrra, að undantöldum fíkniefnum í vökvaformi sem haldlögð voru í meira magni á síðasta ári. Innlent 5. september 2024 07:03
Sérsveitin kölluð til í Brautarholti Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut liðsinnis sérsveitar ríkislögreglustjóra snemma í morgun við lögregluaðgerð í Brautarholti í Reykjavík. Innlent 4. september 2024 18:53
Flúðu heimili sitt eftir líkamsárás og umsátur Nýbakaðir foreldrar þurftu í vikunni að flýja heimili sitt á Akureyri í kjölfar líkamsárásar og umsáturs um helgina. Þau leita vitna að árásinni sem átti sér stað á föstudagskvöld við Íþróttahöllina á Akureyri. Þau hyggjast leggja fram kæru vegna árásarinnar og umsátursins í dag. Innlent 4. september 2024 17:02
Hetja sem muni bjarga mörgum mannslífum í framtíðinni Bryndís Klara Birgisdóttir hafði hlýja nærveru, var augasteinn foreldra sinna og ömmu- og afabarn af bestu gerð. Góð vinkona, sönn og heil. Innlent 4. september 2024 15:09
Sagður hafa ógnað ungum stúlkum með hníf í Seljahverfinu Grímuklæddur karlmaður á fertugsaldri er sagður hafa ógnað stúlkum á aldrinum tíu til fjórtán ára við leikvöll í Seljahverfinu í gærkvöldi. Málið er á borði lögreglu. Innlent 4. september 2024 12:15
Skólabörn óttuðust mann sem sofnaði á bekk í almenningsgarði Lögreglan á Vestfjörðum kom manni í andlegu ójafnvægi undir læknishendur í gær eftir að tilkynnt var um veru hans í almenningsgarði á Ísafirði. Hann hafði legið sofandi á bekk í garðinum yfir nóttina og þegar kennsla hófst í grunnskóla bæjarins hafði maðurinn vaknað og nemendur orðið hræddir við hann. Innlent 4. september 2024 12:10
„Við þurfum ekki að vera með hníf hérna í höfuðborginni“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir vopnaburð hafa aukist og samhliða því stunguárásis. Hann segir það orðið afar algengt að lögreglan leggi hald á hnífa í útköllum sem ekki tengist vopnaburði. Flestir sem beri hnífa beiti þeim ekki en það sé samt líklegra að einhver beiti hníf ef hann er með hníf á sér. Hann segir lausnina við vandamálinu ekki að refsa bara. Það verði að finna fleiri leiðir. Innlent 4. september 2024 10:49
Yfir áttatíu milljónir í reiðufé haldlagðar á landamærum Tollayfirvöld hafa það sem af er þessu ári lagt hald á tæplega 82,5 milljónir í reiðufé á landamærum Íslands. Það er meira fjármagn en haldlagt var á landamærum allt árið í fyrra þegar lagt var hald á rúmar 75 milljónir króna. Innlent 4. september 2024 07:03
Einn handtekinn í tengslum við líkamsárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi eða nótt mann í tengslum við líkamsárás í póstnúmerinu 104. Þolandi árásarinnar er sagður hafa hlotið minniháttar meiðsli. Innlent 4. september 2024 06:18
Fresta tónlistarhátíð eftir tilmæli frá lögreglu Stíflunni, tónlistarhátíð sem átti að fara fram í Árbæ um helgina, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Einn skipuleggjenda segir að ákveðið hafi verið að fresta Stíflunni eftir tilmæli frá lögreglu. Innlent 3. september 2024 22:07
Málið runnið undan rifjum „afdankaðrar ríkisstofnunar“ Forsvarsmenn netverslunarinnar Sante, sem höndlar með áfengi, hafa engar áhyggjur af því að mál tveggja áfengisnetverslanna séu komin á borð ákærusviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 3. september 2024 16:54
„Ég ætla ekki að fara með þér niður í bæ ef þú ert með hníf“ Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir mikilvægt að skólasamfélag, heimilin og allt samfélagið komi að þjóðarátaki gegn vopnaburði og ofbeldi meðal ungmenna. Jafningjastuðningu sé einnig mikilvægur. Besta forvörnin fyrir ungmennin sé þó alltaf að ganga ekki með vopn á sér. Afleiðingarnar af því geti verið svo alvarlegar. Innlent 3. september 2024 15:01
Börnin sem borðuðu kannabis-bangsana enn á spítala Börnin sem flutt voru á slysadeild eftir að hafa borðað gúmmíbangsa með THC eða kannabis eru enn á spítala en ekki talin í lífshættu. Börnin eru yngri en tíu ára gömul. Valtýr Stefánsson Thors yfirlæknir barnalækninga við Landspítalann segir þau vita hvernig börnin komust í bangsana. Hann á von á því að börnin verði útskrifuð fljótlega. Innlent 3. september 2024 14:34
Stuðlar orðnir að gæsluvarðhaldsfangelsi fyrir börn Dómsmálaráðherra segir brýnt að bregðast við stöðu sem upp sé komin á Stuðlum sem nái ekki að sinna hlutverki sínu sem meðferðarúrræði vegna þess að meðferðarheimilið sé orðið að gæsluvarðhaldsfangelsi. Hún hefur mikla trú á samfélagslögreglu til að bregðast við vopnaburði barna. Innlent 3. september 2024 14:06
Skýr mynd komin af atburðum á Skúlagötu Lögregla telur sig vera komna með skýra mynd af atburðum á Skúlagötu á menningarnótt, þegar sautján ára stúlka varð fyrir stunguárás sem dró hana til dauða. Innlent 3. september 2024 14:00
Fundaði með ráðherrum vegna vopnaburðar ungmenna Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri segir nauðsynlegt að setja aukinn kraft í aðgerðir og forvarnir til að sporna gegn aukinni ofbeldishegðun og vopnaburði barna sem vart hefur orðið við að undanförnu. Sigríður fundaði með ráðherrum ríkisstjórnarinnar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem kynntar voru tillögur að frekari aðgerðum til að bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin. Innlent 3. september 2024 13:12
Mál tveggja áfengisnetverslana komin á borð ákærusviðs Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á kærum á hendur tveimur netverslunum sem selja áfengi er lokið. Mál þeirra eru nú á borði ákærusviðs embættisins. Innlent 3. september 2024 12:41
Sakaður um kynferðisáreitni en mögulega farinn úr landi Rúmlega fertugur karlmaður frá Litháen hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni á salerni skemmtistaðarins Miðbarnum á Selfossi í ágúst 2022. Ekki hefur tekist að birta viðkomandi ákæruna og er hún því birt opinberlega í Lögbirtingablaðinu. Innlent 3. september 2024 09:49
Tvö börn flutt á spítala eftir að hafa neytt kannabis-gúmmíbangsa Tvö börn voru flutt á Barnaspítalann Hringsins í gær eftir að í ljós kom að þau höfðu borðað gúmmíbangsa sem innihéldu THC, tetrahýdrókannabínól, sem unnið er úr kannabisplöntunni. Innlent 3. september 2024 06:06