Róleg norðlæg átt og víða milt veður Veðurstofan spáir rólegri, norðlægri átt í dag, víða léttskýjuðu sunnan- og vestanlands og mildu veðri. Reikna má með dálítilli rigningu eða snjókomu á norðaustanverðu landinu, en þurrt að mestu seinnipartinn. 19.4.2022 06:53
Þau sóttu um skrifstofustjórastöður í innviðaráðuneytinu Alls sótti 21 um stöðu skrifstofustjóra sveitarfélaga- og byggðamála í innviðaráðuneytinu sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Þá sóttu þrettán um stöðu skrifstofustjóra húsnæðis- og skipulagsmála í sama ráðuneyti. 12.4.2022 14:06
„Við eigum að bera virðingu fyrir listrænu frelsi fólks“ Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, og Sunna Ástþórsdóttir, safnstjóri Nýlistasafnsins, ræddu í morgun saman um listaverkið fyrir utan Nýlistasafnið þar sem í er að finna bronsstyttu af Guðríði Þorbjarnardóttur sem stolið var af Laugarbrekku á Snæfellsnesi í síðustu viku. Kristinn segist ekki skilja málflutning listakvennanna um að styttan sé „rasísk“ og segir hann að fólk eigi að bera virðingu fyrir listrænu frelsi annarra. 12.4.2022 14:00
Arion ræður nýjan regluvörð og nýja forstöðumenn Arion banki hefur ráðið Andrés Fjeldsted í starf regluvarðar, Elísabetu Árnadóttur í starf forstöðumanns lítilla og meðalstórra fyrirtækja á fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði og Hreiðar Má Hermannsson í starf forstoðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. 12.4.2022 12:44
Sjúklingur með Covid-19 lést á Landspítala Karlmaður á áttræðisaldri með Covid-19 lést á Landspítala í gær. 12.4.2022 10:36
Hvasst og dálítil rigning eða slydda syðst Veðurstofan spáir austlægri átt, allhvassri eða hvassri, með dálítilli rigningu eða slyddu syðst á landinu. Annars staðar verður mun hægari vindur og smá él eystra, en annars bjart með köflum. 12.4.2022 07:47
Mætti í annarlegu ástandi með boga og örvar í verslun Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa afskipti af manni í annarlegu ástandi sem mætti með boga og örvar í matvöruverslun í hverfi 109 í Reykjavík. 12.4.2022 07:20
Sólveig ráðin framkvæmdarstjóri Saga Natura Sólveig Stefánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri líftæknifyrirtækisins Saga Natura og tekur hún við starfinu af Lilju Kjalarsdóttur sem tekur við nýrri stöðu hjá lyfjafyrirtækinu Alvotech. 11.4.2022 15:02
Sakfelldur vegna morðsins á þingmanninum Sir David Amess Dómstóll í Bretlandi hefur fundið íslamska ofstækismanninn Ali Harbi Ali sekan af ákæru um morðið á þingmanninum Sir David Amess í október 2021. 11.4.2022 14:57
Bróðir fyrrverandi forsætisráðherra nýr forsætisráðherra Pakistanska þingið skipaði í dag Shehbaz Sharif sem nýjan forsætisráðherra landsins. Hann tekur við embættinu af Imran Kahn sem var bolað úr embættinu þegar þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum um helgina. 11.4.2022 13:28