Manchester City

Manchester City

Fréttir af enska fótboltaliðinu Manchester City.

Fréttamynd

City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace

Manchester City vann 3-0 sigur gegn Crystal Palace í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og er nú tveimur stigum frá toppliði Arsenal þegar tvær umferðir eru eftir. Antoine Semenyo, Omar Marmoush og Savinho skoruðu mörkin en Pep Guardiola hvíldi marga lykilmenn City.

Enski boltinn
Fréttamynd

Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld

Manchester City fór illa að ráði sínu í titil­baráttu ensku úr­vals­deildarinnar í kvöld þegar liðið glutraði niður for­ystu endaði á því að gera 3-3 jafntefli gegn Ever­ton á úti­velli. Arsenal er í bíl­stjórasætinu, með ör­lögin í sínum höndum, fyrir loka­um­ferðir deildarinnar en jöfnunarmark Doku á lokasekúndunum gæti skipt miklu máli.

Enski boltinn
Fréttamynd

Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, sló á létta strengi á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Manchester City við Everton í ensku úrvalsdeildinni sem fram fer á mánudagskvöld. Hann skýrði hvers vegna hann var staddur á leik í ensku neðri deildunum á kostnað þess að sjá stórleik í Meistaradeildinni.

Enski boltinn
Fréttamynd

Fá leyfi til að leika sér í fríinu

Pep Guardiola hefur gefið leikmönnum sínum þriggja daga frí eftir sigur á Southampton í undanúrslitum enska bikarsins um helgina. Þeir fái leyfi til að gera hvað sem þeim sýnist í fríinu áður en undirbúningur fyrir lokakafla tímabilsins hefst.

Enski boltinn
Fréttamynd

Von­svikinn Raya ræddi við Hjör­var

David Raya, markvörður Arsenal, ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir svekkjandi 2-1 tap toppliðsins fyrir Manchester City á Etihad-vellinum í gær. Raya segir nóg eftir af tímabilinu og fleiri tækifæri bíði Arsenal-liðsins.

Enski boltinn
Fréttamynd

Haaland keypti Heims­kringlu á 17 milljónir

Norski knattspyrnumaðurinn Erling Haaland, stjörnuleikmaður Manchester City, keypti sérstaka útgáfu af Heimskringlu Snorra Sturlusonar á 1,3 milljónir norskra króna og gaf bókasafninu í heimabæ sínum eintakið. Bókin er sú dýrasta sem selst hefur í Noregi.

Erlent