Stúlkan er fundin Fjórtán ára stúlkan sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir upp úr klukkan 10 er fundin. Innlent 5. júní 2024 10:12
Líkamsárás, innbrot og vesen á stigagöngum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum málum í gærkvöldi og nótt en í mörgum tilvikum var um að ræða ölvaða einstaklinga eða aðra sem voru að vera til vandræða. Innlent 5. júní 2024 06:18
Málið eigi ekki að rýra traust til lögreglu Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir 30 daga skilorðsbundinn dóm yfir lögreglumanni vegna líkamsárásar ekki eiga að rýra traust fólks til lögreglu. Málið hafi verið rannsakað að frumkvæði embættisins. Innlent 4. júní 2024 19:09
Líkfundur í Þórsmörk Vegfarendur í Þórsmörk gengu fram á látinn mann í gærkvöldi. Lögreglan á Suðurlandi rannsakar málið en ekki er grunur um að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Innlent 4. júní 2024 18:39
Hefur áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa áhyggjur af skipulagðri brotastarfsemi á Akureyri og segir alvarlega þróun eiga sér stað norður á landi. Innlent 4. júní 2024 18:30
„Það er ekkert að óttast við þennan mann“ Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu biður fólk að láta af myndbirtingum karlmönnum á samélagsmiðlum sem það telur tengjast máli manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfjarðarbæ. Málið er í forgangi og telst enn óupplýst. Innlent 4. júní 2024 17:04
Bíl ekið á verslun Piknik í Kópavogi Bíl var ekið á verslun Piknik í Kópavogi nú sídegis. Starfsmaður segir verslunina hafa sloppið vel en bíllinn, sem ekið var á verslunina, er illa farinn. Innlent 4. júní 2024 16:40
568 tilkynningar um heimilisofbeldi á þremur mánuðum Lögreglunni barst 568 tilkynningar á landsvísu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra aðila fyrstu þrjá mánuði ársins sem gerir að meðaltali rúmlega sex tilkynningar á dag. Jafnframt hefur beiðnum um nálgunarbann fjölgað á þessu ári en þær eru 33 talsins fyrir sama tímabil. Innlent 4. júní 2024 16:25
Baðst vægðar áður en lögreglunemi beitti piparúða og kylfu Ungur lögreglunemi hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Í dóminum er því lýst hvernig hann eltist við brotaþola um miðbæ Reykjavíkur áður en brotaþoli stöðvaði og baðst vægðar. Þá beitti lögregluneminn piparúða ítrekað á manninn. Innlent 4. júní 2024 15:31
Handtóku mann í Hafnarfirði en málið enn óupplýst Lögreglan segir að manns sem hefur veist ítrekað að börnum í Hafnarfirði sé enn leitað og málið sé óupplýst þrátt fyrir að karlmaður hafi verið handtekinn í tengslum við það um helgina. Innlent 4. júní 2024 15:14
Lögreglumaður dæmdur fyrir brot í starfi Lögreglumaður hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Innlent 4. júní 2024 07:03
Ökumanns sem ók á mann á rafmagnshlaupahjóli leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns hvítrar bifreiðar sem ók á karlmann um tvítugt á rafhlaupahjóli merktu Hopp á gangbraut á gatnamótum Akurvalla og Burknavalla í Hafnarfirði á milli klukkan tíu og ellefu í morgun. Innlent 3. júní 2024 18:06
Hlutur sakborninga mismikill Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms yfir litháenskum karlmanni sem er grunaður um að hafa valdið dauða samlanda síns í Kiðjabergi í apríl. Maðurinn var því ekki úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann er þó enn í haldi en hann afplánar nú eldri fangelsisdómi. Innlent 3. júní 2024 16:47
Von á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku Lögreglan á Vestfjörðum segist enn engu nær varðandi dánarorsök sambýlisfólks á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi á Bolungarvík í síðustu viku. Von er á bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu í þessari viku. Innlent 3. júní 2024 11:27
Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Hópur ungmenna réðust á starfsmann veitingastaðar í Mosfellsbæ í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar. Þar segir að málið hafi verið afgreitt með aðkomu foreldra og að barnavernd hafi verið upplýst um málið. Innlent 2. júní 2024 06:19
Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Lögregla hefur til rannsóknar íkveikju í iðnaðarbili við Dofrahellu í Hafnarfirði aðfaranótt þriðjudags. Tívolíbombu var kastað inn um glugga á iðnaðarbilinu þar sem gin er bruggað í miklu magni. Mildi þykir að ekki fór verr. Innlent 1. júní 2024 07:01
„Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Lögregla rannsakar nú mál um tuttugu útlendinga sem fóru með sendingar fyrir fyrirtækið Wolt án þess að vera með atvinnuleyfi á Íslandi. Sérfræðingur hjá ASÍ segir ábyrgð fyrirtækisins mikla í málinu. Innlent 31. maí 2024 20:21
Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Mótmælin á vegum félagsins Íslands-Palestína í morgun eru þau hörðustu á síðari árum að sögn lögreglu. Mótmælendur segja lögreglu hafa gengið fram af hörku og ofbeldi og sýnt einbeittan brotavilja. Lögregla segist ekki hafa átt annarra kosta völ og fullyrðir að verklagsreglum hafi verið fylgt. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu muni fá aðgang að öllum nauðsynlegum gögnum. Innlent 31. maí 2024 19:45
Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Um tuttugu manns sem afhent hafa sendingar á vegum Wolt eiga yfir höfði sér kæru fyrir að starfa án atvinnuréttinda hér á landi. Lögreglan segir ábyrgð atvinnurekenda í málum sem þessa töluverða. Innlent 31. maí 2024 13:48
Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Átta hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni. Innlent 31. maí 2024 13:06
Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Tvítugur karlmaður sem féll í Fnjóská á sjöunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn. Leit hefur staðið yfir að honum síðan klukkan 18:30 í gærkvöldi og lauk nú á tólfta tímanum. Innlent 31. maí 2024 11:34
Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að vel hafi gengið að vinna bug á mótmælum við ríkisstjórnarfund í morgun. Þau hafi verið agressív. Lögregla hafi reynt að beita vægari úrræðum og sem betur fer ekki þurft að beita kylfum. Innlent 31. maí 2024 11:21
Notuðu piparúða á mótmælendur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notaði piparúða á mótmælum á vegum samtakanna Ísland-Palestínu. Um tíu mótmælendur eru illa haldnir en auk þess slasaðist lögreglumaður þegar ráðherrabíl var ekið á hann. Lögregla segir mótmælendur ekki hafa fylgt fyrirmælum. Innlent 31. maí 2024 10:42
Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Enn stendur yfir leit á vettvangi við Fnjóská vestast í Dalsmynni að manninum sem féll í ána í gærkvöldi. Þegar maðurinn hvarf ofan í ána hafði hann verið við hana með þremur félögum sínum. Að leitinni koma nú sérfræðingar í straumvatnsleit og búnaði. Innlent 31. maí 2024 10:06
Leitin ekki borið árangur í nótt Leit að karlmanni um tvítugt sem féll í Fnjóská hefur enn ekki borið árangur. Leitað hefur verið að manninum síðan um klukkan 18.30 í gær. Fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra að viðbragðsaðilar hafi verið við leit að manninum í nótt og að leitin hafi ekki borið árangur. Þegar maðurinn hvarf ofan í ánna var hann með þremur félögum sínum. Innlent 31. maí 2024 07:08
Vaktin: Virknin á svipuðum nótum í alla nótt Virkni í eldgosinu sem hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík upp úr hádegi í gær hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt. Hún er enn mest á nokkrum gosopum en erfitt að fullyrða hvað þau eru mörg vegna lélegs skyggnis. Innlent 30. maí 2024 06:18
Eina leiðin inn í Grindavík um Suðurstrandarveg og innviðir í hættu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum líst illa á eldgosið nærri Sundhnúki. Hraunið, sem flætt hefur yfir bæði Grindavíkurveg og Nesveg liggi ofan í görðunum og innviðir séu bersýnilega í hættu. Innlent 29. maí 2024 19:32
Átök á aðalfundi og lögregla kölluð til Aðalfundi félagsins Menningartengsl Íslands og Rússlands, sem átti að fara fram í dag, var frestað eftir að til stimpinga kom við húsnæði félagsins og lögregla var kölluð til. Innlent 28. maí 2024 21:51
Bíða krufningar til að varpa ljósi á atburðarásina Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést. Innlent 28. maí 2024 20:56
Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara Landsréttur hefur rutt allan Héraðsdóm Reykjavíkur í máli Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja. Hún krefst þess að rannsókn Héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða verði felld niður hvað hana varðar. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings í tæp fjögur ár. Innlent 28. maí 2024 17:20