Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Ís­búð Vestur­bæjar í Skip­holti lokað

Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti hefur verið lokað en starfsemin verður flutt í Grímsbæ. Þá var það sama uppi á teningnum þegar búðinni var lokað á Grensásvegi í desember fyrir þremur árum.

Neytendur
Fréttamynd

Verk­lok í Þverholti færast frá sumri til ára­móta

Framkvæmdir í Þverholti við Hlemm, sem áætlað var að stæðu fram á mitt sumar, eru enn í fullum gangi. Reykjavíkurborg stefnir nú að því að ljúka þeim fyrir áramót. Á sama tíma er nýr framkvæmdaráfangi að hefjast á norðursvæði Hlemms vegna uppbyggingar Borgarlínu. Honum á að ljúka í lok árs 2027.

Innlent
Fréttamynd

Tvö um­ferðar­slys og þrír fluttir á sjúkra­hús

Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl.

Innlent
Fréttamynd

Skúma­skotum Mjóddarinnar fækkað í for­varnar­skyni

Skiptistöðin í Mjódd verður tekin í gegn í von um að tilfellum ofbeldis fækki. Sviðsstjóri þjónustu og sölu hjá almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins segir umhverfið ábótavant og viðhaldi hafa verið áfátt í langan tíma.

Innlent
Fréttamynd

Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik

Farþegasalurinn í Mjódd verður tekinn í gegn og undirbúnar eru umfangsmiklar endurbætur á strætóstöðinni sjálfri. Skipta á öllu ofnakerfi salarins, endurnýja sætisaðstöðuna og setja upp nýja lýsingu og öryggiskerfi. Ofbeldi á svæðinu og slæmt ástand aðstöðunnar eru meðal ástæðna framkvæmdanna.

Innlent
Fréttamynd

Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi

Reykjavíkurborg ætlar að segja upp 34 bílastæðaáskriftum á efstu hæð Bergstaða og opna stæðin almenningi. Bílahúsið skilaði rúmlega tíu milljóna króna tapi í fyrra og mælingar sýna að flest stæði efstu hæðarinnar standa auð yfir daginn.

Innlent
Fréttamynd

Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar

Af þeim tugum sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í hagræðingaraðgerðum hafa um það bil fimm verið ráðnir aftur. Þetta segir Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar.

Innlent
Fréttamynd

Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið

Leikkonan Olga Sonja Thorarensen eignaðist fyrir nokkrum árum sitt fyrsta barn og missti um svipað leyti ömmu sína. Hún erfði eftir ömmuna safn af tvö hundruð púðluhundastyttum úr postúlíni og ákvað með systur sinni, dansaranum Salóme Sól Norðkvist, að vinna upp úr safninu leikritið Púðlusafnið. Þar takast þær á við fjölskylduarfinn og umbreytingarnar sem fylgja móðurhlutverkinu.

Menning
Fréttamynd

Reykja­vík á ekki að gera allt ein

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er ein af perlum borgarinnar - það er óumdeilt. Reykvísk börn úr leik- og grunnskólum fara reglulega í heimsókn þangað, læra um húsdýrin og njóta þess að vera í návist þeirra inni í miðri borg og margar fjölskyldur eiga árskort í garðinum. 

Skoðun
Fréttamynd

Eitt greiðir arð en annað með nei­kvætt eigið fé

Tekjur tveggja stærstu kvikmyndahúsafyrirtækja landsins drógust saman milli ára. Eigið fé félagsins sem rekur kvikmyndahús Sambíóa er orðið neikvætt en stjórn Smárabíós leggur til að eigendur félagsins fái allan hagnað síðasta árs greiddan í arð. Eigendur Laugarásbíós virðast vera að ná að snúa rekstrinum við. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Opna „lík­lega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi

Hjónin Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Markús Bjarnason hafa síðustu vikur unnið að því að breyta 122 ára gömlu stigahúsi við Holtsgötu í gallerý sem verður formlega opnað á fimmtudaginn. Gallerýið er á tveimur hæðum en er óvenjulegt að því leyti að það telur einungis sjö fermetra.

Menning
Fréttamynd

Gott bú stendur undir sér

Fyrrverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur segist hafa skilað góðu búi. Rökin eru fyrst og fremst þau að rekstur borgarinnar sé ekki verri en víðast hvar annarsstaðar, og rekstrarerfiðleikar sem við öllum blasa, stafi fyrst og fremst af háum vöxtum. Við í Viðreisn erum ósammála því.

Skoðun
Fréttamynd

Skakkur á raf­skútu

Keyrt var á mann sem ók um á rafskútu í hverfi 105 í Reykjavík í gær eða í nótt. Minnháttar meiðsli urðu á manninum sem ók rafskútunni en hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 

Innlent
Fréttamynd

Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á tún­fiski

Veitingastaðurinn Sushi Social hélt glæsilegt túnfiskfestival í síðustu viku þar sem skorinn var niður heill, ferskur bláuggatúnfiskur, gestir gæddu sér á fisknum og skoluðu honum niður með fljótandi veigum. Margt var um manninn og kíkti Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA og fyrrverandi forsætisráðherra, við ásamt fjölskyldu sinni.

Lífið
Fréttamynd

Ísaksskóli eignast Ísaksskóla

Í dag voru undirrituð afsal og önnur lokagögn vegna kaupa Ísaksskóla á fasteigninni að Bólstaðarhlíð 20. Þar með hefur Reykjavíkurborg lokið sölu á húsnæðinu og er skólinn aftur orðinn eigandi að því húsnæði sem hefur verið heimili skólastarfsins um áratugaskeið.

Innlent
Fréttamynd

Í símanum undir stýri og hljóp í burtu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mann í gær eða í nótt sem var að nota farsíma undir stýri. Maðurinn stöðvaði bílinn og fór út úr henni en var beðinn um að fara aftur í hana. Hann steig upp í bílinn og ók af stað án þess að lögreglumenn náðu að taka tal af honum. Honum var veitt stutt eftirför áður en hann stoppaði bílinn og hljóp í burtu. 

Innlent
Fréttamynd

„Það borgar enginn raf­magns­reikninginn með læk-hnappnum“

Birgir Birgisson formaður Reiðhjólabænda segir sorglegt að nú þegar þeim fjölgar sem nota hjólreiðar sem daglegan samgöngumáta lognist starf samtakanna út af. Samtökin missa húsnæði sitt um mánaðamótin en hann segir einnig verulega erfitt að fólk til starfa í slíkt grasrótarstarf og þess vegna hætti þau starfsemi. 

Innlent
Fréttamynd

Þetta hjólar sig ekki sjálft

Um þessar mundir er margra ára grasrótarstarfi Reiðhjólabænda að ljúka. Félagið sem hóf starfsemi sína fyrir um 20 árum sem óformlegur hópur vina í raunheimum, óx og dafnaði með hjálp Facebookhóps og varð svo árið 2020 að skráðu félagi með kennitölu og var nýlega komið með rúmlega 200 skráða félagsmenn og konur.

Skoðun