Forsetaframbjóðandi Barca skýtur föstum skotum á PSG Joan Laporta, forsetaframbjóðandi Barcelona, er allt annað en sáttur við ummæli PSG um Lionel Messi. Franski risinn hefur ekki farið leynt með það að félagið vilji klófesta hinn 33 ára Argentínumann sem hefur ekki farið leynt með óánægju sína í Katalóníu. 30.1.2021 23:01
Gunnhildur Yrsa til Orlando Pride Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin í raðir Orlando Pride frá Utah Royals í bandarísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 30.1.2021 22:30
Barkley hetja Villa en Ings nærri því að bjarga stigi fyrir í uppbótartíma Aston Villa vann 1-0 sigur á Southampton í síðasta leik dagsins er liðin mættust á St. Mary’s í kvöld. VARsjáin kom Aston Villa til bjargar undir lok leiks. 30.1.2021 21:56
Inter rúllaði yfir Benevento og eltir AC eins og skugginn Inter er tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum í AC Milan, sem eru á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar, eftir 4-0 sigur Inter á Benevento í kvöld. 30.1.2021 21:50
NBA dagsins: Rosaleg frammistaða Young og sigling Utah heldur áfram Það var nóg um að vera í NBA körfuboltanum í nótt. Tíu leikir fóru fram og hér að neðan má sjá helstu tilþrif næturinnar sem og það helsta úr leik Milwaukee og New Orleans annars vegar sem og Atlanta og Washington. 30.1.2021 21:01
Solskjær segir úrslitin á Emirates framfaraskref „Ég er ánægður með frammistöðuna. Við komum hingað og höldum hreinu og fengum fín færi til þess að vinna leikinn,“ sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man. United, í samtali við BBC eftir jafnteflið markalausa gegn Arsenal. 30.1.2021 20:19
Dramatískt jafntefli í Kórnum HK og Valur gerðu dramatískt jafntefli, 32-32, er liðin mættust í sjöundu umferð Olís deildar kvenna í dag. Bæði lið fengu tækifæri undir lok leiksins til að vinna. 30.1.2021 19:33
Markalaus á Emirates Arsenal og Manchester United gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust á Emirates leikvanginum í dag. Leikurinn var nokkuð fjörugur þrátt fyrir markalaust jafntefli. 30.1.2021 19:23
Meistararnir þokast nær toppnum Juventus vann 2-0 sigur á Sampdoria á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn mikilvægur upp á framhaldið hjá ítölsku meisturunum. 30.1.2021 18:54
Staðfesta framlengingu Jóhanns Burnley staðfesti í dag á heimasíðu sinni að Jóhann Berg Guðmundsson hafi framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið. 30.1.2021 18:01