Úkraína

Úkraína

Höfuðborg: Kænugarður. Mannfjöldi: 36,7 milljónir (2025). Flatarmál: 603.500 ferkílómetrar.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Selenskí og banda­menn hitta full­trúa Trump í Osló

Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu

Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum.

Innlent
Fréttamynd

„Þeir sam­þykktu, af því að ég segi að þeir sam­þykktu“

Donald Trump staðhæfði í gær að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí hefðu samþykkt orkuinnviðavopnahlé, af því að hann hefði sagt að þeir ættu að samþykkja það. Þá hélt forsetinn því fram að það væri Selenskí en ekki Pútín sem stæði í vegi friðar, eins og hann hefur ítrekað gert áður.

Erlent
Fréttamynd

Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu

Bandaríkjamenn eru sagðir hafa hótað því að hætta að deila upplýsingum með Úkraínumönnum og að meina ríkjum Evrópu að kaupa vopn og flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínu. Það verði gert ef Úkraínumenn hætti ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé

Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynning barst frá Donald Trump um að Bandaríkin og Úkraína hefðu samþykkt orkuvopnahlé í stríðinu. Hvorki stjórnvöld í Kænugarði né Moskvu hafa tjáð sig opinberlega um málið.

Erlent
Fréttamynd

Vill nýjan Úkraínuforseta

Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa brugðist vel við harðri gagnrýni Úkraínuforseta á dísilsamning Bandaríkjamanna og Rússa og telur að tími sé til kominn að Úkraína fái sér nýjan forseta „sem kunni að gera samninga.“

Erlent
Fréttamynd

Á­fall fyrir Evrópu og vest­ræna sam­vinnu

Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkin fjár­festi í stríðs­rekstri Pútíns

Volódímír Selenskí Úkraínuforseti gagnrýnir harðlega samkomulag Donalds Trump Bandaríkjaforseta um kaup á rússneskri díselolíu. Hann segir samninginn gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði.

Erlent
Fréttamynd

Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum

Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær.

Erlent
Fréttamynd

„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“

Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. 

Innlent
Fréttamynd

Syrgði Sovét­ríkin og hótaði notkun kjarn­orku­vopna

Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Búa í „hel­víti á jörðu“ og borða ill­gresi til að halda lífi

Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“.

Erlent