„Þetta skotgekk en þetta er óheppilegt“ Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjórinn á Suðurnesjum, segir í samtali við Vísi að Grindavík hafi verið rýmd vegna þess að lögreglu barst boð þess efnis frá samhæfingarstöð almannavarna. Innlent 14. nóvember 2023 15:36
Rýma bæinn og bíða svo og sjá Verið er að rýma Grindavík í þessum töluðu orðum af öryggisástæðum. Samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum mældist SO2 gas í gasmælum Veðurstofunnar. Hjördís Guðmundsdóttir upplýsingafulltrúi áréttar að ekki sé um neyðarrýmingu að ræða. Rýming verði gerð skipulega. Innlent 14. nóvember 2023 15:07
Hleypa öllum inn í bæinn: Hámark tveir í hverjum bíl Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa öllum íbúum Grindavíkur inn í bæinn núna. Innlent 13. nóvember 2023 13:45
Víðtæk lokun hindrar för um stóran hluta Reykjanesskaga Akstursbann það sem Almannavarnir tilkynntu um á föstudagskvöld á öllum leiðum til Grindavíkur er enn í gildi. Svo víðtæk er lokunin að hún bannar för ökutækja um stóran hluta Reykjanesskagans. Innlent 13. nóvember 2023 10:43
Ölvaður ökumaður ók á ljósastaur Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að bíl hafði verið ekið á ljósastaur í hverfi 103 í Reykjavík. Þegar að var komið var bíllinn var ofan á ljósastaurnum og ökumaðurinn enn í ökumannssætinu. Innlent 13. nóvember 2023 07:28
Þó nokkur verkefni vegna ökumanna og annarra í annarlegu ástandi Lögregla sinnti nokkrum útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem tilkynnt var um einstaklinga í annarlegu ástandi og aðstoðar þurfti við til að koma þeim á brott. Innlent 13. nóvember 2023 05:55
„Nú er biðstaða“ Lögreglan á Suðurnesjum og aðrir viðbragðsaðilar eru nú í biðstöðu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir nóttina hafa verið viðburðarlitla en viðbragðsaðilar munu funda klukkan 11:00. Innlent 12. nóvember 2023 10:24
Ók ölvaður á gangandi vegfaranda Einn var handtekinn og vistaður í fangaklefa eftir að hafa ekið ölvaður á gangandi vegfaranda í miðbæ Reykjavíkur. Vegfarandinn hlaut minniháttar meiðsl en ekki er nánar greint frá áverkum hans. Innlent 12. nóvember 2023 05:28
Slepptu einum úr haldi en vilja halda fimm lengur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sleppti einum, sem handtekinn var í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal, úr gæsluvarðhaldi í gær. Eftir hádegi verður gerð krafa um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni. Innlent 10. nóvember 2023 11:01
Fundu sand af seðlum og svo fíkniefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann vegna gruns um sölu og dreifingu fíkniefna, þar sem mikið magn reiðufjár var í bifreiðinni. Innlent 10. nóvember 2023 07:48
Sérsveit kölluð til vegna minniháttar rifrildis Lögreglu barst í gærkvöldi tilkynning um hóp manna að veitast að einum manni. Einn var sagður hafa haldið hníf upp að árásarþola. Lögregla fór þegar á vettvang ásamt sérsveit en málið reyndist minniháttar rifrildi. Innlent 10. nóvember 2023 07:31
Flúðu á hlaupum eða bíl í fyrstu heimsókn Fyrsta heimsókn starfsfólks Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur (HER) í geymslurými í kjallaranum í Sóltúni 20 virðist hafa komið fólki á svæðinu í opna skjöldu. Þeir tóku á rás og ekki náðist að ræða við þá. Innlent 9. nóvember 2023 15:55
Starfsfólk Vy-þrifa reyndi að koma matvælum undan Tæplega fimm tonn af matvælum sem höfðu nýlega verið flutt til Íslands voru á meðal þeirra sem fundust í geymslu í kjallara húsnæðis við Sóltún í Reykjavík í lok september. Þá eru vísbendingar um að fólk hafi dvalið í geymslunni og er sá angi málsins kominn á borð lögreglu. Innlent 9. nóvember 2023 15:03
Ferðamaður mögulega ísbjörninn á Langjökli Leit lögreglunnar á Vesturlandi og Landhelgisgæslunnar að ísbirni á Langjökli í gær skilaði litlu. Enginn hvítabjörn fannst og enginn ummerki eftir slíkt dýr heldur. Innlent 8. nóvember 2023 11:31
Sprengingar í Seljahverfi og „mögulegt rán“ í 105 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna háværra spreninga í Seljahverfi í Reykjavík í nótt en ekkert var að heyra eða sjá þegar hún mætti á vettvang. Innlent 8. nóvember 2023 06:18
Landhelgisgæslan og lögregla um borð í Amelíu Rose Landhelgisgæslan stöðvaði farþegaskipið Amelíu Rose um átta sjómílur úti fyrir Akranesi í dag. Í ljós kom að farþegafjöldi á skipinu var margfaldur miðað við leyfilegan fjölda. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir málið alvarlegt en skipið hafi ítrekað verið stöðvað með of marga farþega. Innlent 7. nóvember 2023 18:48
Vísbendingar um ísbjörn á Langjökli Lögreglan á Vesturlandi og Landhelgisgæslan leita nú mögulegs ísbjarnar á Langjökli. Þetta staðfestir Kristján Ingi Kristjánsson, settur yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, í samtali við fréttastofu. Innlent 7. nóvember 2023 16:04
Losnaði úr fangelsi fjórum mánuðum eftir tveggja ára dóm Karlmaðurinn sem særðist í skotárás við Silfratjörn í Úlfarsárdal í síðustu viku losnaði úr fangelsi í sumar. Hann hlaut tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir sérlega hættulega líkamsárás, en losnaði úr fangelsi í júlí. Ástæðan mun vera sú að hann hafði þegar afplánað stóran hluta refsingar sinnar í gæsluvarðhaldi. Innlent 7. nóvember 2023 14:43
Telja sig vita hver krafðist vopnahlés Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vita hver spreyjaði stór skilaboð til Alþingismanna í gærmorgun. Innlent 7. nóvember 2023 10:30
Hvellirnir afleiðing strákapara í Fellunum Miklir hvellir sem heyrðust víða á höfuðborgarsvæðinu seint í gærkvöldi voru hvellir í flugeldum, sem átt hafði verið við, í Fellunum í Breiðholti. Innlent 6. nóvember 2023 10:24
Mikill léttir að vera heima en ekki í Laugardalnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um einstakling sem var að banka á hurðir á fjölbýlishúsi í dag. Þegar lögreglu bar að garði sá hún einstaklinginn sofandi ölvunarsvefni í sameign fjölbýlishússins. Innlent 5. nóvember 2023 17:30
Árekstur á Þingvallavegi Lögregla og sjúkralið var kallað til vegna áreksturs á Þingvallavegi í morgun. Innlent 5. nóvember 2023 10:01
Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála Lögreglu barst tilkynning um mann sem reyndi ítrekað að stofna til slagsmála rétt fyrir klukkan hálf fimm í morgun. Hann var handtekinn á vettvangi og kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt en látinn laus að því loknu. Innlent 5. nóvember 2023 07:28
Miklar umferðartafir í Hafnarfirði vegna lögregluaðgerða Stór lögregluaðgerð er í gangi í Hafnarfirði. Mikil umferðarteppa er á svæðinu og hefur umferð verið beint í aðra átt. Innlent 4. nóvember 2023 16:13
Slagsmál reyndust rán Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Lögreglan fékk tilkynningu um slagsmál í miðbæ Reykjavíkur um hálf tíuleytið í gærkvöldi og fór strax á vettvang. Þar komst hún að því að nokkrir einstaklingar virtust vera að ræna einn. Innlent 4. nóvember 2023 07:25
Keyrði á gangandi vegfaranda og stakk af Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir vitnum vegna umferðarslyss þar sem ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Þingvallastrætis og Dalsbrautar klukkan 18:15 í kvöld. Ökumaður bifreiðarinnar ók af vettvangi án þess að tilkynna slysið. Innlent 3. nóvember 2023 20:03
Skotin höfnuðu á fjórum stöðum Sex hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við skotárás í Úlfarsárdal í fyrrinótt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir særðust í árásinni. Annar þeirra er þekktur ofbeldismaður með nokkra dóma á bakinu. Dómsmálaráðherra er gríðarlega brugðið yfir málinu. Nauðsynlegt sé að bregðast við. Innlent 3. nóvember 2023 19:00
Aðkoma stúlkunnar með símann „svívirðileg“ Meint fíkniefnaskuld var kveikjan að því að ungmenni ákváðu að veitast að 27 ára gömlum Pólverja fyrir utan Íslenska rokkbarinn í apríl. Brotaþoli lést eftir hnífstungur, högg og spörk. Héraðsdómari er ómyrkur í máli og lýsir atburðarásinni sem „leik kattarins að músinni“. Innlent 3. nóvember 2023 18:25
Vilja sex í varðhald vegna skotárásar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerir kröfu um að sex einstaklingar sæti gæsluvarðhaldi í allt að eina viku í tengslum við rannsókn embættisins á skotárás í Úlfarsárdal aðfaranótt fimmtudag. Innlent 3. nóvember 2023 16:36
Gætt hafi verið að börnunum í Grafarvogi Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það vera hlutverk embættisins að framfylgja niðurstöðu dómstóla í þeim tilvikum sem henni er ekki hlýtt. Efst í huga allra sem komi að aðgerðum líkt og þeirri í Grafarvogi þann 25. október síðastliðnum séu börnin sem eigi í hlut. Innlent 3. nóvember 2023 15:00