„Best að taka menn og sekta duglega“ Jakob Bjarnar og Telma Tómasson skrifa 22. júní 2026 17:07 G. Pétur hjá Vegagerðinni segir utanvegaakstur skelfilegan og ömurlegan hvernig sem á er litið. vísir/egill/aðsend Vegurinn sem erlendir ferðamenn fóru um og ollu síðan spjöllum utanvegar við Einhyrning, Kötlujökul og á Emstruleið, var lokaður og merktur með skiltum. Hlið á veginum á að koma í veg fyrir umferð, en þó bregður við að ökumenn, ekki síst Íslendingar, fari þar um og aki spottakorn, og snúi við, en loki ekki hliðinu á eftir sér.
Í kjölfarið geti komið erlendir ferðamenn sem telja sig mega aka eftir veginum, þrátt fyrir skilti og merkingar. Greint hefur verið frá málinu í fréttum og er mikil reiði ríkjandi víða vegna málsins. G. Pétur Matthíasson forstöðumaður samskiptadeildar hjá Vegagerðinni. Utanvegaakstur er ávallt bannaður og allar upplýsingar um ástand vega er að finna á umferdin.is. Málið ekki beint á borðum Vegagerðarinnar „En við náttúrlega merkjum vegi ófæra eða lokaða eins og við á. Þessi leið er merkt lokuð. Við erum með hlið þarna innst í Fljótshlíðinni og þar eru merkingar. Vandamálið er kannski að það vill henda að menn loki ekki hliðinu, skilji það eftir opið og þá fara menn bara þarna inneftir, sérstaklega útlendingar ef þeir sjá hliðið opið og taka illa eða lítið eftir skiltunum um að þar sé ekki heimilt að aka.“ Að sögn G. Péturs er utanvegaakstur ekki á borðum Vegagerðarinnar, þetta sé lögreglumál, en Vegagerðin sér hins vegar um merkingar og þar er við ramman reip að draga.vísir/egill Lokunarpóstur um að það megi ekki aka þarna inn. Hver er þá að fara þar um og skilja það eftir opið? „Þetta er það nálægt byggð og menn kannski að skjótast til að kíkja inn eftir. Án þess að fara beinlínis upp á hálendið þar sem er ófært og of blautt að fara um. En ég get ekki svarað því hvers vegna menn eru að opna hlið sem eru lokuð. Meginmerkingin er á umferdin.is, það er þar sem við getum breytt ótt og títt merkingum eftir því sem ástandið breytist.“ Utanvegaakstur skelfilegur og ömurlegur G. Pétur segir hálendisvegi flesta hverja lokaða en enn er mikil bleyta á vegum þó að snjóa hafi tekið upp. „Við erum að bíða eftir því að þorni og þá verður hægt að opna. En við sendum menn þarna inn eftir á morgun til að huga að aðstæðum, hvort skiltin séu enn á réttum stað og hvort hliðið sé lokað. En við vöktum þessa vegi eins og kostur er á.“ Erlendir ferðamenn fóru vítt og breytt um hálendið, utanvega og ollu verulegum skemmdum.vísir/aðsend G. Pétur segir ekki algengt að kallaðir séu til sérfræðingar á vegum Vegagerðarinnar, þetta tiltekna dæmi sé til að mynda fyrst og fremst lögreglumál. Utanvegaakstur er ekki á borðum Vegagerðarinnar. „Við merkjum veginn lokaðan og hvort merkt sé ófært. Þarna er rauðmerkt og fólk ætti ekki að vera á ferðinni. Það sem við höfum áhyggjur af, þótt utanvegaakstur sé skelfilegur og ömurlegur á allan hátt, eru vegirnir. Ef menn fara af stað á vegi sem er blautur getur það farið illa.“ Ómögulegt er við að eiga þegar utanvegaakstur er annars vegar. Menn geta farið út af hvar sem er. „Best er að taka menn og sekta duglega fyrir svona nokkuð og það spyrst örugglega vel út.“
Ferðalög Vegagerð Rangárþing eystra Utanvegaakstur Lögreglumál Tengdar fréttir „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Utanvegaökumennirnir sem sást til víða á hálendinu hafa þegar lokið málinu með sektargreiðslu. Mennirnir voru erlendir ferðamenn og keyrðu um á Land Rover jeppum. 21. júní 2026 22:06 Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 13:34 Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 09:07 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
„Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Utanvegaökumennirnir sem sást til víða á hálendinu hafa þegar lokið málinu með sektargreiðslu. Mennirnir voru erlendir ferðamenn og keyrðu um á Land Rover jeppum. 21. júní 2026 22:06
Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka Erlendir ferðamenn sem ollu miklu tjóni með utanvegaakstri á Land Rover-bifreiðum þurftu að borga fleiri hundruð þúsunda í sekt en lögreglu þótti ekki ástæða til að gera jeppana upptæka. Fjallamaður meðlimur í 4x4 klúbbnum telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 13:34
Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Páll Halldór Halldórsson, fjallamaður og meðlimur 4x4 Ferðaklubbnum, segir leiðsögumenn tala um að utanvegaakstur tveggja ferðamanna um helgina sé sá versti sem þeir hafi séð í 40 ár. Hann telur að herða þurfi viðurlög við utanvegaakstri. 22. júní 2026 09:07