Stórslasaðar á gjörgæslu en ekki í lífshættu Eiginmaður konu sem slasaðist alvarlega þegar króna féll úr pálmatré á veitingastað á Tenerife á sunnudaginn segir eiginkonu sína og vinkonu hennar enn á gjörgæslu. Konurnar séu ekki í lífshættu en mikið slasaðar. 15.9.2021 16:38
Sóttu tvo göngumenn sem gengu yfir nýja hraunið Tveir göngumenn voru sóttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Gónhól í Geldingadölum eftir hádegið í dag. Lögregla minnir á að blátt bann er við því að ganga yfir nýtt hraun á svæðinu. 15.9.2021 15:56
Umboðsmaður leggur til gjafsókn fyrir foreldra Heklu Lindar Umboðsmaður Alþingi hefur lagt til við dómsmálaráðherra að foreldrum Heklu Lindar Jónsdóttur verði veitt gjafsókn í skaðabótamáli gegn íslenska ríkinu vegna andláts dóttur þeirra í kjölfar afskipta lögreglu af henni. 15.9.2021 15:01
Fór í heimildarleysi inn til konu sem sakaði hann um nauðgun Karlmaður um fimmtugt hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hafa farið óboðinn inn á heimili á Siglufirði að morgni dags í maí fyrir rúmu ári. 15.9.2021 14:13
Finnbogi Jónsson er látinn Finnbogi Jónsson verkfræðingur og fyrrverandi stjórnarformaður Samherja lést þann níunda september síðastliðinn í Vancouver í Kanada. Finnbogi lét mjög að sér kveða í íslensku atvinnulífi og sat í stjórn fjölmargra félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana. Greint er frá andláti Finnboga á vefsíðu Samherja. 14.9.2021 16:13
Bein útsending: Heilbrigðismál sem kosningamál „Heilbrigðismál eru kosningamál,“ bergmálar í fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda Alþingiskosninga. Heilbrigðiskerfið hefur gengið í gegnum mikla þolraun á síðustu misserum. En jafnvel þótt heimsfaraldrinum linni er krísa heilbrigðisþjónustunnar langt í frá í baksýnisspeglinum. 14.9.2021 13:16
Bein útsending: Ráðherra ræðir tilslakanir innanlands Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra er mætt á reglulegan þriðjudagsfund ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. 14.9.2021 10:37
Skothylkin fuku í vindinum í Rauðagerði Lögreglukona sem bar vitni í Rauðagerðismálinu í dómsal í morgun segir að skothylki hafi fokið til í vindinum í Rauðagerði þegar hana bar að garði. Önnur lögreglukona sagðist ekki hafa verið meðvituð um að skotárás hefði átt sér stað þegar hún mætti á vettvang. 14.9.2021 10:08
Bílstjóri Angjelins segist hafa komið fullkomlega af fjöllum Shpetim Qerimi, sem er sakaður um að eiga hlutdeild í morðinu á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar, neitaði sök við skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Shpetim er sagður hafa ekið Angjelin Sterkaj í Rauðgerði kvöldið sem Angjelin skaut Armando til bana. 13.9.2021 16:21
Börn fatlaðs fólk verða af næringaríkum mat og tómstundum Tæplega átta af hverjum tíu í flokki fatlaðs fólks eiga erfitt eða frekar erfitt með að ná endum saman. Sex af hverjum tíu geta ekki mætt óvæntum útgjöldum. Þetta er meðal niðurstaðna spurningakönnunar Vörðu fyrir Öryrkjabandalag Íslands þar sem staða fatlaðs fólks á Íslandi var könnuð. 13.9.2021 14:35