Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Al­menningur hafi aldrei átt séns

Í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag mættu fyrst stjórnmálafræðingarnir og þáttastjórnendur Skuggavaldsins þau Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir. Þau snertu á upplýsingaóreiðu og hafði Eiríkur á orði að almenningur hafi aldrei „átt séns.“ Umræðan sé farin að minna ískyggilega mikið á Brexit umræðu í Bretlandi á sínum tíma.

Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia

Brynjar Már Brynjólfsson hefur verið ráðinn í stöðu leiðtoga vaxtar og viðskiptaþróunar hjá Corus. Í starfinu mun hann leiða samstarf við viðskiptavini félagsins og tengja saman ráðgjöf, sölu og vöruþróun. Hann hefur áður starfað hjá Isavia, RB, Origo og Kjarna. Brynjar mun hefja störf hjá félaginu á næstu vikum.

Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni

Víða hafa verið haldnir fundir, pallborð og kappræður nú þegar þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um áframhaldandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu nálgast óðfluga. Félag fólks með þroskahömlun stóð fyrir einum slíkum í dag, þann 26. ágúst, og leit fréttamaður Sýnar þar við.

Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“

Tímabilið þar sem lundapysjum sem hafa rambað inn á byggt ból er bjargað og þeim sleppt út á sjó stendur sem hæst um þessar mundir. Langflestar pysjur finnast í Vestamannaeyjum og hefur þar verið útbúið sérstakt sleppisvæði en í það minnsta einni lundapysju hefur verið bjargað af götum Reykjavíkur þetta árið.

Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu

Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki. 

Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu

Óvenju mörg tilfelli þar sem fólk hefur smitast af malaríu hafa komið upp á einum stærsta flugvelli Þýskalands og þegar hafa í það minnsta tveir látist. Talið er að malarían hafi borist með moskítóflugu um borð í flugvél en það hefur fengist staðfest að sex flugvallarstarfsmenn, karlmenn í mismunandi stöðum og á mismunandi svæðum vallarins, hafi smitast.

Camilla Rut og Val­geir hafa slitið trú­lofuninni

Athafnafólkið Camilla Rut Arnarsdóttir, markaðsstjóri Hopp, og unnusti hennar, Valgeir Gunnlaugsson, pítsabakari og eigandi Pizza 107, hafa slitið trúlofuninni. Þau byrjuðu að stinga saman nefjum sumarið 2022 en höfðu þekkst nokkuð lengi fyrir það. Þau trúlofuðu sig svo í febrúar 2024.

Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu

Forsætisráðherra ávarpaði gesti á svokölluðum „lýðræðisfögnuði“ en þar lagði hún mikla áherslu á að það ætti að treysta því að þjóðin viti sínu viti. Undanfarið hafi málflutningur tengdur slagorðinu Já til að sjá snúist um að það sé markaðsbrella en það, líkt og annar málflutningur nei-ara, byggi á sömu forsendunni: um að þjóðin geti bara ekki skilið þetta mál — og geti bara ekki verið fær um að taka svona ákvörðun með þjóðaratkvæði.

Pall­bíll sem var illa lagt upp­hafið að nágranna­erjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er kölluð út oft á dag og eru útköllin eins fjölbreytt og þau eru mörg en í dag barst lögreglu á stöð 1 tilkynning um nágrannaerjur í hverfi 104. Í kerfum er skráð að þær hafi brotist út vegna pallbíls sem var illa lagt. Ekki liggur fyrir hvar honum var lagt né hvernig málið var afgreitt.

Auknar tekjur og minni kostnaður

Tekjur Sýnar jukust um 2,8 prósent á milli ára á sama tíma og rekstrarkostnaður lækkaði um 2,3 prósent á milli ára. Forstjóri fyrirtækisins segir tap á ársfjórðungnum skýrast af afskriftum á sýningarréttum. Starfsfólki hefur fækkað um 47 á milli ára.

Sjá meira