Fleiri mótfallin en fylgjandi innflutningi á landbúnaðarvörum Fleiri eru mótfallin frjálsum innflutningi á landbúnaðarvörum en fylgjandi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir Fréttablaðið. 6.7.2022 06:21
Hyggst leggja fram frumvarp um svæðisskiptingu á kvóta strandveiða Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi í haust um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiða á ný. 6.7.2022 06:12
Áttatíu ár liðin frá mesta sjóslysi við Íslandsstrendur Áttatíu ár eru í dag liðin frá mesta sjóslysi við Íslandsstendur þegar um 240 manns fórust við það að skipalestin QP-13 sigldi í þoku inn í belti tundurdufla sem hafði verið lagt til varnar óvinaskipum norður af Aðalvík á Vestfjörðum. 5.7.2022 14:58
Tilkynnt um eina hópuppsögn í júní Tilkynnt var um eina hópuppsögn til Vinnumálastofnunar í júní þar sem 39 starfsmönnum var sagt upp störfum í opinberri stjórnsýslu vegna flutninga á starfsemi milli stofnana. 5.7.2022 14:11
Unnur Valborg ráðin sveitarstjóri í Húnaþingi vestra Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ráðið Unni Valborgu Hilmarsdóttur í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. 5.7.2022 13:40
Örn Steinsen er látinn Örn Steinsen, fyrrverandi framkvæmdastjóri KR, er látinn, 82 ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí síðastliðinn. 5.7.2022 11:31
Báðir forsjáraðilar fá nú sjálfkrafa aðgang að Heilsuveru barna sinna Báðir forsjáraðilar barna sem búa á tveimur heimilum tengjast nú sjálfkrafa Heilsuveru barna sinna. Hingað til hefur aðgangurinn verið bundinn við lögheimili barnsins þó að forsjárforeldri, sem er ekki með lögheimili barnsins skráð hjá sér, hafi til þessa getað sótt sérstaklega um aðgang. 5.7.2022 11:17
Einn af þremur ofnum Elkem úti í um viku vegna brunans Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segist reikna með að einn ofn af þremur í kísilverinu verði úti í um viku tíma vegna viðgerðar sem framundan er eftir að eldur kom upp í verinu í nótt. Enginn slasaðist og segir hún að starfsmenn hafi náð að koma í veg fyrir að tjónið yrði mun meira. 5.7.2022 08:53
Fyrirskipar hernum að halda sókninni áfram Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur skipað varnarmálaráðherra sínum að halda áfram sókn rússneska hersins í Úkraínu eftir að borgin Lysychansk féll í þeirra hendur. 5.7.2022 08:02
SAS óskar eftir gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum Norræna flugfélagið SAS hefur leitað til dómstóla í New York í Bandaríkjunnum og óskað eftir gjaldþrotavernd þar vestra. 5.7.2022 07:44