Engar viðvaranir gefnar út og óttast ekki vatnsskort Íslendingur sem dvelur mikið á Tenerife hefur litlar áhyggjur af vatnsskorti en stjórnvöld á eyjunni hafa varað við neyðarástandi vegna þurrkatíðar. Hann segir engar viðvaranir hafa verið gefnar út til íbúa og óþarft að hafa áhyggjur. 29.2.2024 14:00
Ekki í fyrsta sinn sem ökumaður rútu ógni öryggi á Reykjanesbrautinni Ung kona sem lenti næstum í árekstri við rútu þegar ökumaður hennar ók yfir á öfugan vegarhelming á Reykjanesbrautinni í gær segir ökumenn stórra bíla oft taka óþarfa áhættur á svæðinu. Fulltrúi Vegagerðarinnar segir atvikið sýna fram á mikilvægi þess að aðskilja akstursstefnur á fjölförnum vegum. 28.2.2024 20:24
Sér fram á verkfallsboðun Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist sjá fram á að samninganefnd Eflingar muni á fundi sínum í kvöld samþykkja verkfallsboðun. 28.2.2024 19:02
Bílstjóri rútunnar var starfsmaður á verkstæði Rútan, sem ekið var á móti umferð á Reykjanesbraut í gær, var í umsjón bifreiðaverkstæðisins Vélrás. Eigandi fyrirtækisins segir ljóst að um mannleg mistök hafi verið að ræða og að tekið verði á málinu innanhúss. 28.2.2024 12:53
Hissa og sorgmædd yfir ákvörðun VR Framkvæmdastjóri SA segir það miður að VR hafi slitið viðræðum í ljósi þess að félagið var búið að samþykkja launaliðinn og að horft væri til verðbólguviðmiða. Það væri sorglegt að 0,2 prósentustiga munur hafi gert útslagið. 23.2.2024 20:22
Telur sig geta náð betri samningi utan breiðfylkingarinnar Formaður VR telur sig geta náð betri samningi við Samtök atvinnulífsins með því að slíta félagið frá samstarfi við breiðfylkingu stéttarfélaga. Það gerði hann í dag vegna ágreinings innan fylkingarinnar um forsenduákvæði sem snýr að verðbólgu. 23.2.2024 19:22
Hótar aðgerðum fari hjólin ekki að snúast fyrir helgi Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir að Samtök atvinnulífsins hafi fram á föstudag til þess að koma með eitthvað að samningaborðinu. Ellegar neyðist Fagfélögin til þess að grípa til aðgerða í kjaradeilunni. 21.2.2024 23:11
Ungir fasteignaeigendur tapi öllu við uppkaup ríkisins Ungir fasteignaeigendur sem keyptu nýverið sína fyrstu eign í Grindavík tapa margir hverjir öllu sínu eigin fé og koma út í milljóna tapi við uppkaup ríkisins að sögn Grindvíkings. Hann vill að ríkisstjórnin geri meira til að grípa unga kaupendur. 21.2.2024 20:34
Ástæða til að skoða lögleiðingu kannabis í lækningaskyni Heilbrigðisráðherra telur ástæðu til að skoða hugmyndir um lögleiðingu kannabis í lækningaskyni, en hefur ekki tekið ákvörðun um hvort formleg vinna hefjist um málið. Slíkar breytingar verði að vinna í samráði við dómsmálaráðuneytið. 18.2.2024 20:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Íslensk kona liggur þungt haldin á spítala í Búlgaríu en vill komast til Íslands til þess að gangast undir aðgerð. Fjölskyldan hennar kemur að lokuðum dyrum allsstaðar og fær hvorki að hitta hana, né pappíra til þess að flytja hana heim. 18.2.2024 18:01