Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Árni Sæberg skrifar 12. mars 2026 11:01 Guðmundur Elís í haldi lögreglu árið 2020 þegar hann var grunaður um tilraun til manndráps. Guðmundur Elís Sigurvinsson, 27 ára karlmaður með langan ofbeldisbrotaferil á bakinu, hefur verið ákærður fyrir barnaverndar- og sifskaparbrot, með því að fara með fimmtán ára stúlku um borð í fiskiskip í Keflavík árið 2023.
Í ákæru á hendur honum, sem gefin var út um miðjan febrúar, segir að hann hafi stuðlað að því að stúlkan kæmi sér undan valdi eða umsjá foreldra sinna, en hann hafi mælt sér mót við stúlkuna í Landeyjarhöfn að kvöldi laugardagsins, ekið svo með hana síðar um kvöldið, til Keflavíkur og farið með hana í leyfisleysi um borð í skipið Grímsnes GK-555, sem hafi siglt út á sjó um nóttina og þar sem stúlkan dvaldi allt þar til skipinu var snúið við og lagt við höfn í Njarðvík síðdegis á sunnudeginum. Þannig hafi hann stofnað heilsu og lífi stúlkunnar í alvarlega hættu, allt án vitneskju og heimildar foreldra hennar. Rekinn Skipstjórinn á Grímsnesi GK-555 rak Guðmund Elís umsvifalaust eftir að málið kom upp. „Já það er búið að reka hann, ég gerði það í gærkvöldi. Ég get ekki réttlætt það fyrir sjálfum mér að vera með hann um borð,“ sagði Sigvaldi Hólmgrímsson, skipstjóri í samtali við fréttastofu á sínum tíma. Gróft ofbeldi í nánu sambandi og nauðgun Málið vakti mikla athygli á sínum tíma enda hafði Guðmundur Elís áður verið í fjölmiðlum vegna grófra kynferðis- og ofbeldisbrota. Fyrrverandi kærasta Guðmundar Elís hafði greint frá miklu ofbeldi í sambandi þeirra. Myndir sem sýndu áverka stúlkunnar vöktu mikla athygli og þótti mörgum tólf mánaða dómur mildur í því samhengi. Þá var Guðmundur Elís handtekinn í september 2021 grunaður um kynferðisbrot gegn konu í Vestmannaeyjum. Árið 2024 var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun.
Barnavernd Lögreglumál Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira