Landsbjörg semur um smíði á þremur nýjum björgunarskipum Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum. Stefnt er að því að skipin verði tekin í notkun fyrir mitt ár 2023. 1.7.2021 14:22
Íbúð dæmd gölluð vegna erfiðs nágranna Ung kona þarf ekki að greiða lokagreiðslu af íbúð sem hún keypti þar sem íbúðin var metin gölluð í Hæstarétti vegna nágrannaerja. Hæstiréttur hefur aldrei áður dæmt fasteign gallaða vegna nágranna. 1.7.2021 13:28
Fasteignafélag stofnað utan um húsnæði Háskóla Íslands Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags um eignarhald og umsjá fasteigna sem nýttar eru í starfsemi skólans. 1.7.2021 11:40
Reitir kaupa fjórar verslunareignir af Festi Fasteignafélögin Reitir og Festi hafa komist að samkomulagi um kaup Reita á fjórum fasteignum sem hýsa meðal annars verslanir Krónunnar. Kaupverðið er rúmir fjórir milljarðar króna og að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. 1.7.2021 10:13
Miklir vatnavextir á Seyðisfirði Mikil hlýindi og leysingar hafa verið á Seyðisfirði síðustu daga líkt og annars staðar á Austur- og Norðurlandi. 1.7.2021 09:54
Þriggja ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barni vinahjóna Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur vina sinna. 30.6.2021 16:16
Ronaldo trónir á toppi peningalista Instagram Knattspyrnukappinn Christiano Ronaldo getur rukkað mest allra í heiminum fyrir kostaða Instagram-færslu. Samkvæmt greiningu HopperHQ getur hann krafist allt að 1,6 milljón bandaríkjadala fyrir hverja færslu. 30.6.2021 15:40
Háseti rekinn fyrir Instagram-færslu og fær ekki bætur Háseti sem sagt var upp störfum hjá Landhelgisgæslunni fór fram á rúmlega sex milljónir króna í bætur vegna uppsagnar sem hann taldi ólögmæta. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið af öllum kröfum mannsins í gær. 30.6.2021 14:16
United Airlines pantar 270 þotur Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti nýlega að það hefði gengið frá stærstu flugvélapöntun í sögu félagsins. 30.6.2021 12:44
EFLA mælir ekki með niðurrifi Fossvogsskóla Skýrsla um ástand Fossvogsskóla kom nýverið út. Rakaástand og innivist var efni rannsóknarinnar og niðurstaðan var ekki góð. Þó telur verkfræðistofan EFLA að unnt sé að nýta útveggi skólans. 30.6.2021 10:51