Klopp rakar inn auglýsingatekjum Jurgen Klopp fær ekki bara góð laun hjá Liverpool. Hann nefnilega rakar líka inn auglýsingatekjum og á síðasta ári nældi hann sér í tæpar sjö milljónir punda fyrir auglýsingar ofan á þær sextán milljónir punda frá Liverpool. 27.1.2021 23:01
Reiknar ekki með áhorfendum á þessu tímabili Andrea Agnelli, forseti Juventus, segir að það verði ólíklegt að einhverjir áhorfendur fái að koma inn á leikvangana í Evrópu á þessari leiktíð. 27.1.2021 22:30
Man. United tapaði gegn botnliðinu Sheffield United, botnliðið í ensku úrvalsdeildinni, gerði sér lítið fyrir og vann 2-1 sigur á Manchester United á útivelli. 27.1.2021 22:12
Everton og Leicester skildu jöfn Everton og Leicester gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í toppbaráttuslag á Goodison Park í kvöld. Everton komst yfir í fyrri hálfleik en Leicester jafnaði í þeim síðari. 27.1.2021 22:09
Börsungar áfram í bikarnum Barcelona er komið áfram í Copa del Rey eftir 2-1 sigur á Rayo Vallecano á útivelli í kvöld. 27.1.2021 21:56
Spánn, Frakkland og Svíþjóð í undanúrslit Spánn, Frakkland og Svíþjóð tryggðu sér þrjú síðustu sætin í undanúrslitum HM í handbolta sem fer fram í Egyptalandi. Fyrr í kvöld hafði Danmörk tryggt sér fyrsta sætið í undanúrslitunum eftir ótrúlegan leik gegn heimamönnum. 27.1.2021 21:15
Keflavík áfram með fullt hús og Haukasigur í Borgarnesi Keflavík er áfram á toppi Domino’s deildar kvenna eftir að liðið vann sjötta sigurinn, af sex mögulegum, er liðið bar sigur úr býtum gegn botnliði KR, 104-87. Á sama tíma unnu Haukar 65-59 sigur á Skallagrími í Borgarnesi. 27.1.2021 20:54
Glæsileg vippa Hákons er hann skoraði fyrir aðallið FCK í stórsigri Hákon Arnar Haraldsson var á skotskónum fyrir aðallið FCK sem vann 6-1 stórsigur á AGF er liðin mættust í síðasta æfingaleik áður en danska úrvalsdeildin fer aftur af stað eftir jólahlé. 27.1.2021 20:15
Markalaust í fyrsta leik Tuchel | Frábær sigur Jóhanns og félaga Chelsea tókst ekki að vinna Úlfana í fyrsta leik liðsins undir stjórn Thomas Tuchels sem tók við liðinu af Frank Lampard sem var rekinn fyrr í vikunni. Á sama tíma vann Burnley frábæran sigur á Aston Villa á heimavelli. 27.1.2021 19:56
Enn vinnur Fjölnir Nýliðar Fjölnis unnu sjötta leikinn af átta mögulegum er þær höfðu betur gegn Snæfell, 74-66, í Stykkishólmi er liðin mættust í fyrsta leik kvöldsins í Domino’s deild kvenna. 27.1.2021 19:45