Svona spilaðist körfuboltinn í kvöld - Grindavík deildarmeistari Grindvíkingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn annað árið í röð þegar 21. og næstsíðasta umferð Domnos-deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld. Vísir fylgdist með gangi mála í leikjunum sex en Stjarnan, KR, Njarðvík, Þór og ÍR unnu líka sína leiki í kvöld. Körfubolti 14. mars 2013 18:30
Hver endar hvar? Tvær síðustu umferðir Dominos-deildar karla í körfubolta fara fram á næstu fjórum dögum og þá ræðst hvaða lið komast í úrslitakeppnina og hvaða lið mætast þar. Auk þess mun koma í ljós hvaða tvö lið munu falla niður í 1. deild. Körfubolti 14. mars 2013 06:00
Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - ÍR 79-70 Fjölnismenn komust úr fallsæti með gríðarlega sterkum sigri á ÍR í Dominos-deild karla í kvöld. Leikurinn var upp á líf og dauða fyrir liðin en að lokum stigu Fjölnismenn upp og unnu að lokum sigur sem gæti tryggt veru þeirra í deildinni á endanum. Körfubolti 8. mars 2013 11:40
Njarðvík vann í framlengdum leik Njarðvík vann nauman sigur á Tindastóli, 103-98, í æsispennandi leik á Sauðárkróki í kvöld. Körfubolti 7. mars 2013 21:07
Snæfell vann í Borgarnesi Snæfell komst upp við hlið Grindavíkur á toppi Domino's-deildar karla með sigri á Skallagrími í kvöld, 85-78. Körfubolti 7. mars 2013 20:58
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór 106-100 Keflavík vann góðan heimasigur á Þór Þorlákshöfn í Dominos-deild karla í kvöld, 106-100. Keflavík leiddi lungan úr leiknum og með fínum sóknarleik náði liðið að innbyrða fínan sigur. Körfubolti 7. mars 2013 18:45
Leik KFÍ og Grindavíkur frestað Fresta þurfti leik KFÍ og Grindavíkur sem átti að fara fram á Ísafirði í kvöld en leikurinn er í Domino's-deild karla í körfubolta. Körfubolti 7. mars 2013 17:51
Fjórir af fimm leikjum kvöldsins í beinni á netinu Fimm leikir fara fram í kvöld í 20. umferð Domnios-deildar karla í körfubolta en eftir þessa umferð eru eiga liðin aðeins tvo leiki eftir. Körfubolti 7. mars 2013 13:45
Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 75-87 Stjörnumenn fóru góða ferð vestur í bæ í kvöld þar sem þeir unnu sanngjarnan og nokkuð sannfærandi sigur á slökum KR-ingum. Körfubolti 7. mars 2013 13:20
Algjör óheppni því áreksturinn var ekki harður Darri Hilmarsson spilar ekki meira með liði Þórs Þorlákshafnar í Domino's-deildinni á þessu tímabili, en einn allra mikilvægasti íslenski leikmaðurinn í deildinni varð fyrir slæmum meiðslum í leik á móti Tindastól á dögunum. Körfubolti 7. mars 2013 06:30
Gunnar rekinn frá KR Gunnar Sverrisson, aðstoðarþjálfari körfuboltaliðs KR, var í dag látinn fara frá félaginu. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari kvennaliðs KR, mun taka við daglegri þjálfun liðsins. Körfubolti 4. mars 2013 20:23
Darri spilar ekki meira með Þór í vetur Darri Hilmarsson og Baldur Þór Ragnarsson verða ekki með Þórsurum á lokasprettinum í Dominos-deild karla og gætu báðir misst af restinni af tímabilinu. Þetta staðfesti Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs, í viðtali við Morgunblaðið í morgun. Körfubolti 4. mars 2013 09:45
Darri upp á spítala en Þórsarar unnu Darri Hilmarsson, lykilmaður Þórsara var fluttur á spítala eftir að hafa meiðst í leik Þórs og Tindastóls í Dominos-deild karla í körfubolta í kvöld. Þórsliðinu tókst þó að klára leikinn án Darra og tryggja sér tveggja stiga sigur, 83-81. Körfubolti 1. mars 2013 21:09
Njarðvíkingar með fjórða sigurinn í röð Njarðvíkingar héldu áfram sigurgöngu sinni í Dominos-deild karla í körfubolta með því að vinna 25 stiga sigur á botnliði Fjölnis, 100-75. Fjölnir hefur nú tapað tíu leikjum í röð og er í mjög slæmum málum á botninum. Körfubolti 1. mars 2013 20:45
Bikarmeistarar Stjörnunnar á miklu skriði Bikarmeistarar Stjörnunnar unnu níu stiga sigur á Skallagrími, 101-92, í 19. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta og hefur Garðabæjarliðið unnið þrjá leiki í röð síðan að Stjörnumenn urðu bikarmeistarar á dögunum. Körfubolti 28. febrúar 2013 20:54
Snæfell vann Keflavík í spennuleik Snæfell vann tveggja stiga sigur á Keflavík, 79-77, í æsispennandi leik í Stykkishólmi í 19. umferð Dominosdeild karla í körfubolta en liðin skiptu tuttugu sinnum um að hafa forystu í þessum leik. Körfubolti 28. febrúar 2013 20:45
Leik lokið: Grindavík - KR 100-87 Grindvíkingar unnu mikilvægan sigur gegn KR í Dominos-deild karla í kvöld, 100-87. Grindvíkingar byrjuðu leikinn frábærlega og komust mest í 21 stigs forystu en KR-ingar bitu frá sér og náðu komast yfir í byrjun fjórða leikhluta. Það var þó ekki nóg því Grindavík var sterkarar á lokametrunum og vann góðan sigur. Körfubolti 28. febrúar 2013 18:45
Puttabrotinn Magnús verður á bekknum í kvöld Magnús Gunnarsson, fyrirliði Keflvíkinga, verður til taks á bekknum í kvöld í leik Keflavíkur og Snæfells þó svo hann sé puttabrotinn. Magnús gat ekki spilað síðasta leik Keflavíkurliðsins er Keflavík tapaði óvænt gegn Skallagrími. Hans var sárt saknað. Körfubolti 28. febrúar 2013 15:33
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - KFÍ 95-86 ÍR-ingar komust upp úr fallsæti í fyrsta sinn í langann tíma með sigri á KFÍ í Dominos deild karla í kvöld. Þegar Ísfirðingar virtust vera að klára leikinn jöfnuðu ÍR-ingar metinn með flautuþrist á lokasekúndunum og unnu að lokum öruggan sigur í framlengingunni. Körfubolti 28. febrúar 2013 11:19
Vilja sýna að þetta borgi sig Njarðvíkingar eru búnir að vinna þrjá leiki í röð og fimm af síðustu sex leikjum í Dominos-deild karla í körfu. Elvar Már Friðriksson er einn af ungu strákunum sem Njarðvíkingar veðjuðu á með flottum árangri. Körfubolti 28. febrúar 2013 07:00
Aukaæfingarnar á morgnana eru vel sóttar Elvar Már Friðriksson fékk stóra tækifærið í fyrravetur eins og fleiri ungir leikmenn Njarðvíkurliðsins í karlakörfuboltanum þegar stjórnin hjá Njarðvík ákvað að veðja á efniviðinn í félaginu. Körfubolti 28. febrúar 2013 06:00
Jóhann Árni ósáttur við bannið Grindvíkingurinn Jóhann Árni Ólafsson var í gær dæmdur í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd KKÍ. Bannið fær hann vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar og Grindavíkur. Körfubolti 27. febrúar 2013 12:45
Stólarnir skríða upp töfluna - unnu Snæfell í kvöld Tindastóll vann mikilvægan tveggja stiga sigur á Snæfelli, 81-79 í Dominosdeild karla í körfubolta í kvöld en sigurinn losar liðið ekki bara við mesta falldrauginn heldur kom liðinu fyrir alvöru inn í baráttuna um síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Körfubolti 25. febrúar 2013 21:14
Skallagrímsmenn enduðu sigurgöngu Keflavíkur Sjö leikja sigurganga Keflavíkur í Dominos-deild karla í körfubolta endaði í kvöld þegar Skallagrímur vann sjö stiga sigur á Keflvíkingum, 75-68. Það hefur lítið gengið hjá Skallagrími að undanförnu en Borgnesingar voru frábærir í Fjósinu í kvöld. Körfubolti 25. febrúar 2013 21:06
Frítt á völlinn hjá KR | Nóg um að vera í kvöld Það er nóg um að vera í handboltanum og körfuboltanum í kvöld. KR-ingar hafa boðið til mikillar veislu fyrir borgarslaginn gegn ÍR í Dominos-deild karla og verður frítt inn á leikinn. Körfubolti 25. febrúar 2013 15:15
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KR - ÍR 85-67 KR-ingar unnu í kvöld öruggan 18 stiga sigur á ÍR-ingum í Dominos deild karla. Eftir jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar settu heimamenn í gír í öðrum leikhluta og héldu öruggu forskoti út leikinn. Körfubolti 25. febrúar 2013 11:11
Njarðvík vann á Ísafirði | Pitts með 45 stig Njarðvíkingar gerðu góða ferð vestur á firði þar sem liðið hafði betur gegn heimamönnum í KFÍ, 119-93. Körfubolti 24. febrúar 2013 21:13
Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir 93 - Þór Þ. 105 Fjölnir tapaði sínum 9.leik í röð í Dominosdeild karla, þegar liðið tapaði fyrir Þór Þorlákshöfn, 93-105. Körfubolti 24. febrúar 2013 18:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 104-82 Stjörnumenn unnu góðan heimasigur gegn Grindavík í Dominos-deild karla í Ásgarði í kvöld, 104-82. Stjörnumenn voru frábærir í þriðja leikhluta þar sem þeir náðu mest 22ja stiga forystu. Körfubolti 24. febrúar 2013 18:30
Hálfleiksræðurnar í lagi hjá Einari Árna Njarðvíkingar hafa stigið stórt skref í átta að úrslitakeppninni í Dominos-deildinni í körfubolta með sigrum á Stjörnunni og KR í síðustu tveimur leikjum sínum en bæði lið voru fyrir ofan Njarðvík í töflunni. Körfubolti 23. febrúar 2013 06:00