Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Katrín Jakobsdóttir hefur óskað Höllu Tómasdóttur til hamingju með kjör til embættis forseta Íslands. „Nú taka við ný ævintýri hjá mér sem ég veit ekkert hver verða. En fyrst ætla ég að fá mér kaffi og njóta þess að vera hér og nú.“ 2.6.2024 10:25
Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Eiríkur Ingi Jóhannsson er sá forsetaframbjóðandi sem fæst atkvæði hefur hlotið frá stofnun lýðveldisins. Hann hlaut aðeins 101 atkvæði. 2.6.2024 09:44
Kosningarnar gerðar upp Þau Auður Jónsdóttir, Birgir Hermannsson og Björn Ingi Hrafnsson skiptast á skoðunum um úrslitin í forsetakosningunum á Sprengisandi í dag. Þá gæti verið von á að nýkjörinn forseti láti sjá sig. 2.6.2024 09:31
Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Nú er orðið ljóst að Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins. Áfram verður þó fylgst með gangi mála í forsetavaktinni. 1.6.2024 07:06
Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur beðið ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um að farið verði yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu, þegar piparúða var beitt á mótmælendur fyrir utan ríkisstjórnarfund í morgun. 31.5.2024 15:53
Páll sýknaður Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari hefur verið sýknaður af öllum kröfum tveggja blaðamanna á Heimildinni í Landsrétti. 31.5.2024 14:07
Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Átta hafa verið ákærð fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og líkamsárásir gegn konu sem tengist þeim öllum fjölskylduböndum. Faðir konunnar greindi lögreglu frá því að ef fjölskyldan byggi í „einhverju arabalandi“ væri hann búinn að „slátra“ dóttur sinni. 31.5.2024 13:06
Ekki verði hægt að lauma gullhúðun í lög Starfshópur utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun EES-reglna hyggst leggja til að breytingar verði gerðar á verklagi við vinnslu stjórnarfrumvarpa til innleiðingar á Evrópureglum, þannig að bæði hagsmunaaðilar og alþingismenn séu rækilega upplýstir um það strax á fyrstu stigum lagasetningar ef stjórnvöld bæta innlendum reglum við EES-löggjöfina. 30.5.2024 17:03
Katrín með mikið forskot í nýrri könnun Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands er Katrín Jakobsdóttir með 26,3 prósenta fylgi en næsti maður, Halla Tómasdóttir, með 18,5 prósenta fylgi. Halla Hrund Logadóttir mælist með litlu minna fylgi en nafna hennar, 18,4 prósent. 30.5.2024 16:37
Fréttir af meintri skaðsemi lýsis sagðar æsifréttir Sérfræðingar segja fréttir af meintri skaðsemi lýsis byggja á rannsókn sem ekki sé unnt að draga neinar ályktanir af. 30.5.2024 13:40