Seldi vínyl til að fjármagna plötuna Tónlistarmaðurinn Þórir Georg seldi hluta af vínylsafninu sínu til þess að fjármagna nýjustu plötu sína, I Will Die and You Will Die and It Will Be Alright, sem kom út fyrir jól. Tónlist 29. janúar 2013 06:00
Hverjir komast áfram í Söngvakeppninni á laugardagskvöld? Seinni undanúrslit Söngvakeppninnar 2013 fara fram í sjónvarpssal í kvöld. Fréttablaðið fékk þau Evu Laufeyju Kjaran Hermannsdóttur og Vigni Rafn Valþórsson til að hlusta á lögin sex sem keppa í kvöld og leggja sitt mat á þau. Lífið 26. janúar 2013 10:00
Syngur um framhjáhaldara Unnur Eggertsdóttir gefur út nýtt lag og tekur þátt í Söngvakeppninni. Tónlist 26. janúar 2013 07:00
Vínyllinn aftur kominn undir nálina Eftir tuttugu ára eyðimerkurgöngu eru vínylplötur aftur komnar í tísku og sala á þeim hefur aukist mjög á undanförnum árum. Fréttablaðið kannaði hinn mikla uppgang vínylmenningarinnar á Íslandi. Tónlist 26. janúar 2013 06:00
Músíktilraunir í Hörpu Músíktilraunir 2013 verða haldnar í Silfurbergi í Hörpu þetta árið. Lífið 25. janúar 2013 14:30
Kjartan Sveinsson er hættur í Sigur Rós Hljómborðsleikarinn Kjartan Sveinsson er hættur í hljómsveitinni Sigur Rós eftir að hafa verið meðlimur hennar í fimmtán ár. Fréttablaðið fékk þetta staðfest úr herbúðum sveitarinnar í gær. Tónlist 25. janúar 2013 07:00
Band of Horses og Johnston til Íslands Bandaríska hljómsveitin Band of Horses spilar í Eldborg í Hörpu 11. júní. Tón-listarmaðurinn sérstæði Daniel Johnston kemur fram 3. júní í Fríkirkjunni. Tónlist 25. janúar 2013 07:00
Hverjir komast áfram í Söngvakeppninni í kvöld? Fyrri undanúrslit Söngvakeppninnar 2013 fara fram í sjónvarpssal í kvöld. Fréttablaðið fékk þau Evu Laufeyju Kjaran Hermannsdóttur og Vigni Rafn Valþórsson til að hlusta á lögin sex sem keppa í kvöld og leggja sitt mat á þau. Lífið 25. janúar 2013 06:00
Áfram sviptingar í plötusölu Það hafa orðið miklar breytingar á plötusölu í heiminum síðustu ár. Bæði hefur niðurhal aukist á kostnað tónlistar á föstu formi og eins taka netrisar eins og Amazon til sín stöðugt stærri hluta af því sem selst af geisladiskum og vínyl. Tónlist 24. janúar 2013 11:00
Bloodgroup á leiðinni með glænýja plötu Elektrósveitin Bloodgroup gefur út sína þriðju plötu, Tracing Echoes, í byrjun næsta mánaðar. Tónlist 24. janúar 2013 07:00
Trentemöller spilar á Sónar-hátíð Danski plötusnúðurinn Trentemöller þeytir skífum í Hörpu um miðjan febrúar. Tónlist 24. janúar 2013 07:00
Þeir síðustu fyrir Evróputúr Sólstafir spilar á sínum fyrstu tónleikum undir eigin formerkjum í tæpt ár á Gamla Gauknum á laugardagskvöld. Þetta verða einnig síðustu tónleikar rokksveitarinnar áður en hún fer í Evróputúr. Vinna við næstu plötu er sömuleiðis í fullum gangi. Tónlist 24. janúar 2013 07:00
Mögnuð endurkoma hjá Sixto Rodriguez Bandaríski tónlistarmaðurinn Sixto Rodriguez hefur slegið í gegn eftir að heimildarmyndin Searching For Sugarman var frumsýnd á síðasta ári. Tónlist 24. janúar 2013 07:00
Souleyman á Airwaves Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves hafa tilkynnt um tólf flytjendur sem fram koma á hátíðinni í haust. Í erlendu deildinni eru það Sýrlendingurinn Omar Souleyman, sem hefur endurhljóðblandað fyrir Björk, enski elektrómeistarinn Gold Panda, sænsku vúdúrokkararnir Goat, raftónlistarkonan Fatima Al Qadiri frá Kúveit, sænska þjóðlagasöngkonan Anna Von Hausswolff og noise-pönkararnir kanadísku í No Joy. Tónlist 24. janúar 2013 06:00
Íslensk tónlist vestanhafs Umsóknarfrestur Útón vegna safnplötunnar Made in Iceland, þar sem kynnt verður íslensk tónlist á erlendri grundu, rennur út í dag. Síðustu fimm ár hafa Útón og Iceland Naturally staðið fyrir þessu verkefni. Markmiðið er að kynna nýja frumsamda tónlist frá Íslandi í Bandaríkjunum og vekja athygli háskólaútvarpsstöðva og þeirra sem kaupa tónlist fyrir myndefni á íslenskri tónlist. Verkefnið felur í sér gerð safnplötu sem er dreift til yfir sex hundruð útvarpsstöðva og bloggara. Nánari upplýsingar fást hjá Tómasi Young á netfanginu tomas@icelandmusic.is. Tónlist 23. janúar 2013 07:00
Hasar og hávaðarokk Þungarokkararnir í Metallica eru síður en svo af baki dottnir þrátt fyrir að flestir meðlimir sveitarinnar standi nú á fimmtugu. Þessi goðsagnakennda sveit hefur lokið við gerð þrívíddarkvikmyndar í fullri lengd, þar sem hasar og lifandi tónlist renna saman í eitt. Tónlist 22. janúar 2013 10:24
Tók myndbandið upp í stofunni heima hjá sér Myndband Haralds Haraldssonar við lag dúettsins Barregaard&Briem, Love With You, hefur vakið athygli víða um heim. Myndbandið var einfalt í smíðum og tekið upp í stofunni heim hjá leikstjóranum þar sem myndvarpi og fallegar hönnunarhillur leika stórt hlutverk. Tónlist 21. janúar 2013 21:00
Íslendingar á Sónar í Barselóna Skipuleggjendur Sónar bjóða íslenskum tónlistarmönnum til Barselóna í sumar. Tónlist 18. janúar 2013 06:00
Hinn mystíski draumaheimur Fyrsta EP-plata hljómsveitarinnar Oyama, I Wanna, er óður til svefnsins. Sveitin hóf störf fyrir um ári og spilar melódískt hávaðarokk. "Í kringum páskaleytið í fyrra kom Júlía söngkona loksins inn og þá varð þetta eins og þetta er núna,“ segir bassaleikarinn Bergur Anderson. Meðlimirnir koma úr ýmsum hljómsveitum af höfuðborgarsvæðinu, eða Swords of Chaos, Sudden Weather Change, Útidúr, We Painted the Walls og Me, the Slumbering Napoleon. Tónlist 17. janúar 2013 12:00
Jón Þór fagnar nýrri sólóplötu Tónlistarmaðurinn Jón Þór, fyrrum söngvari og gítarleikari Lödu Sport og Dynamo Fog, heldur upp á útgáfu sinnar fyrstu sólóplötu, Sérðu mig í lit?, á Faktorý á föstudaginn. Tónlist 17. janúar 2013 11:00
2013 verður Bowie-ár Við Bowie-aðdáendur vöknuðum upp við þær óvæntu og ánægjulegu fréttir á 66 ára afmæli söngvarans 8. janúar að það var komið út nýtt lag með honum og fyrsta platan hans með nýju efni í tæp tíu ár væntanleg 11. mars. Tónlist 17. janúar 2013 06:00
Á slóðum stjarnvísinda Sigur Rós spilar á tónleikunum Live at Jodrell Park á Englandi 30. ágúst. Tónleikarnir eru óvenjulegir að því leyti að þeir eru haldnir á svæði þar sem Bretar hafa stundað stjarnvísindi frá árinu 1945. Tónlist 17. janúar 2013 06:00
Eftirlæti gagnrýnenda Bandarísku indírokkararnir í Yo La Tengo gáfu á þriðjudaginn út sína þrettándu hljóðversplötu, Fade. Tríóið nýtur mikillar virðingar og hefur lengi verið eftirlæti gagnrýnenda en meginstraumsvinsældir hafa verið takmarkaðar, enda tónlistin oft á tíðum tilraunakennd, lágstemmd og innhverf. Tónlist 17. janúar 2013 06:00
Skeggjaðar klappstýrur halda uppi merkjum Sónar Reykjavík Skeggjaðar klappstýrur bera hitann af því að breiða út hreiður tónlistarhátíðarinnar Sónar Reykjavík sem verður haldin í Hörpu í febrúar. Hátíðarhaldarar hafa verið duglegir að setja kynningarmyndbönd á netið fyrir hátíðina og kláruðu í dag nýtt myndband af klappstýrunum sem sjá má hér fyrir ofan. Tónlist 16. janúar 2013 18:00
Sprengjur, ljós og læti hjá Dimmu í Hörpu "Þarna verður topphljóðkerfi og sprengju- og ljósasýning. Það er búið að fá sprengjuleyfi, það er komið í gegn,“ segir Ingó Geirdal úr Dimmu. Tónlist 16. janúar 2013 07:00
Árstíðir hlaut evrópsk verðlaun Hljómsveitin tekur á móti tónlistarverðlaununum Eiserner-Eversteiner í janúar. Tónlist 16. janúar 2013 07:00
Hjaltalín með plötu ársins Hjaltalín á plötu ársins, Enter 4, og Háa C með Moses Hightower er lag ársins hjá blaðinu Reykjavík Grapevine, sem veitti fyrir skömmu sín fyrstu tónlistarverðlaun. Tónlist 16. janúar 2013 06:00
Gefa miða á stærstu danshátíð heims "Þetta er stærsta danshátíð í heimi þar sem um 250 af frægustu plötusnúðum heims, frá 75 mismunandi löndum, spila tónlist í þrjá daga,“ segir plötusnúðurinn Ólafur Geir Jónsson um danshátíðina Tomorrowland, sem er haldin í Belgíu í lok júlí ár hvert. Um 200.000 miðar eru í boði á hátíðina, sem yfirleitt seljast upp á örfáum klukkutímum. "Það voru um 100 Íslendingar sem ætluðu að fara í hópferð í fyrra en svo fengu bara örfáir þeirra miða. Þetta er svakalega stórt og stækkar bara með hverju árinu, en þarna er að finna öll stærstu nöfnin í bransanum,“ segir Ólafur Geir, en á meðal þeirra sem þeyta skífum á hátíðinni eru David Guetta, Tiesto og Swedish House Mafia. Tónlist 15. janúar 2013 16:30
Justin Timberlake rýkur upp vinsældarlistana Justin Timberlake gaf á sunnudag út sitt fyrsta nýja lag í sjö ár. Þrátt fyrir einungis tvo daga í sölu er það komið á toppinn á sölulistum iTunes út um allan heim. Tónlist 15. janúar 2013 15:00
Með tvo umboðsmenn í London Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðeyjarstofu í Viðey í kvöld. Þar kynnir hún sína fjórðu plötu, Moment, sem kom út fyrir jól. Tónlist 12. janúar 2013 12:00