Fréttamaður

Árni Sæberg

Árni er viðskiptafréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tók sam­býlis­konu sína háls­taki en var sýknaður

Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa tekið þáverandi sambýliskonu sína og barnsmóður hálstaki. Sannað þótti að hann hefði tekið konuna hálstaki en brot hans heimfært undir ákvæði hegningarlaga um minni háttar líkamsárás og hann því sýknaður vegna fyrningar brotsins.

Reykja­dalur fær tugi milljóna eftir allt saman en aðrir minna

Inga Sæland segir það hafa verið sér kjaftshögg að lesa í fjölmiðlum að seglin yrðu dregin saman í Reykjadal í sumar vegna skorts á fjárframlögum frá ráðuneytum hennar og Ragnars Þórs Ingólfssonar. Þau muni styrkja samtökin um 58 milljónir króna, á sama tíma og skorið verður niður í fjárveitingum til annarra félagasamtaka.

Páll Winkel varð fyrir valinu

Páll Winkel hefur verið skipaður í embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins, sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember. Sex sóttu um embættið, sem Bryndís Helgadóttir hefur gegnt síðan Haukur Guðmundsson lét af störfum í nóvember.

Kveður Þor­gerði og snýr sér að Guði

Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, hefur ákveðið að láta af störfum eftir aðeins eitt ár í starfi. Hann bauð sig fram í oddvitasæti Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar en laut í lægra haldi fyrir Björgu Magnúsdóttur.

Slitin drifkeðja bif­hjóls olli banaslysi á Miklu­braut

Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að slitin drifkeðja bifhjóls hafi orðið til þess að afturhjól bifhjólsins læstist, með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á því, hafnaði á vegriði og lést í júlí í fyrra.

Steina vill á­frýja: „Brotið gegn grund­vallar­réttindum um­bjóðanda míns“

Steina Árnadóttir hjúkrunarfræðingur hefur falið Vilhjálmi Vilhjálmssyni, verjanda sínum, að óska eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í dag. Þar var hún sakfelld fyrir manndráp af gáleysi. Vilhjálmur telur að brotið hafi verið á grundvallarréttindum Steinu til réttlátrar málsmeðferðar og það sé meðal margra atriða, sem gæti orðið til þess að Hæstiréttur veiti áfrýjunarleyfið.

Vilja finna ung­linga­skóla nýjan stað

Borgarráð samþykkti í morgun að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardal á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina. Huga á að annarri staðsetningu og fara í samráðsferli að nýju með helstu hagaðilum í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu.

Sjá meira