FH úr leik FH-ingar töpuðu rétt í þessu 2-1 fyrir Nefchi frá Azerbadjan í seinni leik liðanna í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Nefchi missti mann útaf rétt fyrir hálfleik en það skipti engu máli, því í byrjun síðari hálfleiks komust þeir yfir. FH-ingar jöfnuðu með marki frá Allan Borgvardt ... Sport 20. júlí 2005 00:01
Gerrard með tvennu-Liverpool áfram Þegar Liverpool sigraði TNS fyrir viku, gerði Steven Gerrard öll þrjú mörk Liverpool manna. Í kvöld er liðið sigraði TNS 3-0 gerði Gerrrard tvö mörk en spilaði aðeins rúmar tuttugu mínútur. Þriðja mark Liverppool gerði Djibril Cisse. Þar með eru Evrópumeistararnir komnir í 2.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir samanlagðan 6-0 sigur. Sport 19. júlí 2005 00:01
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er 1-0 yfir í hálfleik gegn TNS frá Wales í 1.forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Djibril Cisse gerði markið á 26. mínútu. Þetta er seinni leikur liðanna, Liverpool vann fyrri leikinn 3-0. Sport 19. júlí 2005 00:01
Vieira á förum til Juventus Arsenal hefur staðfest að félagið hefur tekið tilboði frá ítalska stórliðinu Juventus í fyrirliða sinn Patrick Vieira. Tilboðið hljóðar upp á 13,75 milljónir punda í þennan 29 ára miðjumann. Sport 14. júlí 2005 00:01
Pressa á Ferdinand Sir Alex Ferguson, framkvæmdarstjóri Manchester United, hefur sett meiri pressu á varnarmanninn Rio Ferdinand að skrifa undir nýjan samning við félagið. Pini Zahavi, umboðsmaður leikmannsins, hefur sagt að viðræður um nýjan samning gangi hægt. Sport 14. júlí 2005 00:01
Gerrard með þrennu Liverpool sigraði T.N.S. frá Wales 3-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerrard gerði öll þrjú mörk liðsins en leikurinn fór fram á Anfield í Liverpool. Þetta var fyrsta þrennan hans fyrir félagið. Liðin mætast að nýju að viku liðinni á heimavelli T.N.S. Sport 13. júlí 2005 00:01
Liverpool bauð í Milito Spænska liðið Real Zaragoza hefur staðfest að Liverpool hafi komið með tilboð í varnarmanninn Gabriel Milito en segja að leikmaðurinn sé ekki til sölu. Sport 13. júlí 2005 00:01
Shelbourne sigraði Írlands slaginn Shelbourne frá Írlandi sigraði Glentoran frá Norður Írlandi í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld en leikurinn fór fram á Norður Írlandi. Þá tapaði HB frá Færeyjum fyrir Kaunas frá Litháen 4-2 í Færeyjum í sömu keppni. Þegar 63 mínútur eru liðnar af leik Liverpool og TNS er staðan 2-0 fyrir Liverpool. Þetta eru fyrri leikir liðanna. Sport 13. júlí 2005 00:01
Liverpool er 2 - 0 yfir Liverpool er 2-0 yfir í hálfleik gegn Velska liðinu TSN í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerard gerði bæði mörk liðsins en leikurinn fer fram á Anfield. Sport 13. júlí 2005 00:01
FH-ingar eru undir Neftchi frá Azerbadjan er komið í 1-0 gegn Íslandsmeisturum FH þegar 30 mínútur eru liðnar af leik Neftchi og FH í 1. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Mark heimamanna kom úr víti. Sport 12. júlí 2005 00:01
FH tapaði í Azerbadjan FH-ingar töpuðu fyrir Neftchi frá Azerbadjan 2-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fór fram í Baku í Azerbadjan. Sport 12. júlí 2005 00:01
FH-ingar undir í hálfleik FH-ingar eru undir í hálfleik gegn Neftchi frá Azerbadjan 1-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fer fram í Baku í Azerbadjan. Mark Neftchi gerði Mammadov á 20. mínútu. Sport 12. júlí 2005 00:01
FH enn undir Nú þegar 70 mínútur eru liðnar af leik FH og Neftchi frá Azerbadjan er staðan 1-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu en leikurinn fer fram í Baku í Azerbadjan. Mark Neftchi gerði Mammadov á 20. mínútu Sport 12. júlí 2005 00:01
FH til Azerbaijan FH-ingar drógust gegn liði frá Azerbaijan, Neftchi í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu en drátturinn fór fram í Sviss nú undir hádegið. Fyrri leikurinn fer fram ytra 12. eða 13. júlí. Takist FH-ingum að slá Azerbajana út þurfa þeir að fara til Belgíu og mæta Anderlecht. Velsku meistararnir Total Network Solutions drógust gegn Evrópumeisturum Liverpool. Sport 24. júní 2005 00:01
Everton í erfiðustu stöðunni Ensku liðin Arsenal, Liverpool og Manchester United eiga ekki á hættu að lenda á móti sterkustu liðum Evrópu, komist þau í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það sama á ekki við um Everton, takist félaginu að leggja mótherja sína að velli í forkeppninni. Sport 23. júní 2005 00:01
Ruddust inn á fund hjá UEFA Eggert Magnússon og kollegar hans í framkvæmdanefnd knattspyrnusambands Evrópu fengu heldur óvænta heimsókn á ráðstefnu nefndarinnar sem nú stendur yfir á City of Manchester Stadium í Manchester á Englandi. Óhressir stuðningsmenn Manchester United, andstæðingar bandaríska auðnjöfurins Malcolm Glazer vildu hafa áhrif á niðurstöðu ráðstefnunnar. Sport 18. júní 2005 00:01
Hvað felst í U-beygju Liverpool? Í morgun var ljóst að Evrópumeistararnir í knattspyrnu, Liverpool, fá eftir allt saman að leika í Meistaradeildinni næsta tímabil. Liðið þarf þó að hefja keppni strax í forkeppninni sem hefst 12. júlí en ýmsar athyglisverðar hrókeringar þurftu að eiga sér stað til að dæmið gengi upp. Sport 10. júní 2005 00:01
LIVERPOOL Í MEISTARADEILDINA ! Liverpool verður með í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á næsta tímabili og fær þar með tækifæri til að verja Evrópumeistaratitil sinn. Frá þessu var greint fyrir skömmu. Framkvæmdanefnd UEFA sem m.a. Eggert Magnússon formaður KSÍ situr í, fundaði í gær og komst að þeirri niðurstöðu að Liverpool fái að koma inn í 1. umferð forkeppninnar. Sport 10. júní 2005 00:01
Liverpool fær að vita á föstudag Það skýrist á föstudaginn hvort Liverpool fær tækifæri til að verja Evrópumeistaratitil sinn í knattspyrnu á næsta tímabili. UEFA vill leysa málið áður en til fundar framkvæmdanefndar sambandsins kemur í Manchester þann 17. júní og munu 13 af 14 nefndarmeðlima halda símafund á morgun fimmtudag. Sport 8. júní 2005 00:01
Sven biðlar til Uefa Þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, Svíinn Sven Goran Eriksson, hefur skorað á Uefa að gefa Liverpool sæti í Meistaradeild Evrópu. Sport 28. maí 2005 00:01
Meðlimir Oasis góðir Eitt af stærstu rokkböndum í heiminum í dag, breska bandið Oasis, var með tónleika í Coronet leikhúsinu í London á miðvikudagskvöldið, sama kvöld og Liverpool sigraði AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Sport 28. maí 2005 00:01
Árangur Liverpool særir Cole Ashley Cole, vinstri bakvörður Arsenal, sagði í dag að það hefði verið mjög sárt að horfa á Liverpool lyfta Evrópubikarnum í Istanbul í gær bætti við: <em>,,Arsenal ætti að vera vinna svona titla".</em> Sport 26. maí 2005 00:01
Liverpool í skrúðgöngu um borgina Liverpool, sigurvegarar Meistaradeildar Evrópu frá því í gær, fóru í kvöld í skrúðgöngu um Liverpool borg með bikarinn eftirsótta. Sport 26. maí 2005 00:01
Einstakt í sögu keppninnar Afrek Liverpool, að lenda 3-0 undir gegn AC Milan í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en jafna leikinn 3-3 og vinna svo í vítaspyrnukeppni, er einstakt í sögu sterkustu deildar heims og í fyrsta skipti sem slíkt gerist í sögu keppninnar. Leikurinn var sýndur beint á Sýn og var mögnuð skemmtun. Sport 26. maí 2005 00:01
Framlenging í Istanbul Úrslitaleikur AC Milan og Liverpool í Meistaradeild Evrópu fer í framlengingu en staðan að loknum venjulegum leiktíma er 3-3. Rafael Benitez knattspyrnustjóri Liverpool hefur skipt öllum varamönnunum sínum þremur inn á en sá fyrsti kom inn á strax á 23. mínútu. Carlo Ancelotti þjálfari Milan hefur skipt tveimur varamönnum inn á. Sport 25. maí 2005 00:01
Friðsamlegt í Istanbúl í nótt Allt fór friðsamlega fram í Istanbúl í Tyrklandi í nótt þegar stuðningsmenn Liverpool og AC Milan máluðu borgina rauða fyrir úrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Upphitun hefst kl. 18 auk þess sem leikurinn verður krufinn til mergjar með sérfræðingum Sýnar í leikslok. Sport 25. maí 2005 00:01
Eins og í Liverpool-sögu Liverpool varð Evrópumeistari í gær þegar þeir sigruðu AC Milan í dramatískum úrslitaleik í Istanbúl. Liverpool var 3-0 undir í leikhléi en snéri töpuðu tafli sér í hag á ótrúlegan hátt. Sport 25. maí 2005 00:01
AC Milan yfir gegn Liverpool AC Milan er 1-0 yfir gegn Liverpool í úrslitaleik Meistardeildar Evrópu í Istanbul í Tyrklandi. Paolo Maldini skoraði markið eftir aðeins 50 sekúndna leik eftir aukaspyrnu frá Andrea Pirlo. Leikurinn hófst kl. 18.45 og er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 25. maí 2005 00:01
AC Milan að slátra Liverpool AC Milan er hreinlega að ganga frá Liverpool strax í fyrri hálfleik í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en staðan er orðin 3-0 fyrir Ítalana þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Argentínumaðurinn Hernan Crespo hefur skorað tvívegis með 5 mínútna millibili skömmu fyrir hálfleik. Fyrst á 39. mínútu og svo á 44. mínútu. Sport 25. maí 2005 00:01
Tvö lið - 19 þjóðerni Leikmenn frá 19 löndum öttu kappi í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattpyrnu í Istanbul í Tyrklandi milli AC Milan og Liverpool. Hjá sexföldum Evrópumeisturum Milan voru leikmenn af 8 þjóðernum í hópnum. Liverpool stillti upp leikmönnum frá 9 mismunandi þjóðum í byrjunarliðinu einu. Sport 25. maí 2005 00:01