Innlent

Hand­tekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni

Agnar Már Másson skrifar
Sérsveitarmeður heldur manni upp að bíl og tekur hann höndum.
Sérsveitarmeður heldur manni upp að bíl og tekur hann höndum. Vísir/Bjarni

Sérsveitarmenn og lögreglumenn handtóku hið minnsta einn mann við Vesturlandsveg undir Esjunni í Reykjavík um klukkan 17 í dag.

Á myndefni má sjá tvo ómerkta lögreglubíla og einn merktan, auk nokkurra einkennisklæddra lögregluþjóna og hið minnsta eins sérsveitarmanns.

Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, staðfestir við Vísi að einn sérsveitarbíll hafi verið ræstur út til aðstoðar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki hefur náðst í lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×