Erna ráðin markaðsstjóri Terra Erna Björk Häsler hefur verið ráðin sem markaðsstjóri Terra umhverfisþjónustu og hefur þegar hafið störf. Viðskipti innlent 27. apríl 2023 10:26
Anna Steinsen nýr stjórnarformaður UN Women Anna Steinsen var í dag kjörin nýr stjórnarformaður UN Women á Íslandi á aðalfundi félagsins. Hún tekur við stöðunni af Örnu Grímsdóttur lögfræðingi sem lætur af störfum eftir sex ára stjórnarformannssetu. Innlent 26. apríl 2023 23:36
Rúnar settur forstöðumaður Minjastofnunar til eins árs Rúnar Leifsson, doktor í fornleifafræði, hefur verið settur tímabundið í embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur sett hann í embættið til eins árs. Innlent 26. apríl 2023 18:05
Sigurjón hættir og Inga Rut verður framkvæmdastjóri Kringlunnar Sigurjón Örn Þórsson mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri Kringlunnar þann 1. júní næstkomandi. Inga Rut Jónsdóttir mun taka við af honum en Sigurjón mun taka við sem framkvæmdastjóri nýs þróunarfélags sem mynda á um uppbyggingu sem fyrirhuguð er á Kringlureitnum. Viðskipti innlent 26. apríl 2023 12:08
Nýr framkvæmdastjóri varúðareftirlits Seðlabankans Gísli Óttarsson er nýr framkvæmdastjóri varúðareftirlits Seðlabanka Íslands. Staðan var auglýst laus í febrúar síðastliðnum. Viðskipti innlent 26. apríl 2023 11:14
Kveðja Hannes Hólmstein með alþjóðlegri ráðstefnu Þrír fyrrverandi forsætisráðherrar Íslands og barnabarn síðasta keisara Austurríkis eru á meðal frummælenda á alþjóðlegri ráðstefnu í tilefni starfsloka Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors í stjórnmálaheimspeki, í næsta mánuði. Innlent 26. apríl 2023 10:35
Anna Signý ráðin framkvæmdastjóri Kolibri Anna Signý Guðbjörnsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Kolibri. Hún er einn af eigendum fyrirtækisins og hefur setið í stjórn þess. Viðskipti innlent 26. apríl 2023 09:03
21 vill verða fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins Utanríkisráðuneytinu barst 21 umsókn um stöðu fjölmiðlafulltrúa ráðuneytisins. Staðan var auglýst þann 22. mars síðastliðinn. Innlent 25. apríl 2023 16:22
Teitur aðstoðar Ásmund Einar Teitur Erlingsson mun taka við Arnari Þór Sævarssyni sem aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Teitur mun starfa ásamt Sóleyju Ragnarsdóttur sem er einnig aðstoðarmaður Ásmundar. Innlent 21. apríl 2023 16:55
Guðrún Halla ráðin framkvæmdastjóri hjá Norðuráli Guðrún Halla Finnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli. Fram kemur í tilkynningu frá Norðuráli að Guðrún muni meðal annars leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Viðskipti innlent 21. apríl 2023 13:04
Framtíð menningarinnar verði til í Listaháskólanum Kristín Eysteinsdóttir hefur verið ráðin nýr rektor Listaháskóla Íslands. Hún segir nýjar áherslur alltaf fylgja nýju fólki en hyggst leyfa breytingum að gerast í samtali við starfsfólk og nemendur skólans. Listaháskólinn hafi alla burði til að vera leiðandi í skapandi hugsun. Innlent 21. apríl 2023 12:50
Gísli hættir og Karl Óttar tekur við Karl Óttar Einarsson mun um mánaðamótin taka við af Gísla Páli Pálssyni sem forstjóra Grundarheimilanna. Gísli mun þó ekki kveðja heimilin þar sem hann hefur verið ráðinn í hlutastarf sem stjórnarformaður Grundar. Viðskipti innlent 21. apríl 2023 11:15
Kristín ráðin rektor Listaháskóla Íslands Kristín Eysteinsdóttir, fyrrverandi Borgarleikhússtjóri, hefur verið ráðin sem nýr rektor Listaháskóla Íslands. Kristín hefur störf þann 1. ágúst næstkomandi. Tekur hún við starfinu af Fríðu Björk Ingvarsdóttur sem er á sínu tíunda starfsári. Alls sóttu tuttugu um stöðuna. Innlent 21. apríl 2023 09:39
Sara Lind sett forstjóri Ríkiskaupa Fjármála- og efnahagsráðherra setti Söru Lind Guðbergsdóttur sem forstjóra Ríkiskaupa tímabundið eftir að Björgvin Víkingsson lét af störfum um mánaðamótin. Staðan verður að líkindum auglýst á næstunni. Innlent 20. apríl 2023 08:11
Árdís Björk nýr framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi Árdís Björk Ármannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Hún hefur undanfarin ár verið yfirlæknir og sinnt stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus í Borås í Svíþjóð. Hún tekur við af Stefáni Yngvasyni sem sagði upp störfum að eigin ósk. Viðskipti innlent 19. apríl 2023 21:26
Katrín selur allt sitt í Hagvangi Katrín S. Óladóttir hefur selt allt sitt hlutafé í Hagvangi til þriggja lykilstarfsmanna fyrirtækisins. Samhliða sölunni mun hún hætta sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og tekur Geirlaug Jóhannsdóttir við af henni. Viðskipti innlent 19. apríl 2023 10:14
Atli Viðar ráðinn samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks Atli Viðar Thorstensen hefur verið ráðinn sem samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks hjá forsætisráðuneytinu. Alls sóttu sextán um starfið sem var auglýst í mars síðastliðnum. Innlent 18. apríl 2023 16:31
Daníel færist á milli skrifstofustjóraembætta Daníel Svavarsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar og stefnumála í forsætisráðuneytinu. Daníel mun flytjast úr embætti skrifstofustjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Innlent 18. apríl 2023 16:03
Arndís Ósk ráðin framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar. Ásamt því tekur hún sæti í yfirstjórn og framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Alls bárust tuttugu og ein umsókn um starfið. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 13:51
Inga Hlín ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og mun hún hefja störf í byrjun maí. Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um starfið. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 11:25
Margrét Anna skipuð sendiherra ELTA fyrir Ísland Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Justikal, hefur verið skipuð sem sendiherra Evrópusamtakanna í lögfræðitækni (ELTA). Meginmarkmið samtakanna er að efla tækni í lögfræðigeiranum í Evrópu. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 10:36
Þorkell og Sævar til SIV SIV eignastýring hf. hefur ráðið til sín Þorkel Magnússon sem forstöðumanns sjóðastýringar og Sævar Haraldsson sem sjóðstjóra skuldabréfasjóða. Félagið bíður nú starfsleyfis sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða með viðbótarheimild til eignastýringar. Viðskipti innlent 18. apríl 2023 09:46
Friðrik hættir sem kaupfélagsstjóri Friðrik Mar Guðmundsson hefur ákveðið að láta af störfum sem kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Hann hefur starfað hjá félögunum undanfarin nítján ár. Viðskipti innlent 17. apríl 2023 15:37
Anna Þorbjörg hættir hjá Fossum fjárfestingarbanka Anna Þorbjörg Jónsdóttir, sem hefur starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka frá árinu 2016 og byggt upp eignastýringarsvið félagsins, er hætt störfum hjá bankanum, samkvæmt upplýsingum Innherja, en í liðnum mánuði hafði verið greint frá því að hún ætti að taka við stöðu framkvæmdastjóra nýs lánasviðs Fossa. Vænta má þess að draga muni til tíðinda á næstu dögum í viðræðum um fyrirhugaðan samruna Fossa og VÍS. Innherji 17. apríl 2023 12:04
Símon Orri stýrir sölu smartbíla Símon Orri Sævarsson hefur verið ráðinn til Bílaumboðsins Öskju. Símon mun gegna starfi sölustjóra smartbíla og Mercedes-Benz sendibíla. Bílaframleiðandinn Smart býður upp á rafknúna bíla og er nýjasta viðbótin í vöruframboði Öskju. Viðskipti innlent 14. apríl 2023 18:17
Kristín Soffía og Hlöðver Þór nýir leitarar Kristín Soffía Jónsdóttir og Hlöðver Þór Árnason hafa verið ráðin til starfa hjá Leitar Capital Partners sem svokallaðir leitarar. Undir hatti Leitar munu Kristín Soffía og Hlöðver stýra eigin leitarsjóðum, annars vegar Hringur Capital ehf. og hins vegar Seek ehf. Þeir munu kaupa fyrirtæki sem Kristín Soffía og Hlöðver sjá um að stýra. Viðskipti innlent 14. apríl 2023 10:32
Landsliðskona ráðin fræðslu- og þróunarstjóri Elísa Viðarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur verið ráðin sem fræðslu- og þróunarstjóri hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Feel Iceland. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun á fæðubótaefnum sem innihalda kollagen prótein úr íslensku fiskroði. Viðskipti innlent 14. apríl 2023 09:54
Egill tekur við Gauta sem framkvæmdastjóri Heimstaden Egill Lúðvíksson er nýr framkvæmdastjóri Heimstaden á Íslandi. Hann tekur við stöðunni af Gauta Reynissyni í sumar. Síðustu fjögur ár hefur Egill starfað hjá móðurfélagi Heimstaden í Kaupmannahöfn við fjárfestingar, stefnumótun og fjármögnunn á ýmsum starfssvæðum fyrirtækisins. Viðskipti innlent 14. apríl 2023 09:27
Tekur við stöðu sviðsstjóra tæknisviðs HR Ólafur Eysteinn Sigurjónsson hefur verið ráðinn sviðsforseti tæknisviðs Háskólans í Reykjavík. Viðskipti innlent 13. apríl 2023 13:43
Plaio ræður tvo til að leiða viðskiptaþróun Hugbúnaðarfyrirtækið PLAIO hefur ráðið þá Ari Cofini og Christian Hartvig til að leiða viðskiptaþróun fyrirtækisins í Bandaríkjunum annars vegar og Evrópu hins vegar. Viðskipti innlent 12. apríl 2023 13:49