Kveður ostasnakkið fyrir Wolt Jóhann Már Helgason hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá heimsendingaþjónustunni Wolt á Íslandi. Hann hefur undanfarin fimm ár starfað sem fjármálastjóri Lava cheese. Viðskipti innlent 10. september 2024 17:10
Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Árni Hjörvar Árnason hefur verið ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar. Menning 10. september 2024 10:50
Eyrún og Þorgils til SI Eyrún Arnarsdóttir og Þorgils Helgason hafa verið ráðin til Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 10. september 2024 10:15
Vistaskipti hjá fangelsismálastjóra Páll E. Winkel mun taka ársleyfi frá embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar frá 1. október næstkomandi og taka að sér störf á vegum háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins. Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, verður settur forstöðumaður Fangelsismálastofnunar í fjarveru hans. Innlent 9. september 2024 17:03
Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni Kristrún Lilja Júlíusdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýrrar einingar, stafrænnar stefnumiðaðrar umbreytingar hjá Orkuveitunni. Kristrún kemur frá Íslandsbanka, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki sem forstöðumaður daglegra bankaviðskipta. Viðskipti innlent 9. september 2024 11:38
Nýliðun í framkvæmdastjórn Pírata Kosið var til framkvæmdastjórnar Pírata á aðalfundi flokksins í Hörpu í dag. Umtalsverð nýliðun varð í framkvæmdastjórn flokksins sem og stefnu- og málefnanefnd. Innlent 7. september 2024 19:25
Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital Hekla Arnardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Crowberry Capital. Viðskipti innlent 6. september 2024 12:49
Pipar/TBWA eflir samskiptateymið Pipar\TBWA auglýsingastofa hefur ráðið Margréti Stefánsdóttur almannatengil og Silju Björk Björnsdóttur, sérfræðing í samfélagsmiðlum í samskipta- og almannatengslateymi stofunnar, sem Lára Zulima Ómarsdóttir leiðir. Viðskipti innlent 6. september 2024 12:31
Tómas hættir hjá Símanum og Höddi tekur við enska boltanum Tómas Þór Þórðarson, sem hefur síðustu fimm ár stýrt umfjöllun Símans sport um enska boltann, er hættur. Hörður Magnússon tekur við ritstjórnartaumunum, en þetta er síðasta tímabilið í enska boltanum sem Síminn sýnir í bili. Viðskipti innlent 5. september 2024 12:00
Frá Viðskiptaráði til BBA//Fjeldco Agla Eir Vilhjálmsdóttir hefur gengið til liðs við lögmannsstofuna BBA//Fjeldco. Agla Eir starfaði áður sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Viðskipti innlent 4. september 2024 15:11
Andri nýr alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins Andri Lúthersson hefur tekið við starfi alþjóðafulltrúa forsætisráðuneytisins. Hlutverk alþjóðafulltrúa er að vera ráðgjafi forsætisráðherra í utanríkismálum og hafa yfirsýn og halda utan um erlend samskipti forsætisráðherra og forsætisráðuneytisins. Frá þessu er greint í tilkynningu á vef stjórnarráðsins. Innlent 3. september 2024 10:58
Hrafnhildur gengur til liðs við ADVEL lögmenn frá ESA Hrafnhildur Kristinsdóttir, sem hefur síðustu ár starfað sem lögfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), hefur gengið til liðs við ADVEL lögmenn. Þar mun hún starfa sem ráðgjafi samhliða kennslu við Háskólann í Reykjavík. Klinkið 2. september 2024 20:21
Sara Lind ráðin framkvæmdastjóri Climeworks á Íslandi Sara Lind Guðbergsdóttir, sem hefur meðal annars gegnt stöðu setts forstjóra Ríkiskaupa og Orkustofnunar, mun á næstunni taka við sem framkvæmdastjóri Climeworks hér á landi. Svissneska félagið starfrækir stærsta lofthreinsiver á heimsvísu á Hellisheiði í samstarfi við Carbfix og Orku náttúrunnar. Klinkið 2. september 2024 18:07
Vilborg til Iðunnar frá Sýn Vilborg Helga Harðardóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Iðunnar fræðsluseturs. Viðskipti innlent 2. september 2024 15:41
Aðstoðarmaður ráðherra í baráttu við settan skrifstofustjóra Alls sóttu 22 um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var um miðjan júlí. Umsóknarfrestur rann út þann 12. ágúst. Viðskipti innlent 2. september 2024 12:19
Fyrrverandi forstjóri Reita stýrir Ísey Guðjón Auðunsson, fyrrverandi forstjóri Reita fasteignafélags, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri ÍSEY útflutnings ehf (ÍSEY). Viðskipti innlent 2. september 2024 11:44
Unnur Eggerts og Mateja til Maura Unnur Eggertsdóttir og Mateja Deigner hafa gengið til liðs við auglýsingastofuna Maura. Unnur hefur verið ráðin sem hugmynda- & textasmiður og verkefnastjóri og Mateja sem grafískur hönnuður. Viðskipti innlent 2. september 2024 07:06
15 fatlaðir starfsmenn hættir á Múlalundi Miklar breytingar eiga sér nú stað á starfsemi Múlalundar á Reykjalundi í Mosfellsbæ því þar er fólk með fötlun að missa vinnuna og einhverjir eru að hverfa til annarra starfa. Fimmtán fatlaðir starfsmenn voru kvaddir í gær, þar af einn starfsmaður, sem hefur unnið á Múlalundi í 38 ár. Innlent 31. ágúst 2024 20:05
Ráðinn hönnunarstjóri Aton Sigurður Oddsson hefur verið ráðinn til Aton sem hönnunarstjóri. Viðskipti innlent 30. ágúst 2024 13:38
Innáskipting hjá Kviku Sigurgeir Guðlaugsson, sem hefur verið varamaður í stjórn Kviku banka tekur sæti Guðmundar Arnar Þórðarsonar og kemur nýr inn í stjórn bankans. Guðmundur Örn tók á dögunum við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Kviku. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 13:05
Verður meðal stærstu hluthafa og tekur við stjórnarformennsku Håkon André Berg verður nýr starfandi stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins GeoSalmo. Samhliða því að taka við stjórnarformennsku fjárfestir Håkon í félaginu og verður meðal stærstu hluthafa félagsins. Viðskipti innlent 29. ágúst 2024 12:24
Katrín tekur sæti í háskólaráði HÍ Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur tekið sæti í háskólaráði Háskóla Íalands til næstu tveggja ára. Meðal verkefna háskólaráðs er að marka heildarstefnu í málefnum háskólans og setja reglur um starfsemi háskólans á grundvelli laga. Þá fer háskólaráð með úrskurðarvald í málefnum skólans. Innlent 28. ágúst 2024 21:49
Skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar HR Dr. Stefan Wendt viðskiptafræðiprófessor hefur verið skipaður deildarforseti viðskipta- og hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík. Viðskipti innlent 27. ágúst 2024 11:26
Kveður Marel og verður aðstoðarforstjóri Kapp Ólafur Karl Sigurðarson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri tæknifyrirtækisins Kapp. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 12:57
Helga Hrund í hóp meðeiganda Maven Helga Hrund Friðriksdóttir hefur bæst í hóp meðeigenda þjónustu- og ráðgjafafyrirtækisins Maven ehf. Þá hefur Anna Kristín Ólafsdóttir verið ráðin skrifstofustjóri hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 10:31
Ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans Elvar Þór Karlsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans og mun hefja störf í vetur. Viðskipti innlent 26. ágúst 2024 09:51
Sesselía yfirgefur Vodafone Sesselía Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Vodafone fjarskipta, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Hún hefur gegnt starfinu frá því í apríl 2022 og sat áður í stjórn móðurfélagsins Sýnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að Sesselía muni starfa áfram með Vodafone þar til eftirmaður verður ráðinn. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 12:02
Alma Mjöll ráðin til þingflokks VG Alma Mjöll Ólafsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri þingflokks Vinstri grænna. Hún starfaði til margra ára sem rannsóknarblaðakona á Heimildinni. Innlent 16. ágúst 2024 17:31
Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður og lögmaður, hefur bæst við hóp lögmanna Lögfræðistofu Reykjavíkur. Helga Vala útskrifaðist með ML gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011 og öðlaðist sama ár málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi og síðar fyrir Landsrétti. Innlent 15. ágúst 2024 15:56
Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Axel Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann hefur starfað hjá Salnum frá árinu 2022. Tæpt ár er síðan forstöðumaður Salarins til tólf ára lét af störfum og gagnrýndi áhugaleysi meirihlutans í bæjarfélaginu á starfseminni. Menning 15. ágúst 2024 13:57