Fréttamaður

Helena Rós Sturludóttir

Helena Rós er fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Hæfi­skil­yrði fyrir aðila í þessum stöðum eru ströng“

Varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands telur að fjármálaeftirlitið hafi sinnt hlutverki sínu vel í rannsókninni á seinna útboðinu á Íslandsbanka. Hún segir hæfiskilyrði stjórnenda Íslandsbanka vera ströng, það sé þó bankans að meta hverju sinni hvort þau séu uppfyllt.

„Stjórnin á bankanum er óásættanleg að mínu mati“

Stjórnendur Íslandsbanka brugðust trausti þjóðarinnar algjörlega við sölu bankans á hlutum í eigu ríkisins og stjórn bankans er óáættanleg að mati viðskiptaráðherra. Alvarleg og kerfislæg brot Íslandsbanka við sölu bankans eru dregin fram í skýrslu Fjármálaeftirlits Seðlabankans um sátt sem gerð var á dögunum vegna sölunnar en birt var í morgun.

Segir um­hverfis­ráð­herra draga rangar á­lyktanir af uppgjörinu

Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir stjórnvöld hafa brugðist í loftslagsmálum. Þá dragi umhverfisráðherra rangar ályktanir af uppgjöri Loftslagsráðs. Ekki sé þörf á fleiri virkjunum í bili heldur þurfi að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Fólk þurfi að átta sig á stærð verk­efnisins

Aðgerðir stjórnvalda í loftslagsmálum hafa ekki skilað tilætluðum árangri að mati Loftslagsráðs. Formaður ráðsins segir stjórnsýslu loftslagsmála þurfa færast á neyðarstig og taka á málunum eins og kórónuveirufaraldrinum. Umhverfisráðherra segir algjörlega útilokað að Ísland nái loftslagsmarkmiðum á tilsettum tíma án grænnar orku. Það komi í ljós á næstu misserum hvort Ísland nái markmiðunum.

„Þetta eru bestu mögu­legu fréttir sem við gátum fengið“

Zak, hælisleitandi af mongólskum uppruna sem er með rússneskt ríkisfang, og sendur var úr landi í lögreglufylgd til Spánar í gær er nú á leið til Georgíu til að hefja nýtt líf. Kona sem tengist honum fjölskylduböndum segir þungu fargi létt af fjölskyldunni.

Lög­maður Stjörnu­gríss segir innan­búðar­lýsingar ekki réttar

Svín öskra og ærast í gasklefa hjá Stjörnugrís áður en þau taka síðasta andardráttinn samkvæmt innanbúðarupplýsingum hjá fyrirtækinu. Lögmaður Stjörnugríss segir lýsingarnar ekki réttar. Dýraverndunarsamband Íslands fer fram á að gasdeyfing svína verði bönnuð með lögum.

Segir um­mæli borgar­stjóra villandi og á­mælis­verð

Framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálp segir ummæli borgarstjóra um að Reykjavíkurborg vilji frekar eyða fjármunum í þjónustu við fatlaða en bætur vera ámælisverð. Það sé löngu tímabært að ríki og sveitarfélög komi sér saman um hvernig kosta eigi þjónustu við fatlað fólk.

Sjá meira