Vestri

Vestri

Fréttir af Íþróttafélaginu Vestra frá Ísafirði og Bolungarvík.

Fréttamynd

„Leiðin­legt að þetta sé búið“

Vestri gerði sitt fyrsta jafntefli í Evrópukeppni í sögu félagsins þegar liðið mætti RFS frá Lettlandi í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta karla á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. Leiknum lauk 1-1 og RFS vann einvígið samanlagt 2-5.

Fótbolti

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Smá munur á Qarabag og Lengjudeildinni

Þórður Gunnar Hafþórsson skoraði fyrsta mark Vestra í Evrópukeppni á heimavelli, eða eiginlegum heimavelli, í sögunni þegar Vestfjarðaliðið gerði 1-1 jafntefli við RFS frá Lettlandi á Þróttarvelli í Laugardal í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Upp­gjörið: Vestri – RFS 1-1 (2-5) | Evrópuævintýri Vestra á enda

Vestri er úr leik í Sambandsdeild karla í fótbolta eftir að gert jafntefli við lettneska liðið RFS, 1-1, í öðrum leik liðanna í 2. umferð undankeppni keppninnar á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. RFS vann einvígið samanlagt 5-2 eftir 4-1 sigur í fyrri leiknum í Lettlandi og fer áfram í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Sér­lega gleði­leg jól í ár og langt hlé á enda

Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.

Sport
Fréttamynd

„Horfa á okkur sem sveitalið frá Ís­landi“

„Þetta er stærsti leikur sem allir sem að Vestra koma hafa tekið þátt í. Við viljum gera eins vel og við getum og verða Íslandi til sóma en vitum að þetta verður mjög erfitt,“ segir Samúel Samúelsson, stjórnarmaður hjá Vestra, fyrir fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Evrópudagskrá ís­lensku liðanna klár

Dregið var í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í dag. Alls gætu fjögur íslensk lið spilað í þeirri umferð; Víkingur, Vestri, Valur og Stjarnan, en Víkingur og Vestri fá fyrst tækifæri til að komast áfram í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Ír­lands

Bikarmeistarar Vestra eiga óhemju erfitt verkefni fyrir höndum í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta. Kæmust þeir hins vegar áfram er ljóst að þeir færu til Búlgaríu eða Írlands í 2. umferðinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Full­komin byrjun Þróttara heldur á­fram

Þróttur Reykjavík er á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta með fullt hús stiga eftir sigur á Völsungi á Húsavík í dag. Vestramenn unnu sinn fyrsta sigur gegn HK sem tapaði um leið sínum fyrsta leik á tímabilinu. Grótta vann slag nýliða deildarinnar.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sam­bæri­leg þessari“

Ætla má að ein­hverjir hafi rekið upp stór augu þegar greint var frá ráðningu Daniel Badu í starf þjálfara Vestra og það eftir súrsætt tíma­bil hjá liðinu sem varð bikar­meistari og tryggði sér Evrópusæti en féll úr Bestu deildinni. Daniel tekur við liðinu fyrir sögu­legt tíma­bil og ætlar að koma því aftur upp í efstu deild.

Íslenski boltinn