Veður

Litlar líkur á skýja­hulan brotni en lík­legast norðvestan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig, svalast við sjóinn norðan- og austantil.
Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig, svalast við sjóinn norðan- og austantil. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, fimm til þrettán metrum á sekúndu, og hvassast við suðurströndina. Spáð er rigningu eða skúrir víða um land, en lengst af þurrt norðanlands fram eftir degi.

Almyrkvi verður á landinu síðdegis og gera spár ráð fyrir skýjuðu veðri á vestanverðu landinu seint í dag.

„Líkur á að skýjahulan muni brotna eru eins og áður frekar litlar, en ef það gerist þá er það líklegast á norðvestanverðu landinu.

Lægir og dregur smám saman úr vætu í kvöld. Hiti 8 til 20 stig, svalast við sjóinn norðan- og austantil.

Á morgun verður norðlæg eða breytileg átt 5-10 m/s á norðanverðu landinu, en annars hægari. Dálítil rigning eða skúrir í flestum landshlutum, en úrkomulítið suðvestantil eftir hádegi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast sunnan- og austanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Svona lítur spákortið út fyrir klukkan 17.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Norðvestlæg átt 3-10 m/s, en heldur hvassara norðan- og norðvestantil. Rigning eða skúrir, en styttir upp suðvestantil. Hiti 7 til 18 stig, svalast norðvestanlands.

Á föstudag: Norðlæg átt 8-15 og rigning eða skúrir, en hægari norðvestantil. Léttir til á Vesturlandi eftir hádegi. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast sunnan- og vestanlands.

Á laugardag: Fremur hæg breytileg átt og léttskýjað, en stöku skúrir sunnan- og vestantil. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.

Á sunnudag: Breytileg átt og skýjað með köflum. Stöku skúrir á sunnanverðu landinu, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti 9 til 15 stig.

Á mánudag: Austlæg átt og skýjað að mestu. Dálítil væta í flestum landshlutum, en lengst af þurrt á Norðausturlandi. Hiti 11 til 16 stig.

Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt. Rigning á sunnanverðu landinu, en úrkomuminna norðanlands. Hiti breytist lítið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×