Sækja veiðarfæri og stefna á miðin á morgun Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandi Hvals hf, segir hvalveiðiskipin Hval 8 og Hval 9 á leið í Hvalfjörðinn. Þangað verða veiðarfæri sótt og í framhaldinu lagt á miðin á morgun. 5.9.2023 17:03
Tóku bakpokann af konunni til að flýta fyrir mótmælalokum Hvalur hf. hefur kært konurnar tvær sem mótmæltu hvalveiðum í tunnum í möstrum hvalskipa félagsins til lögreglu. Yfirlögregluþjónn segir ekki mannréttindabrot að taka bakpoka af fólki sem hafi gerst brotlegt við lög. 5.9.2023 15:56
Funduðu með starfsfólki og nemum um sameiningu MA og VMA Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Sigríður Huld Jónsdóttir, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, og Karl Frímannsson, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, héldu í dag fund með starfsfólki og nemendum beggja skóla um sameiningu skólanna. Skólameistararnir eru jákvæðir fyrir sameiningu. 5.9.2023 15:14
Kristján stefnir á hvalveiðar um leið og veður leyfir Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandi Hvals hf., skilur ekkert í því hvers vegna fólki sem brjóti lög sé hampað út í það óendanlega. Hann segir slæmt veður hafa tafið hvalveiðar í september en siglt verði á miðin á morgun verði veður gott. 5.9.2023 10:32
Átta ára fangelsi fyrir hrottaleg brot gegn eiginkonu sinni Karlmaður var dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi yfir fjögurra ára tímabil. Hann þarf að greiða eiginkonu sinni fyrrverandi sjö milljónir króna í miskabætur. 4.9.2023 16:48
Með einum of marga bestu vini á heimilinu Einn nýjasti íbúinn á Hellu bíður þess að fá að vita hvort hann geti búið áfram í bænum. Reglur um hundahald í bænum komu honum í opna skjöldu. 2.9.2023 08:01
Kókaínpar hafnaði samverknaði þrátt fyrir heilmikil samskipti Erlendur karlmaður og erlend kona hafa verið dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir innflutning á kókaíni til landsins. Fólkið játaði brot sitt en hafnaði að um samverknað hefði verið að ræða. Samverknaður kemur til þyngingar við brot á lögum. 1.9.2023 16:00
Innkalla Carbonara kjúklingapasta Álfasaga ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Carbonara kjúklingapasta. Ástæða innköllunar er röng innihaldslýsing og ómerktir ofnæmisvaldar, bæði egg og sellerí. 1.9.2023 15:08
Sigurður Orri stýrir samfélagsmiðlum og viðburðum Viðreisnar Sigurður Orri Kristjánsson, stjórnmálafræðingur, hefur verið ráðinn til starfa hjá Viðreisn sem verkefnastjóri samfélagsmiðla og viðburða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum. 1.9.2023 14:10
True North krefst lögbanns á hvalveiðar Kristjáns Framleiðslufyrirtækið True North hefur krafist þess að lögbann verði sett á Hval hf vegna veiða á langreyðum. Katrín Oddsdóttir, lögmaður hjá Rétti, fer með málið fyrir hönd True North. Erfitt, jafnvel ómögulegt verði að fá erlenda aðila til samstarfs hérlendis verði af veiðunum. 31.8.2023 16:58