Talsverðar líkur á hvítum jólum Jólasnjór hylur nú götur á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land nú þegar átta dagar eru til jóla. Og þá er ekki úr vegi að spyrja veðurfræðing hvort jólin verði hvít eða rauð í ár, spár liggja fyrir. Innlent 16. desember 2024 12:02
Víða kaldi og él Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag. Áttin verður suðvestlæg eða breytileg, víða gola eða kaldi og él, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands. Veður 16. desember 2024 07:10
Óttast að mörg hundruð muni deyja vegna fellibylsins Chido Óttast er að fjöldi látinna í franska eyjaklasanum Mayotte verði nokkur hundruð eftir að fellibylurinn Chido reið þar yfir á laugardagsnótt. Ellefu eru þegar látnir og um 250 slasaðir. Erlent 15. desember 2024 21:34
Lægð beinir vestlægri átt til landsins Lægð fyrir norðan land beinir til Íslands vestlægri átt. Því verða víða 8 til 15 metrar á sekúndu og él. Það verður þurrt að mestu austan til á landinu. Eftir hádegi fjarlægist lægðin og það dregur úr vindi. Frost yfirleitt 0 til 5 stig, en hiti í kringum frostmark við suður- og suðvesturströndina. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar í dag. Veður 15. desember 2024 07:37
Hlýnar með skúrum og slydduéljum Í dag snýst í suðvestlæga átt og 10 til 18 metra á sekúndu. Það hlýnar með skúrum og slydduéljum en verður úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 0 til 6 stig eftir hádegi. Veður 14. desember 2024 08:01
Stormur á Austfjörðum Veðurstofan gerir ráð fyrir norðvestan hvassviðri á austanverðu landinu og stormi á Austfjörðum þar sem gul viðvörun tekur gildi fyrir hádegi. Veður 13. desember 2024 07:20
Bið eftir aðgerð vegna hálkuslyss óboðleg af hálfu kerfisins Hjúkrunarfræðingur sem þarf að bíða í allt að tvær vikur eftir aðgerð vegna alvarlegs beinbrots segir innviði heilbrigðiskerfisins ekki bera það sem þarf. Hún er meðal fjölda fólks sem beinbrotnaði í hálkuslysi í síðustu viku og segir ástandið á heilbrigðiskerfinu óboðlegt. Innlent 12. desember 2024 20:46
Allhvass vindur með skúrum eða éljum Veðurstofan gerir ráð fyrir sunnan og suðvestan strekkingi eða allhvössum vindi með skúrum eða éljum en léttskýjuðu veðri norðaustan- og austanlands. Veður 12. desember 2024 07:23
Spá veikri og skammlífri „stelpu“ í Kyrrahafi Langtímaspár benda til þess að veðurfyrirbrigðið La niña gæti myndast í Kyrrahafi á næstu þremur mánuðum. Fyrirbrigðið er tengt kólnun en talið er að það verði veikt og skammlíft að þessu sinni. Erlent 11. desember 2024 11:50
Útlit fyrir allhvassan vind með rigningu Víðáttumikil lægð er nú suðvestur í hafi sem nálgast landið og mun stjórna veðrinu næstu daga. Veður 11. desember 2024 07:12
Vindur á niðurleið en næsta lægð nálgast úr suðvestri Vindhraði á landinu er nú á niðurleið og verður hann orðinn hægur víðast hvar síðdegis. Það er léttskýjað á austanverðu landinu, en vestantil eru dálítil él á sveimi, en þeim fækkar eftir því sem líður á daginn. Veður 10. desember 2024 07:13
Góðar líkur á rauðum jólum í Reykjavík Meiri líkur eru á rauðum jólum á höfuðborgarsvæðinu í ár, miðað við það sem Sigurður Þ. Ragnarsson, þekktur sem Siggi Stormur, les út úr kortunum á þessari stundu. Veður 9. desember 2024 23:47
Bilunin á afar erfiðum stað og bærinn áfram keyrður á varaafli Bilanaleit á Víkurstreng hefur staðið yfir frá því snemma í morgun. Nú rétt eftir hádegi kom í ljós að líklegast er bilunin staðsett í strengnum þar sem hann er plægður undir Skógá. Vík í Mýrdal verður áfram keyrð á varaafli. Innlent 9. desember 2024 13:51
Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Lægðir á Grænlandssundi og hæð yfir Skotlandi stýra veðrinu í da gen draga mun úr vindi og úrkomu með morgninum. Veður 9. desember 2024 07:12
Aurflóð rann yfir veginn og honum lokað Aurflóð varð rétt í þessu úr Eyrarhlíð og rann yfir veginn sem liggur um svæðið. Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka veginum vegna hættu sem steðjar að vegfarendum. Innlent 8. desember 2024 20:12
„Lausamunir eiga ekki að vera lausir á þessum árstíma“ Upplýsingafulltrúi Landsbjargar biðlar til fólks að vera ekki á ferðinni og huga að lausamunum. Björgunarsveitir væru í viðbragðsstöðu víða á landinu og hafi verið nóg um verkefni í dag. Innlent 8. desember 2024 19:55
Fimm bílar fastir í rúman sólarhring Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og í uppsveitum Árnessýslu voru kallaðar út að Kerlingarfjöllum þar sem hópur fólks á fimm bílum hafði setið fastur í rúman sólarhring. Innlent 8. desember 2024 10:48
Sunnan stormur og ekkert ferðaveður „Sunnan stormur á morgun, hlýnandi veður og talsverð rigning sunnan- og vestantil seinnipartinn, talverðar líkur á asahláku með vatnavöxtum. Ekkert ferðaveður.“ Innlent 7. desember 2024 19:54
Vara við krapaflóðahættu vegna úrkomu Veðurstofa Íslands varar við krapaflóðahættu á vestan- og sunnanverðu landinu. Einnig gæti orðið skriðuhætta þegar hlýnar í veðri. Innlent 7. desember 2024 14:57
Hélt að rauð viðvörun þýddi stórsigur Liverpool-manna Stórleik Everton og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, sem átti að fara fram nú í hádeginu, hefur verið frestað vegna veðurs. Íslensk hjón sem gert höfðu sér ferð á leikinn deyja ekki ráðalaus og ætla að horfa á Manchester-liðin tapa í dag í staðinn. Enski boltinn 7. desember 2024 11:35
Merseyside-slagnum frestað vegna veðurs Leik Everton og Liverpool sem átti að hefjast í hádeginu hefur verið frestað vegna veðurs. Enski boltinn 7. desember 2024 09:12
Veðurviðvaranir í kortunum næstu daga Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular veðurviðvaranir fyrir næstu daga. Innlent 7. desember 2024 08:38
Reykjavíkurborg salti auðan stíg en ekki flughálan Yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans hefur aldrei séð annan eins fjölda hálkuslysa á skömmum tíma, en flughált er víða. Íbúi í Vesturbæ Reykjavíkur segir farir sínar ekki sléttar af hálkuvörnum borgarinnar. Innlent 6. desember 2024 20:03
Um 60 á bráðamóttöku í gær vegna hálkuslysa Alls leituðu 60 einstaklingar á bráðamóttöku Landspítalans í gær vegna hálkuslysa. Mikil hálka hefur verið síðustu daga á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6. desember 2024 15:24
Köld norðanátt og víða él Lægðin sem olli leiðindaveðrinu austast á landinu í gær þokast nú til norðurs og grynnist smám saman. Hún beinir til okkar fremur kaldri norðan- og norðvestanátt, fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og víða él, en yfirleitt þurrt sunnan heiða. Veður 6. desember 2024 07:06
Gular viðvaranir og varasamt ferðaveður á Austurlandi Gul veðurviðvörun tekur gildi á Austfjörðum og Suðausturlandi klukkan átta fyrir hádegi í dag. Snjókoma, vindur og almennt slæmt veður til ferðalaga verður meginstefið í báðum landshlutum. Innlent 5. desember 2024 06:53
Stöku él og vaxandi norðaustanátt Veðurstofan gerir ráð fyrir stöku éljum fram eftir degi en vaxandi norðaustanátt þegar líður á daginn. Veður 4. desember 2024 07:05
Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Töluverð hálka hefur myndast á höfuðborgarsvæðinu síðustu sólarhringa. Hjólreiðafólk og gangandi eru allt annað en sáttir með stígahreinsun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og víðar. Innlent 3. desember 2024 21:48
Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólarhring Hitabreytingar voru með mesta móti á Austfjörðum í gær. Hitinn fór sem dæmi úr -23,6 gráðum í Möðrudal á Fjöllum í gærmorgun yfir í -0,4 gráður klukkan níu í morgun. Innlent 3. desember 2024 16:58
Skúrir eða él á víð og dreif Nú í morgunsárið eru þrjár mis aðgangsharðar lægðir fyrir vestan land. Sú sem er skammt suðvestur af landinu mun sigla yfir landið í dag á meðan hinar halda sig nálægt Grænlandi og hafa takmörkuð áhrif á landsmenn. Veður 3. desember 2024 07:13
Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar: Sagði bílinn fluttan inn vegna kvikmyndaverkefnis Innlent