TaKesha Watson valin best TaKesha Watson, leikmaður Keflavíkur, var í dag valin besti leikmaður fyrstu níu umferðanna í Iceland Express-deild kvenna. Körfubolti 11. desember 2007 11:59
Stórleikur í Keflavík í kvöld Í kvöld fara fram tveir leikir í Iceland Express deild kvenna í körfubolta og hefjast þeir báðir klukkan 19:15. Fjölnir og Hamar eigast við í Grafarvogi og í Keflavík mætast topplið heimamanna og Íslandsmeistarar Hauka. Körfubolti 5. desember 2007 12:31
Naumur sigur hjá Haukastúlkum Íslandsmeistarar Hauka lentu í kröppum dansi í Grafarvoginum í kvöld þegar liðið lagði Fjölni 73-71 eftir framlengdan leik í Iceland Express deild kvenna. Staðan var jöfn 63-63 að loknum venjulegum leiktíma, en Haukaliðið hélt sjó í framlengingunni og vann nauman sigur. Körfubolti 28. nóvember 2007 22:04
Enn sigrar Keflavík Keflavík vann í kvöld sinn áttunda leik í röð í Iceland Express deild-kvenna og er liðið enn taplaust á leiktíðinni. Körfubolti 21. nóvember 2007 23:15
KR vann Hauka Í dag fóru fram þrír leikir í Iceland Express deild kvenna. Íslandsmeistarar Hauka töpuðu á útivelli fyrir KR, 88-81. Körfubolti 17. nóvember 2007 20:42
Sigurganga Keflavíkur heldur áfram Keflavíkurstúlkur halda áfram óslitinni sigurgöngu sinni í Icelan Express deild kvenna og í kvöld lagði liðið Hamar í Hveragerði 81-70 þar sem góður endasprettur tryggði Keflavík sigurinn. Körfubolti 14. nóvember 2007 22:10
Fyrsti sigur Valsstúlkna Kvennalið Vals vann í dag sinn fyrsta sigur í Iceland Express deildinni þegar liðið skellti Fjölni í Grafarvogi 78-58. Liðin eru á botni deildarinnar með eitt stig hvort. Körfubolti 11. nóvember 2007 21:30
Fyrsti sigur Vals Valur og Hamar mættust í botnslag Iceland Express deildar kvenna í kvöld. Bæði lið voru án sigurs fyrir leikinn. Körfubolti 8. nóvember 2007 23:26
Haukasigur í framlengingu Haukar unnu tveggja stiga sigur á Grindavík, 88-90, í æsispennandi framlengdum leik í Grindavík í gær. Joanna Skiba fékk tækifæri til þess að tryggja Grindavík sigur á vítalínunni fimm sekúndum fyrir leikslok en klikkaði á báðum vítum sínum og það varð að framlengja. Körfubolti 8. nóvember 2007 00:01
Keflavík vann nauman sigur á KR Topplið Keflavíkur í Iceland Express-deild kvenna vann í kvöld nauman sigur á KR, 69-66. Körfubolti 7. nóvember 2007 23:35
Áfall fyrir Keflavík Kvennalið Keflavíkur hefur orðið fyrir miklu áfalli eftir Bryndís Guðmundsdóttir sleit krossbönd í hné í leik með unglingaflokki félagsins í gær. Bryndís hefur verið lykilmaður í sterku toppliði Keflavíkur á leiktíðinni. Körfubolti 6. nóvember 2007 12:03
Fyrsti sigur Fjölnis í efstu deild kvenna frá upphafi Fjölnir vann í dag sögulegan sigur á Hamar í Hveragerði þegar liðið vann sinn fyrsta leik í efstu deild kvenna í körfubolta í sögu félagsins. Körfubolti 3. nóvember 2007 18:08
Watson fór hamförum í stórsigri Keflavíkur Kesha Watson átti ótrúlegan leik í kvöld þegar lið Keflavíkur valtaði yfir Grindavík í uppgjöri suðurnesjaliðanna í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 31. október 2007 22:35
Haukar og Grindavík með fullt hús Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld. Haukar, Grindavík og KR unnu sína leiki en Haukar og Grindavík eru á toppnum með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Körfubolti 24. október 2007 22:41
Þrír leikir í kvennakörfunni í kvöld Í kvöld fara fram þrír leikir í Iceland Express deild kvenna í körfubolta. Grindavík tekur á móti Val í Grindavík klukkan 19:15 og á sama tíma mæta Haukar Fjölni á Ásvöllum. Klukkan 20 taka svo KR-ingar á móti Hamri í DHL-höllinni. Körfubolti 24. október 2007 14:21
Grindavík vann Fjölni Grindavík vann í dag góðan sigur á Fjölni í Iceland Express deild kvenna, 76-62 á útivelli. Körfubolti 20. október 2007 19:01
Haukar lögðu Hamar Einn leikur fór fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Íslandsmeistarar Hauka gerðu góða fer í Hveragerði og lögðu Hamar 85-76 eftir að hafa verið einu stigi undir í hálfleik 42-41. Haukar hafa unnið báða leiki sína í deildinni til þessa en Hamarsstúlkur eru án sigurs. Körfubolti 17. október 2007 22:14
Naumur sigur hjá meisturunum Íslandsmeistarar Hauka unnu nauman sigur á nýliðum KR 74-71 í kvöld þegar þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta. Keflvíkingar burstuðu Fjölni 88-51 og Grindavík vann auðveldan sigur á Hamri 94-65. Körfubolti 13. október 2007 19:18
Handalögmál á verðlaunaafhendingu Til handalögmála kom milli tveggja landsliðskvenna í körfubolta eftir úrslitaleik Keflavíkur og Hauka í Meistarakeppninni í gær. Keflavík vann öruggan sigur í leiknum en nokkur hiti var í leikmönnum eftir að flautað var. Körfubolti 8. október 2007 12:40
Keflavíkurstúlkur deildarbikarmeistarar Keflavíkurstúlkur tryggðu sér sigur í Powerade bikarnum í körfubolta í dag þegar þær lögðu lið Hauka í úrslitaleik 95-80. Haukaliðið vann alla titla sem í boði voru á síðustu leiktíð, en Keflvíkingar sáu til þess að þær endurtaka það ekki í ár. Körfubolti 30. september 2007 17:35
Undanúrslitin í kvennaflokki í kvöld Í kvöld fara fram undanúrslitaleikirnir í Powerade bikarkeppni kvenna í körfubolta og fara báðir leikirnir fram í Laugardalshöllinni líkt og karlaleikirnir í gær. Haukar og Valur eigast við klukkan 19 og Keflavík og Grindavík klukkan 21. Úrslitaleikurinn er svo á laugardaginn klukkan 14. Körfubolti 28. september 2007 15:03
Sjö lið í IE-deild kvenna Nú er ljóst að aðens sjö lið munu leika í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í vetur, en keppni þar hefst þann 13. október næstkomandi. Leikin verður fjórföld umferð eða 24 leikir á lið. Körfubolti 21. september 2007 21:47
A-deildin úr sögunni hjá stelpunum Íslenska kvennalandsliðið á ekki lengur möguleika á að vinna riðilinn sinn í B-deild Evrópukeppninnar eftir 52-73 tap á móti Hollandi á Ásvöllum í gær en sigurvegarinn í riðlinum fer í umspil um sæti meðal A-þjóða. Íslenska liðið byrjaði leikinn illa og lenti strax 4-18 undir og eftir það var á brattann að sækja. Holland var 16 stigum yfir í hálfleik, 20-36, en munurinn var kominn niður í 13 stig, 36-49, fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 2. september 2007 09:30
Joanna Skiba til Grindavíkur Körfubolti Kvennalið Grindavíkur hefur samið við Joanna Skiba, bandarískan bakvörð af pólskum ættum sem hefur evrópskt vegabréf. Körfubolti 18. ágúst 2007 06:15
Komin aftur í KR Landsliðskonan Hildur Sigurðardóttir hefur ákveðið að spila með nýliðum KR í Iceland Express-deild kvenna næsta vetur en hún hefur spilað með Grindavík undanfarin tvö tímabil. Körfubolti 11. júlí 2007 09:30
Yngvi tekur við Haukastúlkum Yngvi Gunnlaugsson mun í kvöld skrifa undir samning við körfuknattleiksdeild Hauka og gerast þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Yngvi er öllum hnútum kunnugur hjá Haukaliðinu eftir sex ára starf með kvennaliðinu, en hann stýrði kvennaliði Breiðabliks í Iceland Express deildinni síðasta vetur. Yngvi tekur við af Ágústi Björgvinssyni. Sport 30. maí 2007 16:51
Pálína farin í Keflavík Besti varnarmaður Iceland Express deildar kvenna síðustu þrjú ár er farin frá Haukum og hefur því meistaraliðið misst báða fyrirliða sína fyrir næsta vetur. Körfubolti 26. maí 2007 11:00
Ágúst að hætta með Hauka? Enn er óvíst hvort Ágúst Björgvinsson þjálfari Íslandsmeistara Hauka í Iceland Exress deild kvenna í körfubolta verði áfram við stjórnvölinn hjá Hafnarfjarðarliðinu. Haukar urðu í gær Íslandsmeistarar annað árið í röð þegar liðið vann seiglusigur á Keflavík en Haukastúlkur unnu einvígið 3-1. Haukar hirtu þrjá stærstu titlana, Íslandsmeistaratitilinn, deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. Körfubolti 15. apríl 2007 15:18
Haukastúlkur Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta annað árið í röð eftir 88-77 sigur á Keflavík í fjórða leik liðanna í Keflavík. Haukar unnu einvígið því 3-1. Leikurinn í dag var sveiflukenndur en Haukaliðið tryggði sér sigurinn í lokin með því að hirða hvert sóknarfrákastið á fætur öðru á mikilvægum augnablikum. Helena Sverrisdóttir hjá Haukum var kjörin besti leikmaður einvígisins og kemur það engum á óvart. Körfubolti 14. apríl 2007 17:45
Haukar yfir eftir þrjá leikhluta Haukastúlkur hafa yfir 63-60 gegn Keflavík þegar leiknir hafa verið þrír leikhlutar í fjórða leik liðanna í Keflavík í úrlistaeinvíginu í Iceland Express deildinni. Leikurinn hefur verið sveiflukenndur og bæði lið hafa náð 10 stiga forystu á köflum. Leikurinn fer fram í Keflavík, þar sem heimamenn geta knúið oddaleik í einvíginu með sigri. Körfubolti 14. apríl 2007 17:25