Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Maður sem grunaður er um aðild að manndrápi í Breiðholti aðfaranótt sunnudags hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 1.11.2026 22:37
Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Lögreglan leiddi í kvöld einn sakborning fyrir dómara í tengslum við andlát eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum. Þrír voru handteknir vegna málsins í dag. Innlent 1.11.2026 20:46
Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Meðal þess sem til rannsóknar er í manndrápsmálinu í Breiðholti eru möguleg tengsl á milli aðila málsins. Eftir því sem lögregla kemst næst þekktust gerendur og þolendur en að sögn yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði er sá þáttur málsins áfram til skoðunar. Innlent 1.11.2026 17:01
Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Viðbragðsaðilar fluttu einn á slysadeild til skoðunar og björguðu hundi af svölum eftir að eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík í kvöld. Innlent 31. október 2026 23:53
Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út vegna elds sem kom upp í fjölbýlishúsi í Norðlingaholti í Reykjavík. Innlent 31. október 2026 23:06
Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum „Ég er ein af þessum útvöldu starfsmönnum Reykjavíkurborgar sem var sagt upp á þriðjudaginn. Og ég lenti í aðferð sem er beitt á fólk sem hefur framið glæp eða framið gróf brot í starfi.“ Innlent 30. október 2026 22:44
Stjórnendur Sorpu slegnir Starfsfólk og stjórnendur Sorpu eru slegin yfir því að köttur hafi lent í gildru á starfssvæði fyrirtækisins með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fót. Gildran hafi verið hluti af meindýravörnum og Sorpa talið að þetta gæti ekki gerst. Búið sé að segja upp verksamningi við meindýraeyði sem bar ábyrgð á gildrunni. Innlent 30. október 2026 18:16
Fjórðungur ekki með bókasafnskort Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur lagði fram tillögu fyrr í mánuðinum um könnun á bókasöfnum borgarinnar og þjónustu þeirra. Meirihlutinn hyggst blása til sóknar en minnihlutinn óttast að þjónustan verði skorin niður. En eiga borgarfulltrúar borgarinnar bókasafnskort og heimsækja þeir söfnin? Menning 30. október 2026 12:11
Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Arion banki hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf., sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Viðskipti innlent 30. október 2026 09:43
Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Búi Bjarmar Aðalsteinsson fyrrverandi starfsmaður borgarinnar telur að íbúar Reykjavíkur muni í kjölfar uppsagna upplifa lakari og dýrari þjónustu. Hann segir ekki hægt að útvista öllu og hans eina markmið hafi ávallt verið að bæta þjónustu og auka gæði hennar. Innlent 30. október 2026 08:41
Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð Árekstur varð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í kvöld þar sem ökumaður bifreiðar keyrði utan í tvo aðra bíla. Engin slys urðu á fólki en nokkuð er um umferðartafir á svæðinu á meðan unnið er að því að hreinsa vettvanginn, að sögn lögreglu. Innlent 29. október 2026 19:05
„Kisur eru að missa fæturna“ Kisan Gletta er einum fæti fátækari eftir að hafa stigið í minkagildru fyrir utan atvinnuhúsnæði í Gufunesi. Annar köttur lenti í gildru á nákvæmlega sama stað fyrir rúmum tveimur árum, að sögn formanns Villikatta, sem segir að meindýraeyðir hafi nú verið kærður til MAST vegna málsins. Innlent 29. október 2026 18:35
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að reyna að myrða kærustu sína á þáverandi heimili þeirra í Reykjavík um miðjan júlí síðastliðinn. Frásögn konunnar á bráðamóttöku var upphaflega á þá leið að hún hefði veitt sér áverkana sjálf en því trúði lögregla tæplega. Innlent 29. október 2026 14:59
Hagræðing Hildar á sannleikanum Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur hefur verið til svara í fjölmiðlum um þrjár uppsagnarhrinur borgarinnar sem sagðar eru fela í sér niðurlagningu á 130 stöðugildum. Skoðun 29. október 2026 13:46
Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Matreiðslumeistarinn Axel Óskarsson ákvað á síðasta ári að taka Kaffivagninn fræga úti á Granda í gegn. Verkefnið átti að taka fjórar vikur en fjallað var um það í fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af Gulla Byggi í umsjón Gunnlaugs Helgasonar. Lífið 29. október 2026 10:30
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Opið bréf um fjárfestingu í vinnustofum og menningarlegum innviðum til framtíðar. Skoðun 29. október 2026 08:30
Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um líkamsárás í Breiðholti, 111, í gær eða nótt. Fram kemur í dagbók að einn hafi verið handtekinn vegna málsins og vistaður í fangageymslu. Innlent 29. október 2026 06:08
Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Formaður Stofnunar múslíma á Íslandi segir pakistanskan trúarleiðtoga, sem hefur varið dauðarefsingu fyrir þá sem snúa bak við íslam, hafa mætt í stórmosku stofnunarinnar við Bústaðaveg sem ferðamaður. Heimsóknin hafi ekki verið á vegum stofnunarinnar. Bakgrunnur leiðtogans, Muhammad Taqi Usmani, hafi ekki verið kannaður fyrir fram og ræða hans í moskunni verið almenns eðlis um íslam. Stofnun múslíma á Íslandi taki ekki undir umdeildar skoðanir hans. Innlent 28. október 2026 19:40
Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Þrír menn hafa hlotið dóm fyrir að hafa í ágúst 2023 kveikt í Teslu-bifreið lögreglumanns gegn greiðslu sem hljóðaði upp á hundrað þúsund krónur. Málinu hafði verið vísað frá dómi í desember síðasta árs en þá hafði ekki fengist leyfi frá Ríkissaksóknara til þess að Héraðssaksóknari gæti farið með málið. Innlent 28. október 2026 18:20
Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að streyma þingfestingu í fjölmennasta sakamáli Íslandssögunnar yfir í annan sal í dómhúsinu við Lækjartorg. Sjötíu sæta ákæru í málinu. Innlent 28. október 2026 16:27
Ragnheiður Harpa hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Ragnheiður Harpa Leifsdóttir hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir handritið að ljóðabókinni Deig, sem kemur út í dag. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða fyrr í dag. Menning 28. október 2026 15:30
Hildi og Inga Þór sagt upp Hildur Lillendahl Viggósdóttir verkefnastjóri er ein þeirra sem var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í dag eftir átján ár í starfi. Þá var Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra á skrifstofu menningarborgar, einnig sagt upp störfum. Innlent 27. október 2026 21:54
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna harðlega hagræðingaraðgerðir og uppsagnir meirihlutans. Þeir saka meirihlutann um vanþekkingu, óvönduð vinnubrögð, skort á pólitískri forystu og að blekkja borgarbúa. Niðurskurðurinn sé til þess eins að haka við verkefni á verkefnalista. Innlent 27. október 2026 20:48
Hugsjónasvelta Reykjavík Í borgarstjórn eru teknir til starfa fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem enginn virðist vita hvað vakir fyrir og varla þeir sjálfir. Helstu tillögur þeirra snúa að uppsögnum og niðurskurði og umleitunum á því hvort einkafyrirtæki geti sinnt verkefnum borgarinnar eða jafnvel eignast þau. Skoðun 27. október 2026 18:18