Gylfi fær norskan samherja Framherjinn Joshua King er að semja við Everton. Þetta segir fréttamaðurinn Kris Temple sem vinnur hjá breska ríkisútvarpinu, BBC. 1.2.2021 22:57
„Hefur örugglega setið í leikmönnum sem hafa verið hérna lengi og mér sömuleiðis“ Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Grindavíkur var auðvitað mjög sáttur með sitt lið í kvöld en Grindvíkingar lönduðu sigri gegn Stjörnunni á heimavelli í HS-Orku höllinni. 1.2.2021 22:30
Matip frá út leiktíðina Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, hefur staðfest að varnarmaður liðsins Joel Matip muni ekki leika meira á leiktíðinni vegna ökklameiðsla. 1.2.2021 22:28
Annar varnarmaður kominn til Liverpool Liverpool hefur staðfest komu varnarmannsins Ozan Kabak til félagsins. Fregnir bárust af því snemma dags að Tyrkinn væri á leið til félagsins og nú hefur það verið staðfest. 1.2.2021 22:04
Samherji Hjartar sektaður: Tæplega fimmtíu manna partí og lögreglan mætti Anis Ben Slimane, miðjumaður Brøndby og samherji Hjartar Hermannssonar, hefur fengið sekt frá dönskum yfirvöldum eftir að hann var þátttakandi í partíi um helgina. Þetta staðfestir hann í samtali við Ekstra Bladet. 1.2.2021 21:30
„Í venjulegum glugga hefðum við ekki horft til Preston“ Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að í venjulegum félagaskiptaglugga hefðu ensku meistararnir ekki horft til Preston í leit að nýjum leikmanni. Tilkynnt var í kvöld að Ben Davies, varnarmaður Preston, væri kominn til meistaranna. 1.2.2021 20:30
Frá Preston til Liverpool Varnarmaðurinn Ben Davies er kominn til Liverpool frá Preston North End en hann hefur skrifað undir langan samning við félagið. 1.2.2021 20:09
Annar hver Dani eldri en þriggja ára sá úrslitaleikinn Danir fylgdust vel með löndum sínum í úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi í gærkvöldi er Danmörk vann sitt annað gull í röð á HM. 1.2.2021 19:00
Marca: Zidane verður ekki þjálfari Real á næstu leiktíð Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, verður ekki þjálfari liðsins á næstu leiktíð. Þetta hefur spænski miðillinn Marca samkvæmt sínum heimildum. 1.2.2021 18:31
Molde staðfestir komu Björns Björn Bergmann Sigurðarson er genginn í raðir Molde frá Lillestrøm. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag. 1.2.2021 17:41