Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ökumaður bifreiðar var handtekinn í nótt grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en hann reyndist sviptur ökuréttindum. Hann var færður til sýnatöku á lögreglustöðinni á Hverfisgötu og var laus úr haldi að því loknu. Innlent 6. júlí 2024 07:19
Mikil og þétt umferð í dag Nú í sumar rekur hver stóra ferðahelgin aðra alveg fram yfir Verslunarmannahelgi, jafnvel lengur, og þá tekur umferðin að þyngjast. Innlent 5. júlí 2024 19:27
Áttatíu ára gamall gæsastuldur á Seltjarnarnesi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rifjar upp forvitnilega lögregluskýrslu á Fésbókarsíðu sinni sem var rituð fyrir rúmum 83 árum. Lífið 5. júlí 2024 14:11
Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Guðmundur Gunnlaugsson lagði íslenska ríkið í gær sem þarf að greiða honum 47,8 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds sem hann sætti árið 2010. Það er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, en 26,3 milljónir sem Guðmundur hefur þegar fengið í bætur verða dregnar frá bótaupphæðinni. Innlent 5. júlí 2024 11:45
Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Ökumaður mótorhjóls, sem hafnaði utanvegar við Gígjukvísl í gær, er á lífi en töluvert slasaður. Innlent 5. júlí 2024 11:35
Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Afbrotafræðingur segir fólk ekki eiga að vera hrætt við að vera afskiptasamt ef það telur annað fólk í hættu eða í þörf á aðstoð. Ábyrgðarþynning [e. bystander effect] geri það að verkum að fólk bregðist síður við. Innlent 5. júlí 2024 09:03
Allsgáður en ók niður ljósastaur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um að ljósastaur hefði verið ekinn niður í umdæmi lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Ökumaðurinn, sem reyndist hvorki ölvaður né undir áhrifum annarra efna, játaði að hafa ekið of hratt og misst stjórn á bifreiðinni. Innlent 5. júlí 2024 06:32
Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Eigandi pípulagningafyrirtækisins Landslagna segir að gámur í eigu fyrirtækisins, sem staðsettur var á einkalóð þess, hafi verið fluttur út fyrir bæjarmörkin í dag án hans vitundar. Þar hafi pípulagningar- og hreinlætisvörum að andvirði tíu til fjórtán milljóna króna verið stolið úr gámnum. Eigandinn hyggst lögsækja flutningaþjónustuna. Innlent 4. júlí 2024 20:47
Mátti ekki pissa á starfsmann svo hann meig á glugga Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í dag tilkynnt um mann sem hótaði að pissa á starfsmann verslunar í miðbæ Reykjavíkur. Þegar manninum var vísað út meig hann á glugga verslunarinnar. Innlent 4. júlí 2024 18:51
Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Alvarlegt umferðarslys varð við Gígjukvísl á fimmta tímanum í dag þegar ökumaður mótorhjóls féll af hjólinu og hafnaði utan vegar. Innlent 4. júlí 2024 18:31
Fundu sautján poka af ónýtum kannabisplöntum og úrgangi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann 26. júní síðastliðinn leifar af kannabisræktun við Krýsuvíkurveg nálægt Bláfjallavegi. Þar fundust sautján svartir ruslapokar fullir af mold, áburði, úrgangi og ónýtum kannabisplöntum. Efnunum hefur verið fargað og er málinu lokið af hálfu lögreglunnar. Innlent 4. júlí 2024 14:52
Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni Lögreglan var kölluð til klukkan hálf ellefu í gærkvöldi vegna hunds sem lék lausum hala á Reykjanesbrautinni skammt frá Grænásbraut. Umferð var stöðvuð á brautinni af stórum sendiferðabíl sem þveraði veginn á meðan vegfarendur reyndu að ná hundinum. Innlent 4. júlí 2024 10:34
Skemmdu bíla í reiðiskasti áður en þeir flúðu lögreglu á rafskútu Tveir góðkunningjar lögreglunnar sem voru handteknir og yfirheyrðir í gær eru nú lausir úr haldi. Mennirnir ullu skemmdum á ökutækjum við Granda í Reykjavík, og flúðu svo lögreglu á rafhlaupahjóli. Innlent 3. júlí 2024 14:58
Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Rannsókn á kynferðisbrotamáli sem á að hafa átt sér stað um borð í grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq er nú lokið og málið komið á borð ákærusviðs ríkislögreglustjóra. Innlent 3. júlí 2024 14:07
Hafnaði utanvegar í Vatnsskarði Slys varð á Norðurlandsvegi í Vatnsskarði í kvöld þegar jeppi hafnaði utanvegar. Þrír voru fluttir til aðhlynningar á Akureyri. Innlent 2. júlí 2024 19:18
Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Tveir góðkunningjar lögreglunnar voru handteknir síðdegis eftir að hafa flúið lögreglu á hlaupahjóli í vesturhluta Reykjavíkur. Lögregla ók lengi eftir mönnunum á grasi við göngustíg en þeir hvikuðu hvergi á ferð sinni. Innlent 2. júlí 2024 15:33
Handtóku fjóra eftir að kókaín var sótt á pósthús Fjórir karlmenn og ein kona sæta ákæru fyrir innflutning á tveimur kílóum af kókaíni. Sá sem talinn er lykilmaður í málinu fékk minni spámenn til að sækja fíkniefnin fyrir sig en var að endingu handtekinn eins og sendlarnir. Innlent 2. júlí 2024 15:08
Peningarnir úr Hamraborg enn ekki fundist Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er enn með til rannsóknar upplýsingar frá tæknideild lögreglunnar vegna þjófnaðar í Hamraborg í mars síðastliðnum. Þar var tugum milljóna stolið úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar. Peningarnir hafa ekki fundist en vísbendingar eru um að hluti þeirra hafi farið í umferð. Einn hefur stöðu sakbornings. Innlent 2. júlí 2024 11:14
Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði þann 22. júní eru enn ófundnir og mögulega komnir úr landi. Lögreglan á Suðurlandi sér ekki ástæðu til að lýsa eftir mönnunum þrátt fyrir að vera með ljósmynd af þeim úr eftirlitsmyndavél gistiheimilisins. Innlent 2. júlí 2024 11:13
Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning upp úr miðnætti í nótt um fimm grímuklædda menn, sem höfðu brotið upp útidyrahurð á heimahúsi. Innlent 2. júlí 2024 06:22
Guðmundur Elís í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað í Vestmannaeyjum í september árið 2021. Hann hefur áður komist í kast við lögin vegna grófs ofbeldis. Innlent 1. júlí 2024 18:23
Sumir sautján ára, aðrir á sjötugsaldri og enn aðrir ákærðir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stóð þó nokkra ökumenn að hraðakstri um helgina. Ökumenn voru svo gott sem á öllum aldri, en sumir keyrðu svo hratt að þeir eiga yfir höfði sér ákæru. Innlent 1. júlí 2024 16:30
Brutu rúður og gengu berserksgang um klaustrið í Garðabæ Brotist var inn í klaustrið við Holtsbúð í Garðabæ og gengið berserksgang þar um seint í gærkvöldi. Umtalsverð eignaspjöll voru framin en fjölmargar rúður eru brotnar. Innlent 1. júlí 2024 14:23
Vara við svindlurum sem líkja eftir Mbl.is Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir umfangsmiklar tilraunir í gangi til að svíkja peninga út úr landsmönnum á netinu. Glæpamennirnir notist við gervifréttir af vel heppnuðum fjárfestingum til að lokka fólk inn í svikamyllu. Innlent 1. júlí 2024 13:36
Lögregla stöðvaði unglingapartý í Guðmundarlundi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði á föstudag afskipti af hópi unglinga sem safnaðist hafði saman í Guðmundarlundi í Kópavog. Einhverjir þeirra voru með áfengi við hönd en ekki margir. Barnavernd hefur aðkomu að einhverjum málanna. Innlent 1. júlí 2024 11:33
Brottfararsalurinn rýmdur vegna grunsamlegrar tösku Ákveðið var að rýma brottfararsalinn á Keflavíkurflugvelli undir miðnætti í nótt vegna grunsamlegrar tösku. Fjölmargir komu að aðgerðum en ekkert óeðlilegt reyndist í töskunni. Innlent 1. júlí 2024 10:45
Blóð á veggjum og gólfi og maður fluttur með sjúkrabíl Einn var fluttur á sjúkrahús með skurð á hendi eftir að óður hundur réðst á konu og karlmann í stigagangi fjölbýlishúss í Grafarvogi á föstudagskvöld. Konan og karlmaðurinn eru á sjötugsaldri og voru með hundinn í pössun. Innlent 1. júlí 2024 10:38
Brotist inn í fataverslun Brotist var inn í fataverslun í miðæ Reykjavíkur í nótt. Málið er í rannsókn lögreglu. Innlent 1. júlí 2024 06:30
Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Ökumaður sem var stöðvaður í hverfi 108 í nótt fyrir að aka á 120 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst, reyndist án gildra ökuréttinda. Tveir aðrir voru stöðvaðir í nótt sem reyndust án ökuréttinda, einn þeirra var undir áhrifum fíkniefna. Þá var einn sektaður fyrir að nota ekki bílbelti við akstur. Innlent 30. júní 2024 10:34
Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Þrítugur karlmaður sem grunaður er um að hafa stungið tvo í Kópavogi á dögunum hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Upp úr sauð þegar maðurinn mætti hópi fólks á göngustíg, sem hann hjólaði um á rafhlaupahjóli. Innlent 30. júní 2024 08:56