Einföldun stjórnsýslu sem snerist upp í andhverfu sína Leyfisveitingar heilbrigðiseftirlitsins hafa komið til tals í fjölmiðlum undanfarna daga vegna óeðlilegra tafa fyrir veitingarekstur í Reykjavík. Umræðan hefur hvað helst beinst að flækjustigi í regluverkinu og þeim heilbrigðisfulltrúum sem starfa í framlínu íslenska kerfisins sem tryggja á almenningi heilnæm lífsskilyrði. Skoðun 18.6.2025 09:00
„Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Það var alls ekki markmiðið að flækja veitingu starfsleyfa þegar ný reglugerð var sett á síðasta kjörtímabili, að sögn fyrrverandi umhverfisráðherra, heldur þvert á móti að „einfalda, einfada, einfalda.“ Hann segir að sú staða sem nú er komin upp sé annað hvort vegna mistúlkunar á regluverkinu eða mistaka við innleiðingu þess. Viðskipti innlent 17.6.2025 15:01
Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur varaði á sínum tíma við nýju regluverki sem kveður á um fjögurra vikna auglýsingaskyldu fyrir starfsleyfi. Regluverkið hefur lagt stein í götu veitingamanna en ný reglugerð tekur að óbreyttu gildi í vikunni, að sögn umhverfisráðherra, og því heyrir svokallaða fjögurra vikna reglan sögunni til. Viðskipti innlent 17.6.2025 12:31
Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Formaður Eflingar segir tregðu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði eða SVEIT til að afhenda samkeppniseftirlitinu gögn er varða kjarasamninga við stéttarfélagið Virðingu vera skýrt merki um að samtökin hafi eitthvað að fela. Framkvæmdarstjóri SVEIT segir ekki koma til greina að afhenda gögnin ef þeim verður deilt með Eflingu. Viðskipti innlent 12. júní 2025 12:21
SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) mun kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um álagningu dagsekta. Engar sektir verða lagðar á SVEIT þar til niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir um skyldu SVEIT til afhendingar gagna. Viðskipti innlent 12. júní 2025 09:17
Starbucks frestar opnun fram í lok sumars Opnun kaffihúsa Starbucks á Íslandi hefur verið frestað fram í ágúst. Framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi segir ástæðu tafanna vera seinagangur við leyfisveitingar. Ný reglugerð borgarinnar um hollustuhætti hafi tafið ferlið enn frekar. Viðskipti innlent 12. júní 2025 07:07
SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Samkeppniseftirlitið hefur lagt dagsektir á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Dagsektirnar eru lagðar á til þess að knýja á um að SVEIT fari að samkeppnislögum og afhendi umkrafin gögn. SVEIT hefur kært álagninguna. Viðskipti innlent 12. júní 2025 06:56
Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn Eigandi bakarísins Hygge hefur beðið í yfir tvö hundruð daga eftir að fá leyfi til að opna það á nýjum stað í húsnæði við Barónsstíg 6. Hann kvartar undan óskilvirku kerfi í kringum starfsleyfisveitingar og segist hafa orðið fyrir stórtjóni í hinni löngu bið eftir starfsleyfi. Eigendur neyddust til að kaupa bakarí í Grímsbæ til að fyrirtækið færi ekki á hausinn. Viðskipti innlent 9. júní 2025 23:06
Klara Baldursdóttir er látin Klara Baldursdóttir, betur þekkt sem Klara á Klörubar, er látin. Hún var 74 ára að aldri. Hún lætur eftir sig tvo syni. Innlent 6. júní 2025 23:24
Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Pílu- og veitingastaðurinn Skor flytur um set á næstu misserum, af Kolagötu yfir í húsnæði að Hafnarstræti 18. Eigandi segist langþreyttur á deilum um opnunartíma og bindur vonir við að geta lengt opnunartíma staðarins í nýju húsnæði. Viðskipti innlent 4. júní 2025 10:41
Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Jón Mýrdal, sem hefur verið vert á veitingastaðnum Kastrup við Hverfisgötu, hefur gefist upp á samningum við skattinn og leigusala og skilið skiptum við staðinn. Viðskipti innlent 26. maí 2025 12:51
Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Stjórn SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, hefur ráðið Einar Bárðarson í stöðu framkvæmdastjóra samtakanna. Hann tekur formlega við starfinu 1. júní næstkomandi af Aðalgeiri Ásvaldssyni, sem hefur gegnt embættinu frá stofnun samtakanna árið 2021. Viðskipti innlent 22. maí 2025 14:55
Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Pílustaðnum Skor hefur verið meinað að hafa opið lengur á kvöldin samkvæmt úrskurði umhverfis- og auðlindamála. Þar staðfesti nefndin ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur frá 10. janúar 2025 um að synja umsókn um aukinn opnunartíma fyrir veitingastaðinn Skor. Viðskipti innlent 14. maí 2025 14:23
Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Berjaya Coffee Iceland hefur ráðið Daníel Kára Stefánsson í stöðu framkvæmdastjóra Starbucks á Íslandi. Viðskipti innlent 12. maí 2025 10:11
Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Berjaya Hotels Iceland hefur tilkynnt að þau ætli að nýta forleigurétt sinn við Reiti fasteignafélag hf. að Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura hótel er staðsett. Íslandshótel gerðu samning við Reiti í síðasta mánuði um rekstur og leigu til sautján mánaða með þeim fyrirvara að Berjaya hefði forleigurétt. Viðskipti innlent 6. maí 2025 21:40
Sólon lokað vegna gjaldþrots Veitingahúsið Sólon er hætt starfsemi. Þórir Jóhannsson sem átti staðinn segir félagið sem hafi rekið veitingastaðinn hafa farið í gjaldþrot fyrir um tveimur mánuðum. Hann hafi reynt að halda starfseminni gangandi en ekki náð samkomulagi við húseigendur um framhald á rekstri í húsinu. Viðskipti innlent 6. maí 2025 16:20
Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Framkvæmdastjóri Te og kaffi segist ekki óttast samkeppni frá alþjóðlega kaffirisanum Starbucks sem mun í næsta mánuði opna tvö kaffihús hér á landi í fyrsta sinn. Hann segist þvert á móti fagna samkeppninni. Viðskipti innlent 4. maí 2025 22:02
Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Búið er að innsigla Kastrup. Jón Mýrdal vert á Kastrup var heima þegar hann fékk óvænt og sér til mikillar hrellingar boð um að það væri búið að loka staðnum hans. Innlent 2. maí 2025 17:23
Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Mikill samdráttur hefur orðið á sölu hjá hamborgarakeðjunni McDonald‘s í Bandaríkjunum á fyrsta ársfjórðungi. Salan lækkaði um 3,6 prósent sem er mesta lækkunin hjá keðjunni frá árinu 2020, þegar Covid var og hét og loka þurfti verslunum og veitingastöðum. Viðskipti erlent 2. maí 2025 13:31
Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Stefán Magnússon veitingamaður hefur verið ákærður fyrir hundrað milljón króna skattsvik. Brotin á hann að hafa framið á árunum 2020 til 2023 þegar hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður tveggja félaga, annars vegar Steikar ehf. og hins vegar Gourmet. Viðskipti innlent 28. apríl 2025 21:22
Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Búið er að skipta út smurbrauðinu á veitingastaðnum Krónikunni fyrir pizzur. Nýr matseðill er hannaður af Lucas Keller sem áður rak Cocoo‘s Nest. Veitingastaðnum var breytt til að taka betur mið af þörfum ungra barnafjölskyldna sem koma reglulega á svæðið en veitingastaðurinn er rekinn við Gerðasafn í Kópavogi. Viðskipti innlent 26. apríl 2025 13:02
„Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“ Þriðji þátturinn af A&B, þáttaraðar um tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni, fjallaði um þegar þeir skiptu úr fótboltanum yfir í viðskiptalífið. Íslenski boltinn 26. apríl 2025 09:33
Breyta Kaffi Kjós í íbúðarhús Hjónin Hermann Ingólfsson og Birna Einarsdóttir eru búin að selja Kaffi Kjós og verður veitingastaðnum lokað í kjölfarið. Í tilkynningu á Facebook-síðu veitingastaðarins kemur fram að húsinu verði breytt í íbúðarhús. Viðskipti innlent 23. apríl 2025 12:49
Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Nova hefur eignast 20 prósenta hlut í Dineout ásamt því að taka sæti í stjórn félagsins. Inga Tinna Sigurðardóttir, stofnandi og forstjóri Dineout, og Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova, undirrituðu samning um kaupin í dag. Viðskipti innlent 23. apríl 2025 09:06