Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.

Fréttamynd

Hildur segir nýjan meiri­hluta þurfa breiða skír­skotun

Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist líta til Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks hvað varði meirihluta, þá sitthvoran kostinn. Báðir séu einfaldasta leiðin að myndun meirihluta en Hildur segist vilja mynda meirihluta með breiða skírskotun sem geti endurreist traust til borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Pétur hræddur um fram­tíð Borgarlínunnar

Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar segir að flokkurinn muni veita nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg gott aðhald. Hann óttast að nýr meirihluti setji stopp á Borgarlínu. Flokkurinn mælist með fimm menn í borginni í fyrstu tölum í borginni.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað sagðiru, 42? Það er geð­veikt!“

Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var himinlifandi þegar fréttamaður Sýnar bar honum tíðindi af fylgisaukningu flokksins í beinni útsendingu. Flokkurinn er með 42,5 prósent fylgi og meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Gífur­leg fagnaðar­læti yfir sigurræðu Almars

Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ og oddviti Sjálfstæðisflokksins var vel fagnað þegar hann hélt sigurræðu í kosningateiti flokksins. Hann segist telja að vinna flokksins hafi fyrst og fremst skilað árangri í kosningunum en flokkurinn bætir við sig manni miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn á Akur­eyri fallinn

Bæjarlistinn er örlítið stærri en Samfylkingin á Akureyri þegar um fjórðungur atkvæða hefur verið talinn. Samfylkingin bætir þó við sig manni og Bæjarlistinn tapar einum og því er meirihlutinn fallinn.

Innlent
Fréttamynd

Alma himin­lifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst

Jónasi Má Torfasyni oddvita Samfylkingar var fagnað innilega í kosningapartýi flokksins á Café Catalinu í Hamraborginni. Alma Möller heilbrigðisráðherra móðir Jónasar segist hreykin af syni sínum, það hafi verið hann sem dró hana út í stjórnmálin en ekki öfugt.

Lífið