Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Í kvöldfréttum okkar förum við yfir helstu tíðindi af leiðtogafundi NATO í Ankara, sem lauk í gær með sameiginlegri yfirlýsingu um samstöðu bandalagsins, sameiginlegar varnir og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Fundurinn litaðist þó einnig af ummælum Donalds Trump um Grænland og stöðu norðurslóða. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur verður hjá okkur og fer yfir stöðu mála. 9.7.2026 18:02
Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag þar sem Bandaríkjaforseti fór mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og að vel hafi farið á milli hennar og Donalds Trump. Tómas Arnar fjallar um málið í kvöldfréttum. 8.7.2026 18:00
Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext. 8.7.2026 15:39
Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Raforkukostnaður meðalstórs kúabús gæti lækkað um 480 þúsund krónur á ári eftir breytingar sem Alþingi hefur samþykkt á jöfnun dreifikostnaðar raforku. 8.7.2026 12:01
Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Gönguljós á Miklubraut, tafir við Bústaðaveg og Reykjanesbraut og framtíð gatnamótanna við Kaplakrika eru meðal þeirra umferðarhnúta sem kalla reglulega fram gagnrýni ökumanna. 6.7.2026 13:08
Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Áform Borgarlínunnar gera ráð fyrir að bílaakreinum fækki á ákveðnum köflum, meðal annars á Suðurlandsbraut, þótt spár geri áfram ráð fyrir aukinni bílaumferð á höfuðborgarsvæðinu. 3.7.2026 07:01
Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Gjá virðist hafa myndast á milli menntamálaráðherra og kennaraforystunnar hér á landi. Hvert málið á fætur öðru hefur aukið á spennu þeirra á milli og stór orð verið látin falla. Smári Jökull rýnir í þetta eldfima mál í kvöldfréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis klukkan 18:30. 2.7.2026 18:00
Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Lögregla hefur lagt hald á um tvö hundruð kíló af kókaíni það sem af er ári, á aðeins sex mánuðum. Það er næstum tvöfalt meira en allt síðasta ár. Í kvöldfréttum í gær sagði lögregla að samfélagið þyrfti að líta í eigin barm og ræða eftirspurnina, ekki aðeins innflutninginn. Í kvöld verður rætt við Valgerði Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækningasviðs SÁÁ, um afleiðingar kókaínneyslu. 1.7.2026 18:00
Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Þýskaland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Fallið er stórt áfall fyrir fjórfalda heimsmeistara en í Þýskalandi hefur umræðan ekki aðeins snúist um vítaspyrnur, leikskipulag eða framtíð Julian Nagelsmann. Sumir þýskir miðlar hafa gert ósigurinn að stærri spurningu: hvort landsliðið endurspegli ástand lands sem glímir við stöðnun, slitna innviði og þrýsting á gamla efnahagsmódelið. 1.7.2026 14:08
Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Dómsmálaráðherra segir stærstu fíkniefnamál ársins sýna styrk lögreglunnar en líka mikla eftirspurn eftir sterkum fíkniefnum á Íslandi. Hún boðar frumvarp í haust sem á að styrkja heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi. 1.7.2026 12:43