Gámur eyðilagðist á Reykjanesbraut Hreinsunarstarf stendur nú yfir á Reykjanesbraut eftir að gámur, sem verið var að flytja á palli vörubíls, hafnaði undir brúnni milli Smiðjuhverfisins og Staldursins í Reykjavík. 2.9.2022 10:39
Samræmdum prófum slaufað og „Matsferill“ kemur í þeirra stað Samræmd könnunarpróf í grunnskóla verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til ársins 2024. Í stað prófanna verður unnið með svokallaðan „Matsferil“, nýtt samræmt námsmat, sem mun leysa samræmdu prófin af hólmi. 2.9.2022 10:11
Allt sem þú þarft vita um sænsku þingkosningarnar Níu dagar eru nú þar til að Svíar ganga að kjörborðinu en þingkosningar fara fram í landinu sunnudaginn 11. september. Spennan er mikil og ekki víst hvernig mál muni þróast þegar búið er að telja öll atkvæði. Þegar kemur að myndun næstu stjórnar hefur sjónum sérstaklega verið beint að Miðflokknum og svo Svíþjóðardemókrötum sem eru komnir inn í hlýjuna á hægri vængnum eftir að hafa verið einangraðir á sænska þinginu allt frá því að þeir náðu fyrst inn mönnum árið 2010. 2.9.2022 09:00
Tekur við starfi framkvæmdastjóra SSNV Katrín M. Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. 2.9.2022 07:58
Suu Kyi fær enn einn fangelsisdóminn Dómstóll í Mjanmar hefur dæmt Aung San Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, í þriggja ára fangelsi fyrir kosningasvindl í tengslum við þingkosningarnar í nóvember 2020. 2.9.2022 07:54
Hiti gæti náð sautján stigum á Suðurlandi Veðurstofan spáir norðaustanátt í dag, þar sem reikna megi með strekkingi sums staðar en lægir svo með kvöldinu. Væta verður um landið austanvert, en bjartviðri suðvestantil. 2.9.2022 07:19
Samkaup lækkar verð á fjögur hundruð vörum um tíu prósent Verslunarkeðjan Samkaup hefur ákveðið að lækka verð á yfir fjögur hundruð vörunúmerum undir vörumerkjum Änglamark og lágvörumerkinu X-tra í öllum verslunum sínum. Um er að ræða tíu prósenta verðlækkun á vörunúmerunum sem þegar hefur tekið gildi og kemur til með að haldast óbreytt fram til áramóta hið minnsta. 1.9.2022 14:32
Gripinn með fimm þúsund sterkar OxyContin-töflur Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag karlmann á þrítugsaldri í gæsluvarðhald til 7. september vegna rannsóknar á innflutningi á um fimm þúsund töflum af OxyContin. 1.9.2022 13:23
Sveinn Friðrik nýr rekstrarstjóri Arctic Trucks International Sveinn Friðrik Sveinsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Arctic Trucks International ehf. 1.9.2022 13:18
Borgin slítur vinaborgarsamstarfi við Moskvu Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í morgun einróma að slíta vinaborgasamstarfi við rússnesku höfuðborgina Moskvu, á grundvelli samstarfssamnings sem í gildi hefur verið milli borganna frá árinu 2007. 1.9.2022 12:48