Stýrir rekstrarsviði Skeljungs Ingunn Þóra Jóhannesdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstarsviðs hjá Skeljungi. Rekstrarsvið Skeljungs sér um dreifingu eldsneytis, öryggismál, gæðamál, afgreiðslustaði Skeljungs og flugvelli innanlands. 18.6.2024 12:27
Bein útsending: Kynna aðgerðir gegn gullhúðun Starfshópur utanríkisráðherra kynnir aðgerðir gegn gullhúðun EES-gerða á hádegisfundi í Þjóðminjasafninu í dag. 18.6.2024 11:31
Rífa íþróttahúsið Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga. 18.6.2024 09:06
Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Alvotech og Advanz Pharma, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi, sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum, tilkynntu í dag að félögin hefðu undirritað nýjan samning um framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við augnlyfið Eylea. Tekjur af sölu lyfsins í Evrópu námu rúmlega 400 milljörðum króna í fyrra. 18.6.2024 08:33
Lægð nálgast landið Eftir hægviðri gærdagsins nálgast lægð landið úr vestri og henni fylgir suðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu. Upp úr hádegi byrjar að rigna suðvestanlands en þegar líður á daginn færist úrkoman norðaustur yfir landið. 18.6.2024 07:59
Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Hernaðaraðgerðir Ísraelshers á fyrstu þremur mánuðum stríðsins þurrkuðu nánast út heilu stórfjölskyldurnar á Gasa. Minnst 173 fjölskyldumeðlimir Salem-fjölskyldunnar létust í tveimur loftárásum. Fjölskyldumeðlimir sem lifðu af segja engin augljós hernaðarleg skotmörk hafa verið nálægt heimili fjölskyldunnar. 18.6.2024 07:26
Brutust inn en gripu í tómt Tilkynnt var um innbrot í verslunarhúsnæði á þriðja tímanum í nótt. Þá höfðu innbrotsþjófar brotist inn í húsnæði þar sem engin starfsemi fer fram og gripu því í tómt. 18.6.2024 06:30
Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Landsréttur hefur mildað fangelsisdóm yfir tæplega sextugum karlmanni vegna ýmissa brota, þar á meðal vegna fjölda kynferðisbrota gegn konum með þroskaskerðingu. Hann hlaut fjögurra ára fangelsisdóm í stað sex ára. Landsréttur var sammála héraðsdómi um að tornæmi mannsins stæði ekki í vegi fyrir því að hann yrði dæmdur til fangelsisvistar. 14.6.2024 15:54
Leyfið gefið út í trássi við öryggi sjófarenda Matvælastofnun hefur veitt Arnarlaxi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á þremur stöðum í Ísafjarðardjúpi. Samgöngustofa mat það svo að óheimilt væri að veita leyfi á tveimur staðanna, með tilliti til siglingaöryggis. 14.6.2024 15:24
Quang Lé laus úr gæsluvarðhaldi en í farbanni Quang Lé og tveir aðrir sem grunaðir eru um mansal og fleiri glæpi eru laus úr gæsluvarðhaldi. Um er að ræða tvo karla og eina konu. Þau hafa verið úrskurðuð í tólf vikna farbann. Þau hafa öll verið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. Rannsókn miðar vel að sögn lögreglu. 14.6.2024 15:21