Eldur í bifreið Upp úr klukkan sex í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bifreið í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins. 22.7.2021 06:31
Enn hækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,4 prósent milli maí og júní. Árshækkun mælist nú 16 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í október 2017. 21.7.2021 11:47
Guðlaugur hættir við framboð vegna ákæru en lýsir yfir sakleysi Guðlaugur Hermannsson verður ekki oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins í Suðurkjördæmi líkt og stóð til. Hann er einn þeirra átta sem ákærðir voru á dögunum fyrir alvarleg fjársvik. Hann sendi frá sér yfirlýsingu um málið í morgun. 21.7.2021 10:17
Mannréttindadómstóllinn tekur mál Nöru fyrir Mannréttindadómstóll Evrópu mun taka mál Nöru Walker gegn Íslenska ríkinu til efnismeðferðar. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. 21.7.2021 08:26
Útgöngubann sett á aftur í Ástralíu Delta afbrigði kórónuveirunnar virðist nú á mikilli siglingu í Ástralíu og nú er svo komið að þrjú fjölmennustu ríki landsins hafa hert sóttvarnalögin á ný. 21.7.2021 07:08
Vopnað rán og hópárás í miðbænum Upp úr klukkan sjö í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um vopnað rán í verslun í miðbæ Reykjavíkur. Maður hafði ógnað starfsmanni með brotinni glerflösku og rænt peningum. Gerandinn var farinn af vettvangi þegar lögreglu bar að en fannst seinna um kvöldið. 21.7.2021 06:32
Pegasus verkefnið veldur usla í stjórnmálaheiminum Um helgina kom upp á yfirborðið að stjórnvöld um allan heim noti ísraelska njósnaforritið Pegasus til að njósna um borgara sína. Meðal þeirra sem njósnað hefur verið um eru forseti Mexíkó og helsti andstæðingur forsætisráðherra Indlands. Rúmlega áttatíu blaðamenn frá sextán miðlum hafa unnið úr gagnaleka um málið síðustu mánuði. 20.7.2021 13:22
Ferðaskrifstofa Íslands dæmd til að endurgreiða skíðaferð vegna Covid-19 Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á dögunum að stórfjölskyldu hafi verið heimilt að afpanta skíðaferð til Madonna Di Campiglio á Ítalíu með dagsfyrirvara. Ferðaskrifstofan var dæmd til að endurgreiða 2,6 milljónir króna. Um er að ræða þrjú dómsmál sem rekin voru samhliða. 20.7.2021 10:12
Dauðsföll á Indlandi séu fleiri en opinberar tölur sýna Ný rannsókn bendir til þess að dauðsföll af völdum Covid 19 á Indlandi hafi verið gróflega vanáætluð. Í rannsókninni, sem gerð er af bandarísku stofnuninni Center for Global Development er því haldið fram að umframdauðsföll á Indlandi frá upphafi faraldurs og fram í miðjan júní á þessu ári séu fjórar milljónir. 20.7.2021 08:01
Jafnasta kynjahlutfallið er hjá kjósendum Miðflokks og Pírata Kynjahlutföll kjósenda Miðflokks og Pírata eru nánast jöfn. Mestu munar hjá Vinstri grænum en fjórar konur kjósa flokkinn fyrir hvern karlmann. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem MMR gerði í samstarfi við Morgunblaðið. 20.7.2021 06:54